Page 1 of 1
Bakaramalt
Posted: 9. Jun 2010 00:56
by steinar
Sælir, getur einhver bent mér á hvar hægt er að nálgast bakaramalt ?
Re: Bakaramalt
Posted: 9. Jun 2010 03:21
by Stebbi
Ég man ekki hvað fyrirtækið heitir eða hvað númerið er hjá þeim en get sent þig í ratleik. Næst þegar þú ferð í bónus skaltu finna dós af Bónus Sýrópi og lesa aftaná hana, þar er nafnið á fyrirtæki sem selur þér bakaramalt á góðu verði, ég var allavegna sáttur við það.
Ef þú vilt ekki kaupa í 15kg umbúðum þá siturðu uppi með Hagkaup, þar kostar pundið um 700 kall.
Re: Bakaramalt
Posted: 9. Jun 2010 10:26
by Dori
Hmmm.. áhugavert.
Hvað ætliði að gera við bakaramalt?
Re: Bakaramalt
Posted: 9. Jun 2010 15:04
by steinar
Stebbi, getur verið að fyrirtækið hafi verið kjarnavörur.
Og já Dóri. Ættlunin er að nota það í stað malt extract. Commercial malt extract selt hérna á íslandi á víst ekki að gefa svo gott bragð.
Re: Bakaramalt
Posted: 9. Jun 2010 15:51
by Hjalti
Láttu endilega vita ef það tekst vel. Skal jafnvel taka þátt í að panta svona með þér ef þú hefur áhuga að splitta 15 kílóa pakningu

Re: Bakaramalt
Posted: 9. Jun 2010 17:36
by Stebbi
Þetta sem menn kalla bakaramalt er að mér sýnist sami hluturinn og Community malt extract. Sama lykt, sama þykt og svipað bragð. Við keyptum ljóst malt sem er í raun mjög dökkt og sá ég engan sérstakan mun á því og standard brauðmalti. Við erum með það í dönskum pilz sem var keyptur í Europris og grunar mig að liturinn á honum verði talsvert mikið dekkri en framleiðandinn ætlast til og eitthvað verður maltbragðið ekki eins og Pilsner á að vera en ég veðja á að þetta verði fjandi gott. Allavegna er munurinn frá Dextrósa yfir í Maltextract svo mikill að ég mæli ekki með því að nokkur maður sem ætlar að njóta afurðana noti Dextrósa ef hægt er að kaupa Malt við bruggun á svona 'Betty Crocker' bjórum.
Re: Bakaramalt
Posted: 9. Jun 2010 23:55
by steinar
hjalti, ég skal láta þig vita hvernig þetta kemur úr. Annars þá kostar 15 kg pakkning ekki nema 5000 kall og það er nóg í heillangan tíma þannig þetta virðist vera á mjööög góðu prísi miðavið community maltið í hagkaup eða annarstaðar.
Þegar ég talaði við einhverja konu í símann hjá kjarnavörum þá talaði hún um þetta sem malt extract. Upphaflega minntist ég einungis á bakaramalt í símann
Re: Bakaramalt
Posted: 10. Jun 2010 00:29
by kristfin
vonandi gengur þetta vel hjá ykkur.
ég er einu sinni búinn að prófa að nota community malt í bjór og það kom ekki vel út. mér fannst ekki gott malt bragð, en það gæti hafa verið eitthmgvað annað í ferlinu.
Re: Bakaramalt
Posted: 10. Jun 2010 07:32
by Stebbi
steinar wrote:Þegar ég talaði við einhverja konu í símann hjá kjarnavörum þá talaði hún um þetta sem malt extract. Upphaflega minntist ég einungis á bakaramalt í símann
Bakaramalt er maltextract.
Re: Bakaramalt
Posted: 20. Aug 2010 12:22
by Örvar
Sælir, er byrjandi í þessu og er bara að byrja á því að gera svona coopers kit.
Var að spá í þessu bakaramalti, er þetta það sama og brauðmalt? t.d. þetta hér:
http://www.ojk.is/ojkaaber/is/Stillinga ... _id=106400
Re: Bakaramalt
Posted: 20. Aug 2010 12:42
by sigurdur
Það þykir mér líklegt, en ég er svosem enginn bakari.
Re: Bakaramalt
Posted: 20. Aug 2010 13:12
by Idle
Já. Malt notað í brauðgerð er "annars flokks". A. m. k. er þumalputtareglan sú að aðeins besta kornið er tekið frá og notað í bjórgerð.
Re: Bakaramalt
Posted: 20. Aug 2010 13:17
by Örvar
Var þá að hugsa um hvort þetta brauðmalt sé það sama og bakaramalt sem menn eru að nota í stað sykurs útí svona coopers kitt
Re: Bakaramalt
Posted: 20. Aug 2010 13:39
by Idle
Örvar wrote:Var þá að hugsa um hvort þetta brauðmalt sé það sama og bakaramalt sem menn eru að nota í stað sykurs útí svona coopers kitt
"Community" maltið er ekki það sama og "brauðmaltið", að því er ég best veit. Kunningi minn sem vann sem bakari í mörg ár, segir a. m. k. að hann myndi aldrei reyna að nota "sjoppumaltið" í stað þess sem hann fékk.
Re: Bakaramalt
Posted: 20. Aug 2010 14:13
by kristfin
ég er með tilraun í gangi núna. bruggaði úr bakara, community og muntons dma. getum smakkað eftir 2-3 vikur
Re: Bakaramalt
Posted: 20. Aug 2010 17:27
by Stebbi
Örvar wrote:Var þá að hugsa um hvort þetta brauðmalt sé það sama og bakaramalt sem menn eru að nota í stað sykurs útí svona coopers kitt
Þetta er sjálfsagt sama maltið en ef þú vilt fá bakaramaltið sem flestir hafa notað hérna þá fæst það hjá Innbak Hf sem er bakarahlutinn af Kjarnavörum. Hún heitir Laufey sem þú villt tala við og er í síma 565-1430 og fáðu hjá henni ljóst bakaramalt, það kostar ca 5000 kall fyrir 15Kg.
Re: Bakaramalt
Posted: 21. Aug 2010 17:03
by Örvar
Ok. Takk fyrir þetta ætla að tékka á þessu.
Önnur pæling... Þarf ekki að nota eitthvað meira en kíló af malti í stað sykurs útí svona kitt?
Re: Bakaramalt
Posted: 22. Aug 2010 21:52
by Stebbi
Þú þarft ca. 1200-1300gr á móti kíló af sykri. Annars er líka hægt að setja þessi 1200gr og ná restini upp á dextrósa ef maður er að flýta sér. Annað sem þú skalt passa þig á er að þú þarft að öllum líkindum að nota meira ger, ég hef lennt tvisvar í því með Europris kittin að gerjun klárast í 1015 og svo að gerjunin var öll einhvernvegin fáránleg, fór illa af stað og stoppaði í miðju kafi og fór svo aftur rólega af stað en kláraði frekar hátt.
Ef þú ert að nota Coopers þá væri ráð að kaupa auka gerpakka og nota 1 og hálfan útí þetta með eingöngu extracti og passa að hafa hitan ekki mikið yfir 20°c.
Re: Bakaramalt
Posted: 23. Aug 2010 14:52
by Örvar
Ok. Takk fyrir þetta. Ætla að prófa að nota bara þetta bakaramalt útí coopers kitt og nota 1 og hálfann pakka af öl geri.
Getur verið slæmt fyrir loka útkomuna að nota of mikið ger?
Re: Bakaramalt
Posted: 23. Aug 2010 16:44
by sigurdur
Það verður kanski ekki slæmt, en ég held að þú farir nú ekki að setja of mikið af geri ef þú setur tvo pakka út í.
Re: Bakaramalt
Posted: 23. Aug 2010 17:20
by Stebbi
Örvar wrote:Ok. Takk fyrir þetta. Ætla að prófa að nota bara þetta bakaramalt útí coopers kitt og nota 1 og hálfann pakka af öl geri.
Getur verið slæmt fyrir loka útkomuna að nota of mikið ger?
Coopers Draught er ljúfengur með ljósu bakaramalti og enn betri ef maður minkar uppskriftina niður í 21L. Mér hefur fundist vera of mikið vatn í þessu ef maður fer blint eftir leiðbeiningunum frá Ámuni. Síðasta dolla af Coopers var minkuð í 21L og fyrir slysni gerjuð með einum pakka af geri í 23-25°c og hann var alveg ótrúlega góður þó hann hafi klárað með frekar hátt FG fyrir þessi kit.