Page 1 of 1
arduino
Posted: 5. Jun 2010 11:22
by kristfin
ég er að panta mér arduino Duemilanove af ebay. langar einvhern í eintak til að deila sendikostnaði?
http://cgi.ebay.co.uk/Arduino-Duemilano ... 335dc7b87e" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: arduino
Posted: 5. Jun 2010 13:23
by Höddi birkis
Smá forvitni, hvað ættlaru að nota þetta í?
Re: arduino
Posted: 5. Jun 2010 13:26
by hrafnkell
Mæli allavega ekki með þessum seljanda - hann er glænýr á ebay með ekkert feedback. Hætt við ripoffi

Re: arduino
Posted: 5. Jun 2010 15:18
by kristfin
ég ætla að vera með svona 10-20 hitamæla og relay sem stýra stóra kerfinu mínu.
ég tékka betur á þessum strák
Re: arduino
Posted: 5. Jun 2010 16:51
by hrafnkell
Það eru aðrir sem selja þetta á sama verði en eru með miklu betra feedback.. Mæli með því.
Athugaðu að ef þú ætlar að vera með analog nema eins og lm35 þá geturðu bara verið með 6stk á duemilanove borðum. Minnir að það séu 12stk ef þú ert með arduino mega.
Þessvegna eru ds18b20 eða ds18s20 sniðugir, þú getur verið með óendanlega marga af þeim

Re: arduino
Posted: 27. Jun 2010 21:07
by Óskar
hrafnkell wrote:
Athugaðu að ef þú ætlar að vera með analog nema eins og lm35 þá geturðu bara verið með 6stk á duemilanove borðum. Minnir að það séu 12stk ef þú ert með arduino mega.
Getur haft mun fleiri nema ef þú Multiplexar. Hef reyndar sjálfur einungis multiplexað 7-segment skjái, en þetta ætti að virka á sama hátt

Re: arduino
Posted: 27. Jun 2010 21:25
by sigurdur
Tjahh, ég held að þú sért búinn að borga kostnaðinn og vesenið margfalt með því að fá þér DS18S20 í staðinn fyrir að multiplexa analog spennur.
Það er minna vesen að multiplexa 7seg heldur en analog spennur.
Re: arduino
Posted: 28. Jun 2010 15:14
by steinar
Ef verið er að multiplexa analog spennur þá þarf að passa að það sé ekki logic multiplexer.
Re: arduino
Posted: 9. Jul 2010 22:48
by kristfin
mátti bara til með að monta mig.
fékk sendingu í vikunni frá maxims í uk, 4 ds1820 hitamælakubba. datt nefnilega í hug að biðja um "demo" á vefsíðunni þeirra.

Re: arduino
Posted: 10. Jul 2010 11:45
by hrafnkell
Já það eru orðin ansi mörg ár síðan ég borgaði fyrir parta frá maxim

Re: arduino
Posted: 11. Sep 2010 14:25
by hrafnkell
Hvernig gengur með bruggkerfi - farinn að nota arduino eitthvað?