Page 1 of 1

flöskur?

Posted: 4. Jun 2010 15:25
by Höddi birkis
þið sem eruð að tappa á notaðar glerflöskur, hversu oft er óhætt að nota sömu flöskurnar?? er ekki hætta á að þær gefi sig eftir nokkrar áttappanir??

Re: flöskur?

Posted: 4. Jun 2010 16:11
by kristfin
ég hefi aldrei heyrt að þær slitni. þær duga í langan tíma.

Re: flöskur?

Posted: 4. Jun 2010 16:42
by Eyvindur
Mér finnst líklegt að lifrin gefi sig fyrr en flöskurnar.

Re: flöskur?

Posted: 4. Jun 2010 16:50
by Höddi birkis
haha gott að vita það því hún á nóg eftir :sing: 7,9,13

Re: flöskur?

Posted: 4. Jun 2010 19:06
by Hjalti
Á meðann að þú rispar ekki glerið að innan þá ertu í góðum málum...

Re: flöskur?

Posted: 5. Jun 2010 00:28
by kristfin
í öllu þessu flókna ferli sem miðar að því að eignast heimalagaðan drykk á flösku. mundi ég telja að slit og mögulegt ónýti glerflaska ætti ekki að vera í fararbroddi áhyggja.

Re: flöskur?

Posted: 7. Jun 2010 13:45
by Höddi birkis
nei nei ég hef nú ekki mikklar áhyggjur af neinu varðandi þetta ferli ;) varð bara að vera viss, ég las nefnilega inná heimasíðu coopers að þeir mæltu með því að maður keypti nýjar flöskur það sem að notaðar gætu sprungið eftir nokkrar áttappanir, líklega bara lásí sölutrikk..

Re: flöskur?

Posted: 7. Jun 2010 16:25
by sigurdur
Ef ég man rétt, þá fylgja plastflöskur með coopers starter kittinu. Það má vera að þeir séu að tala um plast.