Page 1 of 1
					
				Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 4. Jun 2010 13:52
				by halldor
				Ég var að reka augun í nokkra nýja og spennandi belgíska í Vínbúðunum (reyndar ekki enn komnir í sölu)
De Koninck Tripel 
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=17466" onclick="window.open(this.href);return false;
St-Idesbald Dubbel
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=06222" onclick="window.open(this.href);return false;
Blanche des Neiges Wit
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=17499" onclick="window.open(this.href);return false;
La Trappe Witte Trappist
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=17850" onclick="window.open(this.href);return false;
Svo voru einhverjir Mongozo og Floris ávaxtabjórar sem ég veit nú ekki alveg hvernig munu standa sig. Ég hef smakkað Mongozo Coconut og hann er ógeð.
 
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 4. Jun 2010 15:06
				by halldor
				
Ég veit að La Trappe er ekki belgískt 

 en þeir eru ekki nema örfáa kílómetra frá landamærunum.
 
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 4. Jun 2010 15:13
				by Eyvindur
				Þótt þeir séu ekki belgískir að uppruna eru þeir nú samt bruggaðir eftir belgískum uppskriftum, með belgísku geri og af trappist munkum... Ég held að við getum kallað þá belgíska.
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 4. Jun 2010 17:11
				by halldor
				Eyvindur wrote:Þótt þeir séu ekki belgískir að uppruna eru þeir nú samt bruggaðir eftir belgískum uppskriftum, með belgísku geri og af trappist munkum... Ég held að við getum kallað þá belgíska.
Og ég sem var, með þessu innskoti, að reyna að komast hjá svona smámunasemiskommentum 

 hehe
 
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 4. Jun 2010 18:44
				by Hjalti
				nokkrir Belgar í viðbót
Floris Honey
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=17500" onclick="window.open(this.href);return false;
Floris Passion
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=17502" onclick="window.open(this.href);return false;
Mongozo Banana
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=17493" onclick="window.open(this.href);return false;
Og einn enskur stout sýnist mér...
John Smith Extra smooth
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=17796" onclick="window.open(this.href);return false;
 
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 4. Jun 2010 19:36
				by Classic
				Gaman að sá wit þarna. Pantaði af rælni wit kit frá Northern Brewer byggt eingöngu á því hvað mér finnst Freyja æðisleg, en veit að útkoman hjá mér verður allt önnur, verður gaman að prófa þetta til að fá aðeins betri hugmynd um hvað maður er að fara að fá, ár og aldir síðan ég smakkaði Hoegaarden, og hef í þokkabót örugglega drukkið hann vitlaust at the time (þ.e. beint úr flöskunni). Og að sjálfsögðu prófar maður eitthvað af hinu í leiðinni, þótt ég búist ekki við því að ég verði fastakúnni, fáir Belgar sem hafa heillað mig hingað til..
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 6. Jun 2010 19:30
				by gunnarolis
				Ég fékk mér Extra Smooth um daginn. Ég átti í erfiðleikum með að klára dósina.
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 6. Jun 2010 21:30
				by valurkris
				gunnarolis wrote:Ég fékk mér Extra Smooth um daginn. Ég átti í erfiðleikum með að klára dósina.
Ég fékk mér líka svoleiðis og hann fór hálfur í vaskinn, Þessir niturbjórar eru ekki að heilla mig neitt.
Get sammt ekki beðið eftir að smakka alla  þessa belgísku bjóra sem að eru að koma  

 
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 6. Jun 2010 22:53
				by BeerMeph
				Ég smakkaði á laugardaginn nýja rabbabara færeyska bjórinn Ydun. Mjög sætur og er furðulega rauðbleikur á litinn, lítil beiskja og lítil fylling (enginn haus). Myndi segja að ágæt lýsing á honum væri að segja að hann væri líklega líkur 30% lagerbjór/70% rósavín blöndu.
Hugsanlega fínn fyllerísbjór fyrir kvenfólkið.
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 21. Jun 2010 23:11
				by halldor
				Ég keypti áðan St-Idesbald Dubbel og Blanche des Neiges Wit en fann ekki meira af nýjum belgum í Skútuvoginum (fyrir utan Mongozo ávaxtasullið sem ég nenni ekki að gefa séns). Þeir eru reyndar enn í kælingu hjá mér þannig að ég er því miður ekki búinn að smakka 
Mig langaði líka að benda ykkur á að 
Köstritzer Schwarzbier er ábyggilega bestu kaupin í vínbúðunum í dag, "aðeins" 361 kr. fyrir 0,5 L af þessum gæðabjór.
 
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 21. Jun 2010 23:34
				by Classic
				361kr fyrir 0,5l er held ég bara helvíti gott verð fyrir bjór úr Ríkinu í dag, burtséð frá gæðum, margir þrælvondir Pilsnerar sem fólk kaupir í kassavís á svipuðu verði (lítraverðið á t.d. Slotts og Carlsberg er komið hátt í 700-kallinn).. eða að ég er að gramsa í vitlausum hillum, það er svo sem möguleiki líka... Maður hefur þetta í huga skyldi maður vilja tilbreytingu frá heimabrugginu án þess að borga handlegg og fót (kostar hann handlegginn þó) fyrir, eða go-to bjór meðan beðið er eftir að það taki sig. Veit samt ekki hvort maður á að venja sig of mikið á það, ódýrir go-to bjórar sem hafa verið að mínu skapi hafa verið gjarnir á að vera ekki að skapi nógu margra (eða ekki nógu margar fáklæddar stelpur að gefa dósir niðri í bæ til að venja fólk á þá) og hverfa því loksins þegar ég er kominn á bragðið.
Prófaði annars Blanche de Neiges um daginn og var alveg að fíl'ann. Fann lítið fyrir sítrusnum sem ég þekki svo vel og elska við Freyjuna, en þeim mun meiri banana í staðinn. Ekki jafn mikið að mínu skapi en gott samt sem áður. Það stóð eitthvað á flæmsku um náttúrulega gerjun í flöskunni og ég var reyndar ekki viss hvort það þýddi að hann ætti að botnfalla eða vera tekinn með öllu úr flöskunni, en ég drakk hann bara um leið og hann var orðinn kaldur, beið ekkert eftir botnfalli, en þyrlaði samt ekkert upp í lokin eins og maður gerir gjarnan við þýska hveitibjóra. Reikna samt tæpast með að kaupa hann oft aftur, nema þá til að prófa að hella honum öðruvísi. 500 kall fyrir flöskuna er frekar mikið þegar maður á von á um 50 kvikindum í svipuðum fíling seinna í sumar fyrir 160kall stykkið 

 
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 30. Jun 2010 17:37
				by BeerMeph
				Sammála með Köstritzer Schwarzbier ekkert nema gott.
Annars fór ég í heiðrúnu í þarsíðustu viku og úrvalið af gæðabjór var vægast sagt mjög slakt og þá sérstaklega af þýskum hveitbjórum.
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 10. Jul 2010 16:33
				by valurkris
				Fór í gær í Heiðrúnu og þá var Fullers IPA kominn í búð. Tók einn til að smakka og mæli með honum
http://www.vinbudin.is/DesktopDefault.a ... ctID=17608" onclick="window.open(this.href);return false;
 
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 10. Jul 2010 16:34
				by Idle
				
Hann er mjög ljúffengur. 

 
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 10. Jul 2010 18:18
				by hrafnkell
				Holy shit, IPA í vínbúð? Gríp slíkan eftir helgi!
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 12. Jul 2010 11:55
				by halldor
				hrafnkell wrote:Holy shit, IPA í vínbúð? Gríp slíkan eftir helgi!
Menn skulu þó ekki búast við amerískum IPA. Þessir bresku eru eins og kettlingar samanborið við alvöru ameríska IPA.
[edit]
En það skal ekki tekið af Fullers IPA að hann er svei mér ljúffengur. Vínbarinn fékk 1 stk um daginn sem prufu frá Elg og hann endaði í mínum bjórþyrsta munni. 

 
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 13. Jul 2010 09:15
				by Eyvindur
				Breskur IPA er oftar en ekki afar ljúffengur. En Liberty Ale (sem er flokkað sem APA) er klikkaðari í humlun en þeir bresku IPA sem ég hef smakkað (þá á ég við stílinn - Brew Dog eru vissulega breskir bjórar, en þar er ekkert verið að halda aftur af geðveikinni).
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 3. Nov 2010 10:48
				by Oli
				Sá að vínbúðin er komin með nokkrar nýjar tegundir á vef þeirra, allar frá Elgi, reyndar ekki komnar í sölu enn, vonandi fljótlega 
 
Chimay blár og Tripel eru þarna á meðal, Hobgoblin virðist vera að koma aftur í sölu og Scarecrow frá sama brugghúsi. Svo er þarna Road Porter frá Flying Dog brugghúsinu, einhver smakkað hann?
 
			 
			
					
				Re: Nýjir bjórar í Vínbúðunum ?
				Posted: 3. Nov 2010 14:14
				by gunnarolis
				Anchor old foghorn, Anchor Porter, Flying Dog Road Porter, Hobgoblin, Left Hand Juju Ginger og Scarecrow Organic Pale Ale eru nýjir inni á síðunni hjá þeim í dag sé ég...
Gaman að segja frá því að Old Foghorn er á 798kr 355ml flaska, 8,8%...verður að elska íslenska tollalöggjöf.