Page 1 of 1

Hjálp við að koma mér upp aðstöðu

Posted: 18. May 2010 14:48
by bjarni
Nokkrar byrjendaspurningar:

1) Hvernig lýst ykkur á svona potta: http://www.breworganic.com/10gallonpola ... pigot.aspx
Þarna er hægt að fá svona falskan götóttan botn í pottinn.
Myndi þetta spara manni að útbúa meskiker með gataðri pípu í botninum? Reyndar kostar þessi falski botn alveg undarlega mikið einn og sér... Kannski maður geti borað stálplötu sjálfur fyrir töluvert minna, en ég er bara með nógu mörg prójekt samt...

2) Hvernig er með svona heat stop, er það alveg óþarfi í flestum tilfellum? Ég sé að í sumum leiðbeiningum er talað um að halda hitanum við xx gráður í xx mínútur og svo framvegis, er þetta eitthvað sem maður kemst af án til æviloka?

3) Hvað þyrfti keramikhella að vera mörg wött til að meika sens fyrir 20-30 lítra?

Takk takk.

Re: Hjálp við að koma mér upp aðstöðu

Posted: 18. May 2010 15:36
by kristfin
bjarni wrote: 1) Hvernig lýst ykkur á svona potta: http://www.breworganic.com/10gallonpola ... pigot.aspx
Þarna er hægt að fá svona falskan götóttan botn í pottinn.
Myndi þetta spara manni að útbúa meskiker með gataðri pípu í botninum? Reyndar kostar þessi falski botn alveg undarlega mikið einn og sér... Kannski maður geti borað stálplötu sjálfur fyrir töluvert minna, en ég er bara með nógu mörg prójekt samt...
flottur pottur. en dýr heim kominn. ef þig langar í stálpott þá á eg 40 og 50 lítra pott sem þú getur fengið. en þú ætti rað skoða plastsuðupotta. ódýrast og þá eru notuð element.
bjarni wrote: 2) Hvernig er með svona heat stop, er það alveg óþarfi í flestum tilfellum? Ég sé að í sumum leiðbeiningum er talað um að halda hitanum við xx gráður í xx mínútur og svo framvegis, er þetta eitthvað sem maður kemst af án til æviloka?
þegar þú sýður virtinn þá er það bara gert eftir klukku. hinsvegar er mjög gott að hafa controller til að hita vatn til að nota við meskinguna. þá er hægt að stilla inn hita og ekki hafa áhyggjur af því að hita of mikið.

bjarni wrote: 3) Hvað þyrfti keramikhella að vera mörg wött til að meika sens fyrir 20-30 lítra?
heimilishelluborð með 4 hellum ætti að klára það, gefið að þú sért með pott með rennisléttum botni.

einfaldast er að búa til vatnshitunartunnu og suðutunnu úr plasti og meskiker úr kæliboxi með klósetbarkakápu