Ölvisholt!!!!

Spjall um bjórgerð og allt henni tengt.
Post Reply
User avatar
Hjalti
Yfirgerill
Posts: 671
Joined: 5. May 2009 13:45
Location: Grafarvogur
Contact:

Ölvisholt!!!!

Post by Hjalti »

Ákvað að skella mér á Ölvisholt eftir vinnu í dag...

Markmið 1 ná í flöskur

Code: Select all

Fékk 100 flöskur hjá Jóni. Það eru allir velkomnir til þeirra að fá flöskur á meðan að birgðir endast. Ekkert vitlaust að taka það sem maður þarf í augnablikinu svo að allir geti fengið skjálftaflöskur sem hver heimabruggari veit að eru þægilegustu flöskurnar til afnots og töppunar.
Markmið 2 fá að smakka hjá þeim

Code: Select all

Fékk að smakka nýja Hveitibjórinn hjá þeim sem ber vinnuheitið Freyja og er alveg prýðilegur sumarbjór. Fékk líka að smakka prufu af öðrum bjór en ég þori ekki að segja frá hvað það er :)
Markmið 3 spjalla við karlana

Code: Select all

Success!
Markmið 4 staðfesta heimsókn 1 Júní (annan í hvítasunnu)

Code: Select all

Heimsóknin er staðfest og núna er bara að finna tíma og fjölda sem koma. Þeim hlakkar mikið til og mér sýnist þeir ætla bara að taka okkur í fóstur til sín!
Jörvi Brauhaus

Að gerjast: Ekkert :(
Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein
Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
User avatar
Stulli
Gáfnagerill
Posts: 246
Joined: 5. May 2009 22:27
Location: 107
Contact:

Re: Ölvisholt!!!!

Post by Stulli »

Ég er með 1. júní :good:
Sturlaugur Jón Björnsson
Bruggmeistari
Borg Brugghús
User avatar
arnilong
Gáfnagerill
Posts: 259
Joined: 5. May 2009 20:30

Re: Ölvisholt!!!!

Post by arnilong »

Ég kemst líka þá!

Hvernig var það annars, hvernig kom það út í gær þegar við ræddum um það hvort að makar væru velkomnir?
Í gerjun: Jólaöl 2009
Í þroskun: Bláberjalambic 2007
Í flöskum: Margt
Á næstunni: Rauchbier, Alt og eitthvað belgískt brjálæði
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Ölvisholt!!!!

Post by Eyvindur »

Ég kem 1. júní!

Töluðum við ekki um að makar væru velkomnir á stærri viðburði, eins og árshátíð og slíkt, en annars væri þetta makalaust (nema auðvitað ef makinn er skráður félagi)? Þannig skildi ég niðurstöðuna...
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
arnilong
Gáfnagerill
Posts: 259
Joined: 5. May 2009 20:30

Re: Ölvisholt!!!!

Post by arnilong »

Jú, auðvitað. Var að reyna að rifja það upp.
Í gerjun: Jólaöl 2009
Í þroskun: Bláberjalambic 2007
Í flöskum: Margt
Á næstunni: Rauchbier, Alt og eitthvað belgískt brjálæði
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: Ölvisholt!!!!

Post by halldor »

Hvað með tímasetningu á þessum merka viðburði?

Erum við að spá í hádegi eða kvöldmatarleyti eða eitthvað þar á milli?
Gæti verið sniðugt að hafa þetta eftir kl. 16.00 til að gefa þeim, sem eru á ferðalagi þessa helgi, kost á að koma sér í bæinn og í Ölvisholtsfíling. Ég vil taka fram að ég er ekki búinn að plana ferðalag þessa helgi, ég er aðeins að reyna að taka tillit til þeirra sem hafa slíkt í hyggju. :skal:
Plimmó Brugghús
User avatar
Elli
Villigerill
Posts: 21
Joined: 14. May 2009 17:47

Re: Ölvisholt!!!!

Post by Elli »

Styð hugmyndina hans Halldórs, þetta er mikil ferðahelgi og líklegt að einhverjir verið ekki klárir fyrr en seinnipartinn - verð sjálfur í ferðalagi, en get verið klár t.d. kl 16

- Elli
User avatar
Hjalti
Yfirgerill
Posts: 671
Joined: 5. May 2009 13:45
Location: Grafarvogur
Contact:

Re: Ölvisholt!!!!

Post by Hjalti »

Er þá ekki málið að reyna að hafa brottför úr reykjavík klukkan 16:00?

Allir fullgildir meðlimir velkomnir.

Hressleikinn í fyrirrúmmi!
Jörvi Brauhaus

Að gerjast: Ekkert :(
Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein
Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Ölvisholt!!!!

Post by Oli »

Ég kemst líklega, býst við að vera staddur í Reykjavíkinni 1.júní. :D
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
User avatar
Andri
Undragerill
Posts: 621
Joined: 5. May 2009 23:56

Re: Ölvisholt!!!!

Post by Andri »

mmm er að fara í sveinspróf dagana 2-6. júní. Hugsa að ég beili þá bara og noti allann tímann í að læra
Í gerjun :
Á flöskum : Johannesberg Riesling (hvítvín)
User avatar
Korinna
Kraftagerill
Posts: 84
Joined: 7. May 2009 19:34
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Ölvisholt!!!!

Post by Korinna »

Ég er memm 1.júní

Ég fékk korn frá þeim sem ég ætla að setja í brauð :yahoo:
man does not live on beer alone
User avatar
karlp
Gáfnagerill
Posts: 305
Joined: 8. May 2009 00:27

Re: Ölvisholt!!!!

Post by karlp »

ég er að koma
on tap: Nothing! new beer fridge in planning
gassing/maturing: bad beers growing up to maybe be good beers
Fermenting: nothing!
User avatar
Korinna
Kraftagerill
Posts: 84
Joined: 7. May 2009 19:34
Location: Reykjavík
Contact:

Re: Ölvisholt!!!!

Post by Korinna »

Á ekki að fara að búa til áberandi þráð um þetta og byrja á skráningu? Við eigum eftir að staðfesta tíma, panta rútu og skipuleggja daginn (sjá undirskriftina). :beer:
man does not live on beer alone
User avatar
halldor
Undragerill
Posts: 770
Joined: 10. May 2009 00:31
Location: Reykjavík

Re: Ölvisholt!!!!

Post by halldor »

Hjalti: Ert þú ekki til í að búa til Sticky þráð undir Almenn umræða, þar sem við getum rætt tímasetningu, rútu og jafnvel hvað við ætlum að borða?... mér sýnist að við ætlum að vera þarna á kvöldmatartíma. Væri kannski sniðugt að taka með osta og baguette eða????

Svo væri kannski hægt að hafa annan skráningarþráð þar sem ekkert annað en skráning má fara í (til að hafa þetta allt saman skýrt).

Úlfar féhirðir: Verður þetta ekki greitt úr vasa hvers og eins? m.ö.o. við notum ekki sjóði FÁGunar til að greiða rútuna... eða hvað?
Plimmó Brugghús
User avatar
Squinchy
Gáfnagerill
Posts: 205
Joined: 21. May 2009 15:40
Location: Grafarvogur

Re: Ölvisholt!!!!

Post by Squinchy »

Hjalti wrote:Er þá ekki málið að reyna að hafa brottför úr reykjavík klukkan 16:00?

Allir fullgildir meðlimir velkomnir.

Hressleikinn í fyrirrúmmi!
Hvernig gerist maður fullgildur meðlimur ?
kv. Jökull
User avatar
Hjalti
Yfirgerill
Posts: 671
Joined: 5. May 2009 13:45
Location: Grafarvogur
Contact:

Re: Ölvisholt!!!!

Post by Hjalti »

Það á enn eftir að finna góða leið til þess að skrá það, en árgjaldið verður 4000 krónur og fer það í það að borga fyrir allskonar kostnað sem tengist.

Held að það sé engin fyrirstaða að þú skráir þig í skraning@hjalti.se allavega og bara endilega gerðu það :) Því fleiri því betra bara :)
Jörvi Brauhaus

Að gerjast: Ekkert :(
Að aldrast: Jörvi Jólabjór, ESB - Engin Sérstakur Bjór, Fuck you up IPA, Jörvi Irish Red Ale, Jörvi Real Ale og EdWorts Apfelwein
Að planast: Fyrsti all grain bjórinn.
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Ölvisholt!!!!

Post by Eyvindur »

Kíkti og náði mér í flöskur. Fékk helling (giska á 150 stykki, á eftir að telja almennilega). Góðar móttökur og fékk að smakka Freyju... Alveg ágætis sumarbjór, finnst mér. Svalandi og bragðgóður. Alveg bjór sem ég myndi leita í þegar mig langaði í einhvern léttan og svalandi í mestu blíðunni. Konunni fannst hann líka algjört nammi, þannig að við hjónin höldum áfram að styrkja Ölvisholt þegar þessi kemur í búðir (sem verður fljótlega, skilst mér - þeir eru að bíða eftir miðum á flöskurnar sagði Jón).

Hlakka gríðarlega til á mánudaginn!
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Ölvisholt!!!!

Post by Oli »

Fékkstu þér ekki malt og humla í leiðinni?
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Ölvisholt!!!!

Post by Eyvindur »

Nei, ég þarf að hugsa það mál aðeins yfir helgina. Ef ég kaupi eitthvað verður það hvort sem er sáralítið, og má alveg bíða þangað til á mánudaginn. Ég er svo vel byrgur, og þeir eru með það lítið malt til sölu, að ég vil frekar eftirláta það öðrum sem bráðvantar það. Ég hef ekki mikinn tíma til bruggs í sumar hvort sem er, og þeir fá meira í haust. Ég kaupi í mesta lagi smá caramel malt hjá þeim... Ég á yfirdrifið nóg af humlum...
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Ölvisholt!!!!

Post by Oli »

já ok, ég þarf einmitt að byrgja mig upp núna þar sem ég á ekki oft leið þarna framhjá :)
Eru þeir nokkuð með caramel malt til sölu núna eða eiga þeir von á því í haust?
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Ölvisholt!!!!

Post by Eyvindur »

Þeir eru með þrjár tegundir af caramel malti. Caraaroma, Caramunich og Carafa special III.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
User avatar
Oli
Undragerill
Posts: 742
Joined: 5. May 2009 22:55

Re: Ölvisholt!!!!

Post by Oli »

já ég var að hugsa um ljósara crystal/caramel
___________________________
Í gerjun: ýmislegt
User avatar
Eyvindur
Æðstigerill
Posts: 2278
Joined: 5. May 2009 19:28
Location: Hafnarfjörður

Re: Ölvisholt!!!!

Post by Eyvindur »

Nei, þeir eru ekki með ljóst caramel. Ég á líka eitthvað af því, en lítið af dökku.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór

Smelltu hér til að gera ekkert.
Post Reply