Page 1 of 1

Plimmó segir takk

Posted: 2. May 2010 22:30
by Hrotti
Takk fyrir gott kvöld í góðra vina hópi.
Ég held að Ölvisholt, Ölver og þeir Fágunarmenn sem stóðu að keppninni eigi hrós skilið.

Plimmó hópurinn fór sáttur út úr húsi og tekur hattinn ofan fyrir öðrum keppendum enda pottþétt framúrskarandi bjórar í alla staði. Leiðinlegast þykir mér að hafa ekki geta bragðað á þeim öllum.
Nú þurfa allir bara að undirbúa keppnisbjóra fyrir næstu keppni. Held að Plimmó hópurinn sleppi líklegast chili bjórnum næst.

Re: Plimmó segir takk

Posted: 2. May 2010 22:58
by halldor
Mig langaði líka að segja takk fyrir okkur... úrslitin voru framar okkar villtustu væntingum.

Kvöldið í heild var mjög vel heppnað. Frábær bjór á frábæru verði, góður félagsskapur, flott dómnefnd, glæsilegir vinningar frá Ölvisholti, Kaffismiðju Íslands og Búrinu, glæsileg skemmtiatriði frá Eyvindi og Úlfari og góður undirbúningur frá öllum sem komu að keppninni.

Takk :fagun:

Re: Plimmó segir takk

Posted: 3. May 2010 21:52
by AsiSt
Takk fyrir mig og okkur í Plimmó hópnum. Fyrsta skiptið sem ég mæti á samkomu Fágunar og það var mjög gaman að hitta ykkur alla, takk aftur, kveðja AsiSt...

Re: Plimmó segir takk

Posted: 3. May 2010 22:41
by Elli
Þetta var skemmtilegt kvöld og manni er strax farinn að hlakka til næstu samkomu Fágunar.

Takk fyrir okkur.

Re: Plimmó segir takk

Posted: 3. May 2010 23:37
by arnilong
Rosalega eruð þið grand strákar, með ykkar eigin stílista og svona :beer: Flottir!