Þetta heppnaðist mjöööög vel, bringurnar mjög safaríkar og mjúkar. Ég eldaði þær með fitunni og öllu en skar "tíglamynstur" í hana. Setti bringurnar svo á rjúkandi pönnu (í bókstaflegri merkingu) með fituhliðina niður í 2-3 min til að fá stökka og fína skorpu eftir að ég tók þær út sous vide pottinum.
Mæli klárlega með þessu!!
Í gerjun: Dubbel
Á flöskum:
Á kút: Saison, Sænski IPA, Hveitibock
Á næstunni: Westvleteren 12
Sælir drengir
Ég er ánægður að sjá hversu margir eru farnir að elda í sous vide.... Eitt sem ég tek eftir sem þið gætuð gert til að fá en betri útgáfu er að salta ekki matin fyrr en eftir á því þið missið safa út úr kjötinu víð að salta það og elda það í 2 -5 tíma
Var að vinna á Fat Duck hjá heston Blumenthal síðasta sumar og þar lærði maður mikið í svona fræðum..... Svo þarf ég að fara græja mér svona græju heima fyrir til að geta notað þetta oftar
hrafnkell wrote:Ég myndi ekki leggja í það. Reykta bragðið af hangiketinu væri líklega of mikið þar sem það kemst ekkert undan í pokanum. Veit ekki með hamborgarhrygginn, ekki víst að hann njóti góðs af því að vera medium, ásamt því að þá á maður húðunina eftir sem myndi eiginlega núlla út sous vide galdrana.
Svo eru þetta auðvitað svo þykkar steikur að það þyfti að skera niður í 3-5cm þykkar steikur.
Besta hangikjöt sem ég hef smakkað var vafið þétt í álpappír og moðsoðið þannig við lágan hita í bakaraofni í amk 12klst. Held það hljóti að vera svipuð útkoma í sous vide.

Ansi ólíkt myndi ég segja.. Hægeldað en annars mjög ólíkt.
Hvar fær maður poka sem henta í þetta?
Ég ætla að nota biab pottinn minn með pumpu fyrir circulation (takmarka bara kraftinn til að hafa létt hringstreymi og því jafnann hita á vatninu) og hitastýringunni - ætti það ekki að henta vel í þetta?
Gerandi Bruggfélag
Næst: Carlsberg Clone, Biere de Garde, Hlemmur Í gerjun: Dubbel úr BCS, Hlemmur III (Irish red) Á flösku: Fölvi (Þurrhumlaður Pale Ale)
Það virkar og vel það.... Algjör snild ...getur notað zip up poka í þetta en best er að komast í vacum vél... En að elda undir álpappír er ekkert skil því að elda sous vide
Ég eldaði læri í pottinum mínum í gær, keypti svokallað "hálft" læri, rétt rúmlega kílo með beini og öllu. Eldaði það í 3,5klst við 63°C. Útkoman var ótrúlega mjúkt og safaríkt læri eins og myndin að neðan sýnir
Í gerjun: Dubbel
Á flöskum:
Á kút: Saison, Sænski IPA, Hveitibock
Á næstunni: Westvleteren 12
20130813_192424.jpg (105.57 KiB) Viewed 49804 times
Er á næturvakt og við félagarnir ákváðum að prófa sous vide. Tók hitastýringu með heiman frá og tengdi við teketilinn.
Vinnufélagar hristu hausinn þangað til smökkun fór fram.
Þetta er snilldar aðferð.
Nú eru það kjúklingabringur sem verða prófaðar. Bara gaman á næturvakt.
Með vinsemd og virðingu
Rúnar
Á flöskum allt frá ljúfum lagerum til rífandi RIS
Prófaði þetta í gær og hér eftir verðu allavega nautasteikin elduð svona... Án ef besta steik sem ég hef smakkað!
Á flösku: Sindness (Guinness clone), Hvítvín & Rauðvín
Á kút: #Yolo v3.5 Imperial stout með eik og koníaki
Í gerjun: Ekkert.....
To do: Alltof mikið.....