Page 1 of 1

Hversu stór pottur

Posted: 17. May 2009 12:56
by Hjalti
Ég hef verið að pæla í að koma mér út í all-grain allavega seinna í sumar þegar ég kem aftur úr fríi.

Mín pæling er þessi.

Mig langar að brugga 20-25L af bjór / skipti, ekki mikið meira en það allavega og ekki mikið minna.

Hversu stórt Meskiker þarf ég?

Hversu stóran pott þarf ég?

Ég á í augnablikinu kælibox sem ég ætlaði mér að nota sem meskiker. Er ekki alveg 100% hvað það er stórt en ég held að það sé 24L.

Stæðsti potturinn minn í augnablikinu er 8.5L en ég er í smá vandræðum að finna almennilegan pott sem virkar á spanhellu (það er eina hellan mín hérna heima)

Er sniðugt að versla pott að utan?

Hvaða hitamæla notið þið? Ég keypti einn í IKEA um daginn sem var flottur en hætti að virka eftir 75% af fyrstu bruggun :) Er með einn úr gleri úr Europris en mér leiðist hann soldið...

Öll hjálp vel þeginn og allt álit :)

Re: Hversu stór pottur

Posted: 17. May 2009 13:21
by Eyvindur
24l meskiker dugar þannig lagað, en gæti verið of lítið fyrir stærri bjóra. Ég setti reiknivél í tenglaþráðinn þar sem þú getur reiknað út hversu stórt meskiker þú þarft miðað við magn korns og þykkt meskingar. Þú getur kíkt á það.

Ég myndi kaupa sem stærstan pott, ef ég væri þú. Í augnablikinu langar þig ekki að gera stærri laganir en 25l, en það gæti breyst, og þá áttu eftir að vera á bömmer yfir því að hafa ekki keypt stærri pott fyrir það fyrsta. Ég get ekki ímyndað mér að kostnaður muni gríðarlega miklu, og þú tapar engu á að vera með stærri pott (nema geymsluplássi). Ef þú ert hins vegar staðráðinn í að vera með minni pott myndi ég ráðleggja þér að kaupa pott sem er lágmark 8-10l stærri en það sem þú ætlar að sjóða. Það fer eftir ummáli pottsins, en það má vænta þess að uppgufunin við klukkutíma suðu sé 4-6l, og svo verður auðvitað að vera pláss fyrir froðu og slíkt... Ég fæ alltaf 40l pottinn hans Úlfars lánaðan, sem er mjög þægilegt, því það er nóg pláss í honum. Mér tókst samt næstum að láta sjóða upp úr um daginn. Ef þú ætlar að gera 25l myndi ég velja 35-40l pott... Jafnvel stærri, eins og ég sagði áðan...

Re: Hversu stór pottur

Posted: 18. May 2009 08:16
by Stulli
Einsog Eyvindur sagði, því stærra því betra.

Kæliboxið ætti auðveldlega að duga í 20L af bjórum upp í að amk. 1.065, en fer eftir hversu þykkt þú vilt meskja, en meskikör eru oft minni heldur en suðukatlarnir, líka í stórum brugghúsum. Miðað við alla "vinnuna" og "vesenið" sem að all-grain hefur í för með sér ætti maður ekki að leggja í minna en 20L eftir hverja suðu. Því þarf stóran pott til að gera ráð fyrir uppgufun og passa að það sjóði ekki yfir. Ég hef alltaf notað 40L pott, og passar það fullkomlega fyrir suður sem að enda í 20L. Ég sýð reyndar í 90 mín, og er með góða uppgufun (8-10L á klst), þannig að ég þarf 30-35L af virti sem að sjóða niður í 20L. Ef að maður ætlar að leggja út fyrir þessu á annað borð myndi ég hiklaust mæla með amk 40 L potti.

Re: Hversu stór pottur

Posted: 18. May 2009 09:04
by Hjalti
Þá spyr ég. Hvernig nálgast maður 40L pott sem virkar á spanhellu :)

Re: Hversu stór pottur

Posted: 18. May 2009 09:06
by Oli
Eru þið allir að sjóða virtinn á rafmagnseldavélinni heima eða er einhver með gasbrennara?

Re: Hversu stór pottur

Posted: 18. May 2009 09:46
by Eyvindur
Hjalti: Potturinn hans Úlfars virkar á spanhellu. Hann er úr Bakó.

Óli: Ég held að Stulli sé sá eini sem notar gas, allavega sem ég veit um. Ég nota helluborð með tveimur hellum, 3500W. Virkar stórvel, suðan kemur upp á skikkanlegum tíma. Ég nota reyndar staka spanhellu til að hitta sparge vatn.

Re: Hversu stór pottur

Posted: 18. May 2009 23:54
by Andri
Ætti að geta reddað þér nýjum 34 lítra ss potti fyrir spanhellu, minnir að hann var á einhvern 15 þús kall.
hæð 35, diameter 35 & held að hann var 33,6l

Re: Hversu stór pottur

Posted: 18. May 2009 23:55
by Hjalti
Skal taka því tilboði hjá þér!

Re: Hversu stór pottur

Posted: 19. May 2009 00:57
by Andri
ekki beint hjá mér ;) þekki einn sölumann ég hugsa að ég taki þá örugglega 2, einn fyrir mig og einn fyrir þig. efast um að ég fái fleiri á þessu verði

Re: Hversu stór pottur

Posted: 19. May 2009 11:46
by Oli
Hjalti, ég er að spá í að fá mér einn sem er 36 lítra, fastus.is er að bjóða stálpott fyrir spanhellu á 16.800 m/vsk. Spurning um að fá 2 stk og reyna að fá lækkað verð? Þeir voru með notaða 40 ltr potta á tæpan 8 þús kall en þeir voru víst allir seldir.

Re: Hversu stór pottur

Posted: 19. May 2009 12:00
by Andri
Það voru notaðir pottar held ég, ég var að skoða þetta hjá þeim

Re: Hversu stór pottur

Posted: 8. Dec 2010 12:07
by addi31
Héra eru pottarnir sem Fastus er með.
http://fastus.is/forsida/vorulisti/nana ... k_220=1286

Re: Hversu stór pottur

Posted: 8. Dec 2010 13:47
by sigurdur
Ég var einmitt að kaupa mér 21 lítra pott fyrir hangikjötssuðu, ostagerð og bjóruppskriftatilraunir frá fastus .. kostaði ~15 þúsund með loki