Page 1 of 1

þrúgusykur ??

Posted: 30. Mar 2010 12:36
by Hafanna
Sælir.
Ég er að spá í hvort þrúgusykur og ávaxtaskykur það sama ?
(spyr sá sem ekki veit :D )
kv Hafanna.

Re: þrúgusykur ??

Posted: 30. Mar 2010 14:32
by Oli
Nei það er ekki það sama, mismunandi sykrur, þrúgusykur er glúkósi en ávaxtasykur er frúktósi. Nota google! ;)

Re: þrúgusykur ??

Posted: 30. Mar 2010 15:18
by BeerMeph
Ég myndi samt halda að það væri mjög lítill munur að nota ávaxtasykur(frúktósa) eða þrúgusykur(glúkósa), þetta er næstum sama fyrirbærið fyrir gerið.

Mér skilst samt að frúktósi geymist ekki eins vel.

Re: þrúgusykur ??

Posted: 30. Mar 2010 15:55
by Oli
Skiptir kannski ekki öllu máli fyrir gerið nei, en mismunandi sykrur í gerjun gefa mismunandi útkomu.
Meginmálið að mínu mati er að nota alls ekki mikið magn glúkósa eða frúktósa til að gerja bjór, útkoman verður ekki góð, sbr. bjórkitt úr víngerðarverslunum.

Re: þrúgusykur ??

Posted: 30. Mar 2010 17:08
by BeerMeph
Já það gæti verið en mér finnst það voðalega skrýtið ef það gerist þar sem þessar tvær sykrur enda á nákvæmlega sama stað í sykurrofi án mismunandi byproducta.

Hefur kannski óbein áhrif á gerið þar sem það er örlítið lengra ferlið fyrir notkun glúkósa en frúktósa þar sem gerið er svo lítið fyrirbæri.

Re: þrúgusykur ??

Posted: 30. Mar 2010 18:12
by Oli
BeerMeph wrote:Já það gæti verið en mér finnst það voðalega skrýtið ef það gerist þar sem þessar tvær sykrur enda á nákvæmlega sama stað í sykurrofi án mismunandi byproducta.

Hefur kannski óbein áhrif á gerið þar sem það er örlítið lengra ferlið fyrir notkun glúkósa en frúktósa þar sem gerið er svo lítið fyrirbæri.
þetta er nú kannski off topic
Ölger gerjar glúkósa er hraðar en frúktósa samkvæmt því sem ég hef lesið, ölgerið velur frekar glúkósa vegna auðveldara sykurrofs og þá finnst manni líklegt að aukaafurðir gerjunarinnar verði í mismunandi magni.

Re: þrúgusykur ??

Posted: 30. Mar 2010 21:29
by Eyvindur
Verð samt að taka fram að einfaldar sykrur eru nauðsynlegar í suma bjórstíla, aðallega þá belgísku, og eru þá jafnvel notaðir í töluverðum mæli (uppskrift Jamil að Belgian Strong Golden er t.d. með um 26% sykri).

Re: þrúgusykur ??

Posted: 31. Mar 2010 19:08
by BeerMeph
Oli wrote:
BeerMeph wrote:Já það gæti verið en mér finnst það voðalega skrýtið ef það gerist þar sem þessar tvær sykrur enda á nákvæmlega sama stað í sykurrofi án mismunandi byproducta.

Hefur kannski óbein áhrif á gerið þar sem það er örlítið lengra ferlið fyrir notkun glúkósa en frúktósa þar sem gerið er svo lítið fyrirbæri.
þetta er nú kannski off topic
Ölger gerjar glúkósa er hraðar en frúktósa samkvæmt því sem ég hef lesið, ölgerið velur frekar glúkósa vegna auðveldara sykurrofs og þá finnst manni líklegt að aukaafurðir gerjunarinnar verði í mismunandi magni.
Já þetta verður kannski rannsóknarefni hjá manni í framtíðinni!