Page 1 of 1

Keppnisform, uppkast

Posted: 26. Mar 2010 15:24
by kristfin
hér er hugmynd að keppnisformi.
ég hannaði grafíkina sjálfur, hvorki meira né minna.
af hverju má ég ekki adda pdf skrám hér?

http://obak.info/misc/bruggkeppni%20%C3 ... 202010.pdf" onclick="window.open(this.href);return false;

Re: Keppnisform, uppkast

Posted: 26. Mar 2010 15:58
by Idle
Þetta er nokkuð gott, að undanskildum ritvillum. Nú ættirðu hinsvegar að geta hlaðið upp PDF skjölum. :)

Re: Keppnisform, uppkast

Posted: 26. Mar 2010 19:49
by sigurdur
Af hverju mega dómarar ekki fá að vita hvort að bjór sé reyktur eða kryddaður? Mér þætti það lykilupplýsingar fyrir dómara ..

Reyndar þykir mér að dómarar mættu bara sjá part C en ekki A og B

Re: Keppnisform, uppkast

Posted: 26. Mar 2010 21:49
by arnarb
Sælir.
Þetta lítur ágætlega út. Við ræddum um að dómarar ættu ekki að sjá allar upplýsingarnar um bjórinn, þe OG, FG o.sfrv.

Hinsvegar þurfa þeir að vita áfengisprósentuna, eða amk hvort bjórinn tilheyrir undir 6,5 eða yfir 6,5% flokknum. Persónulega finnst mér nóg að dómararnir sjái hvaða stíl bjór tilheyrir og áfengisprósentuna.

Ég legg til að við höfum keppnisreglurnar á sérblaði (sem keppandi fær). Á keppniseyðublaðinu eru 3 flokkar:

A) upplýsingar um keppanda + keppnisnúmer

B) Upplýsingar um bjór

C) upplýsingar sem dómarar sjá um bjórinn

Þannig er hægt að klippa C hlutann af og setja með bjórnum. Til þess að það sé hægt þarf að bæta við keppnisnúmerinu í C.

Re: Keppnisform, uppkast

Posted: 26. Mar 2010 22:06
by kristfin
ég skoða þetta betur á morgun. ég tók bara upplýsingarnar frá valla og setti inn.

grafíkin er flott maður

Re: Keppnisform, uppkast

Posted: 27. Mar 2010 13:34
by sigurdur
Var ég á einhverjum öðrum fundi?
Dómarar ÞURFA að vita upplýsingar um krydd/reyk í það allra minnsta!!

Re: Keppnisform, uppkast

Posted: 27. Mar 2010 13:45
by Idle
sigurdur wrote:Var ég á einhverjum öðrum fundi?
Dómarar ÞURFA að vita upplýsingar um krydd/reyk í það allra minnsta!!
Ég veit ekkert um það, þar sem ég mætti ekki á fundinn. Hinsvegar stemmir það sem Kristján segir og skrifar við það sem Valli sagði mér - dómarar fá að vita um stíl og áfengisinnihald, hvorki meira né minna.

Re: Keppnisform, uppkast

Posted: 27. Mar 2010 14:34
by sigurdur
Jæja, ef dómararnir ætla ekki að raða eftir kryddi/reyk þá er það þeirra. Mér þætti það bara ekki sanngjarnt ef að ég myndi senda inn kryddaðan eða reyktan bjór vitandi það að bjórunum væri ekki raðað samkvæmt.
Það verður þá að láta keppendur vita af því að góðar líkur séu á því að reyktir eða kryddaðir bjórar verða ekki dæmdir eins sanngjarnlega.

Ég get sett þetta í annað samhengi;
Ef að bjór keppenda A, sem að er t.d. létthumlaður en þó með sínum humlakarakter er dæmdur á eftir bjór keppanda B sem að er einhver hrikalegur IPA, þá skekkist matið á bjór keppanda A allsvakalega. Ekki satt?
Er það sanngjarnt?

Re: Keppnisform, uppkast

Posted: 27. Mar 2010 14:56
by Idle
sigurdur wrote:Jæja, ef dómararnir ætla ekki að raða eftir kryddi/reyk þá er það þeirra. Mér þætti það bara ekki sanngjarnt ef að ég myndi senda inn kryddaðan eða reyktan bjór vitandi það að bjórunum væri ekki raðað samkvæmt.
Það verður þá að láta keppendur vita af því að góðar líkur séu á því að reyktir eða kryddaðir bjórar verða ekki dæmdir eins sanngjarnlega.

Ég get sett þetta í annað samhengi;
Ef að bjór keppenda A, sem að er t.d. létthumlaður en þó með sínum humlakarakter er dæmdur á eftir bjór keppanda B sem að er einhver hrikalegur IPA, þá skekkist matið á bjór keppanda A allsvakalega. Ekki satt?
Er það sanngjarnt?
Ég vísa í póst Valla:
Keppt í tveimur flokkum:
A: Áfengisprósenta undir 6.5%.
B: Áfengisprósenta 6,5% og yfir.
Áfengismagnið ræður för í þetta sinn. Vel skiljanlegt að mínu mati. Síðar, þegar fleiri eru komnir vel af stað, mætti skipta þessu frekar niður. Á þennan hátt má reikna með meiri og jafnari þáttöku (hvað ef 10 af 10 keppendum berðust um APA, ESB, Hefeweizen, Porter eða Stout - tveir í hverjum flokki). Einföld og góð lógík.

Re: Keppnisform, uppkast

Posted: 27. Mar 2010 16:17
by Eyvindur
Það ætti að vera merkjanlegt af stílnum hvort búast má við kryddi í bjórnum. Ef þú ert með kryddaðan bjór segirðu væntanlega að þetta sé Specialty flokkur, og bendir á að þetta sé kryddaður X eða Y. Ef þú myndir senda inn kryddað ljósöl og skrifa bara "ljósöl", þá værirðu að setja bjórinn í flokk sem hann passar ekki í. Sanngirnin er algjörlega fólgin í því hvort þú merkir réttan stíl þarna, því þannig vita dómararnir við hverju er að búast. Og væntanlega raða þeir þá smökkuninni upp eftir því.

Re: Keppnisform, uppkast

Posted: 29. Mar 2010 11:07
by kristfin
ég endurraðaði þessu aðeins, bætti við upplýsingum um krydd (eins og valli bað um ) og reyk.
ég er nokkuð sáttur

Re: Keppnisform, uppkast

Posted: 29. Mar 2010 11:14
by kristfin
ég skipti þessu upp
keppnisform og keppnisreglur. set reglurnar í annan þráð

Re: Keppnisform, uppkast

Posted: 29. Mar 2010 11:41
by Valli
Mjög gott, nema sleppa nafn á drykk fyrir dómara þar sem það er óþarfi og jafnvel leiðandi. Setja keppnisnúmer í staðinn upp á rekjaleikann.

Re: Keppnisform, uppkast

Posted: 29. Mar 2010 13:22
by kristfin
ok. uppfærði. eru allir sáttir núna?

Re: Keppnisform, uppkast

Posted: 29. Mar 2010 13:46
by Eyvindur
Endilega breyttu "part" í "hluta". Partur er léleg íslenska.

Annars líst mér vel á þetta.

Re: Keppnisform, uppkast

Posted: 29. Mar 2010 21:43
by sigurdur
Ég sé ekkert athugavert við þetta, mjög flott bara.

Re: Keppnisform, uppkast

Posted: 8. Apr 2010 09:56
by arnarb
Þetta lítur vel út.

Eigum við ekki að setja auglýsingu/könnun á vefinn og gera keppnisformið aðgengilegt?