Page 1 of 1
Man Öl
Posted: 10. Mar 2010 10:18
by kristfin
ég er ekki búinn að brugga í nokkrar vikur. þessi bjór er næstur hjá mér. vantar sárlega ljósan bjór fyrir minna vana

Re: Man Öl
Posted: 15. Mar 2010 15:55
by kristfin
bruggaði þennan á föstudaginn síðasta.
malaði hrísgrjónin í kaffikvörn og sauð þau í potti með helling af vatni. úr þvi varð agalegur grautur. allt loddi saman og var nær vonlaust að hræra. hafðist nú samt og ég hitti á allar tölur.
bragðaðist vel þegar það fór í fötuna. cry havoc gerið var farið að bubbla daginn eftir.
sama hvað manni finnst um þessa ljósu léttu bjóra, þá stoppa þeir allavega stutt við á lagernum hjá mér, meðan ég á nóg af ipa, porter, barley wine og þessum þyngri
Re: Man Öl
Posted: 15. Mar 2010 16:36
by Eyvindur
Hefði ekki verið þægilegra að nota hrísflögur?
Re: Man Öl
Posted: 15. Mar 2010 16:40
by kristfin
örugglega. ég átti þær bara ekki til. einnig á maður að geta notað 5-min rice, en ég fann þau ekki heldur. endaði bara með venjuleg grjón. þetta var nú meira tilraunastarfsemi. get hakað við hrísgrjón núna.
Re: Man Öl
Posted: 15. Mar 2010 16:46
by Eyvindur
Já, það er ekki verra.
Re: Man Öl
Posted: 8. Apr 2010 16:13
by kristfin
þessi fór á flöskur í síðustu viku.
cry havoc gerið þarf hinsvegar lengri tíma eða krasskælingu. er tær núna í flöskunum en soldið botnfall
var að smakka á honum. hann á eftir að vera man-vinsæll
amarillo bragðið er svo skemmtilegt, það breytist svo ört fyrstu vikurnar