Page 1 of 1

Þynna með vatni

Posted: 9. Mar 2010 18:52
by Bjössi
Þegar bjór er of sterkur er eitthvað sem mælir gegn því að þynna út með vatni um leið og blandað er saman með sykri rétt áður en sett er í flöskur?

Re: Þynna með vatni

Posted: 9. Mar 2010 18:58
by sigurdur
Vatnið gæti mögulega valdið einhverri oxun sem að eldir bjórinn hraðar.
Svo er auðvitað einhver örlítill möguleiki á sýkingu, en hæpið þó.

Ég hef stundum sett smá vatn í glas áður en ég helli bjórnum í glasið til að þynna bjórinn ef hann er of sterkur, það væri trúlega betra upp á að halda bjórnum ferskum lengur.

Re: Þynna með vatni

Posted: 9. Mar 2010 19:15
by Eyvindur
Ef þú þarft að þynna bjór vegna þess að hann er of sterkur er betra að gera það fyrir gerjun, einmitt til að forðast oxun. Reyndar gætirðu sloppið við oxunina með því að sjóða vatnið fyrst. En ég myndi samt miklu frekar fylgjast bara vel með OG og þynna hann fyrir gerjun, ef þess þarf með.

Re: Þynna með vatni

Posted: 10. Mar 2010 08:56
by Bjössi
Takk fyrir svörin, ég var að spá í að þinna Tri C. bjórinn eftir þurrhumlun þar sem hann er 6,8%

Re: Þynna með vatni

Posted: 10. Mar 2010 10:49
by Eyvindur
Finnst þér það vera of mikið? Ég myndi bara láta hann standa þannig. Hvað er annars FG?