Page 1 of 1

Stofnun Fágunar

Posted: 9. Mar 2010 15:47
by sigurdur
Það þarf að fara að drífa í því að stofna Fágun sem félag fyrir þessa keppni.
Hvað leggið þið til í þeim málum?

Re: Stofnun Fágunar

Posted: 9. Mar 2010 16:14
by kristfin
eru ekki til einvherjar stofnsamþykktir sem hægt er að fara yfir.
halda síðan aukaaðalfund og stofna félagið formlega.
gætum gert það á aprílmánudagsfundinum

Re: Stofnun Fágunar

Posted: 9. Mar 2010 16:37
by Eyvindur
Ég held að formlegir pappírar, reglur og fundargerð stofnfundar, séu til og meira að segja hér inni á þessu spjalli. Það eina sem á eftir að gera, ef mér skjöplast ekki, er að fá pósthólf, til að vera með hlutlaust heimilisfang, og skila pappírunum inn til RSK.

Re: Stofnun Fágunar

Posted: 9. Mar 2010 17:35
by sigurdur
Mér skildist á Hjalta fyrir skömmu að einhver hluti stjórnar séu orðnir óvirkir og þurfi því að skipa fólk í þau hlutverk sem vantar upp á.

Þá þarf mögulega að halda aðalfund og kjósa/skipa í þessi hlutverk, ekki satt?

Re: Stofnun Fágunar

Posted: 9. Mar 2010 17:40
by Eyvindur
Jú, reyndar.