Page 1 of 1
Glögg Uppskrift
Posted: 14. May 2009 18:22
by Hjalti
Uppskrift fyrir ca. 7L Glögg Uppskrift
5L Jólaöl eða Malt
2.5 kg Sykur
5 Stórar kartöflur
1 pakka Ger (Uppskriftin segir bara "Ger" ekkert hverskonar ger...)
Kanelstöng
2 teskeiðar Engifer
1 pakki kardimommukjarna
1 pakki negull
Blandið öllu saman í 10 Lítra íláti
Geymið í 3-4 vikur þangað til að gerjun hættir (Því lengur sem hún stendur því betra)
Setjið glöggina á flösku
Njótið heitu með rúsinum og möndlum.
Re: Glögg Uppskrift
Posted: 14. May 2009 18:23
by Stulli
Hefurðu prófað þetta Hjalti?
Re: Glögg Uppskrift
Posted: 14. May 2009 18:28
by Hjalti
Hef smakkað þessa uppskrift hjá mömmu en aldrei prufað að gera hana sjálfur.
Re: Glögg Uppskrift
Posted: 14. May 2009 18:32
by Stulli
Þetta lítur nú meira úr fyrir að vera jólabjór, er ekki glögg hitað og bragðbætt vín? Væri auðveldlega hægt að útfæra þessa uppskrift sem all-grain jólabjór. Þú getur etv surpræsað mömmu þína næstu jól

Re: Glögg Uppskrift
Posted: 14. May 2009 18:34
by Hjalti
Hehe, var ekki búinn að pæla í því

Re: Glögg Uppskrift
Posted: 14. May 2009 20:48
by Hjalti
Stulli wrote:Þetta lítur nú meira úr fyrir að vera jólabjór, er ekki glögg hitað og bragðbætt vín? Væri auðveldlega hægt að útfæra þessa uppskrift sem all-grain jólabjór. Þú getur etv surpræsað mömmu þína næstu jól

Ódýr og léleg glögg er hitað og bragðbætt vín. Góð glögg er alltaf saman gerjað dót. Þetta verður frekar rauðleitt allavega ef maður notar sænska Equivalent af Jólaöli/Malti það heitir Svagdricka og er þarna einhverstaðar rétt á milli.
Það er alltaf árleg glögg frá Ríkinnu í svíþjóð sem er alveg frábær, nýtt bragð og ný tegund á hverju ári frá fyrirtækinu "Blossa"
Bara svona fyrir þá sem eru áhugamenn um
góða glögg

Re: Glögg Uppskrift
Posted: 14. May 2009 20:51
by Eyvindur
Bíddu nú við... Glögg er vín, ég get blótað mér upp á það. Sambærilegur drykkur með öli heitir Wassail, og er held ég upprunninn í Póllandi eða Tékklandi (ekki viss...). Svo sem enginn sérfræðingur, en ég hef aldrei heyrt um annað en vín í glögg...
Re: Glögg Uppskrift
Posted: 14. May 2009 20:58
by Hjalti
Glögg hefðin á norðurlöndum er mun eldri en Rauðvínshefðin myndi ég segja....
Mikið algengara myndi ég halda að búa til kartöfluvín eða eithvað svoleiðis...
Re: Glögg Uppskrift
Posted: 14. May 2009 21:07
by Hjalti
Eureka!
Fann þetta út...
http://tinyurl.com/otso6y
Glögg orðið kemur af því að Glóða Spritt
Spritt var lagt í skál og grind fyrir ofan með sykri og kryddi, kveikt var þá í sprittinu og sykurinn bráðnaði með kryddinu og fór ofaní sprittið og þar með kryddaði það áfengið.
Þetta bjó til dökkan drykk sem kryddaður var með því sem var til einfaldlega og blandað út með því sem var til
Some real stuff!
(Tek það fram að þetta er sænska útgáfan af þessu)
Re: Glögg Uppskrift
Posted: 14. May 2009 22:38
by Stulli
Mér datt einmitt fyrst í hug wassail.
Wassail er komið úr forn-germönsku og þýðir í rauninni "vertu heill". Hefur viðhaldist í Englandi sem kryddaður bjór eða mjöður sem er venjulegast drukkinn um vetrarsólstöðuleytið (jól).
Re: Glögg Uppskrift
Posted: 14. May 2009 23:19
by Eyvindur
Einhver sem ég spjallaði við hafði ferðast um annað hvort Tékkland eða Pólland (nú man ég ekkert) í kringum jól og það var allt morandi í þessu þar, sagði hann.
Re: Glögg Uppskrift
Posted: 14. May 2009 23:25
by Stulli
Örrugglega, enda líklegast slatti af forngermönum á þessum svæðum
Re: Glögg Uppskrift
Posted: 15. May 2009 21:18
by Korinna
Eyvindur wrote:Einhver sem ég spjallaði við hafði ferðast um annað hvort Tékkland eða Pólland (nú man ég ekkert) í kringum jól og það var allt morandi í þessu þar, sagði hann.
Þetta á alveg örugglega við um bæði lönd og löndin þar í kring skal ég segja þér

Re: Glögg Uppskrift
Posted: 16. May 2009 00:40
by Eyvindur
Já, ég efast ekki um það... Man bara ekki á hvorum staðnum hann var...