Page 1 of 2
Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 15. Feb 2010 23:39
by Hjalti
Núna fer að styttast í Bjórgerðarkepni Ölvisholts og var ég á smá fundi útaf þessu í kvöld með bruggmeistara Ölvisholts, honum Valgeiri.
Við stefnum gríðarlega hátt í þessu og til þess að þetta gangi upp þá þurfum við sem allra mesta þáttöku.
Það sem ég myndi vilja til að byrja með er einhverskonar skipulagsráð.
Eru einhverjir sem að bjóða sig fram í þetta ráð til þess að hjálpa mér og Valgeiri að skipuleggja og sjá um verkefnið?
Öll hjálp er mjög vel þeginn!
Þeir sem hafa tök á að bjarga einhverjum sal sem er með vínveitingaleyfi eru sérstaklega kallaðir í þetta ráð til þess að halda kostnaði í lágmarki.
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 15. Feb 2010 23:41
by Völundur
Æðislegt. Láttu vita Hjalti ef ég get plöggað eitthvað fyrir þig á fjölmiðlunum eða þannig. Verðum að koma þessu í hámæli ef þið viljið.
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 15. Feb 2010 23:44
by Hjalti
Skal hafa það bakvið eyrað þegar skipulag hefst á þessu. Þurfum að koma þessu mjög vel til skila.
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 15. Feb 2010 23:46
by hordurg
Völundur wrote:Verðum að koma þessu í hámæli ef þið viljið.
Með ríkisstjórnina sem við höfum í dag held ég að það sé ekkert mjög sniðugt,, sérstaklega ekki eftir að þeir föttuðu að þeir fengu minna í kassan þrátt fyrir gífurlegar áfengisgjaldahækkanir
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 15. Feb 2010 23:49
by Hjalti
Skulum halda þessari umræðu tengda aðstoð við keppnina.
Það getur mjög vel verið að athygli sé mjög sniðug fyrir þetta þar sem að það gæti verið ákveðið baráttumál fyrir þetta félag.
Endilega látið mig vita ef þið viljið aðstoða við skipulagningu á þessu.
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 16. Feb 2010 00:28
by sigurdur
Ég skal bjóða fram mína aðstoð.
Eina krafan sem að ég geri er sú að fundir verði skipulagðir eitthvað fyrirfram.
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 16. Feb 2010 00:40
by Hjalti
Frábært, að sjálfsögðu verða fundir vel undirbúnir

Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 16. Feb 2010 09:04
by kristfin
ég er til í að aðstoða. ég held ég geti samt ekki reddað sal.
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 16. Feb 2010 09:47
by Eyvindur
Ég þekki ekkert til salamála, en ég vil endilega hjálpa eins og tími og aðstæður leyfa.
Er ekki í öllu falli plan B að við sláum bara saman í sal?
Annað: Er ekki núna orðið morgunljóst að félagið verður að vera formlega stofnað? Við erum hér að fara út í hluti sem velta peningum (það verður kostnaður og það verður þátttökukostnaður og aðgangseyrir). Þá gengur ekkert annað.
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 16. Feb 2010 10:34
by hrafnkell
Tjah er þetta ekki bjórgerðarkeppni ölvisholts? Ekki Fágunar, nema þá væntanlega með aðstoð frá Fágun.
Ef það er þörf fyrir tölvu/tækjanörd þá get ég hugsanlega eitthvað hjálpað.
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 16. Feb 2010 10:51
by aki
Býð hér með fram krafta mína ef þeir geta nýst eitthvað.
Veit ekki með sal, en það verður kannski komið nógu gott veður til að nota veislutjaldið sem borgin leigir stundum út í Nauthólsvík
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 16. Feb 2010 11:15
by Eyvindur
Það er ekki vínveitingaleyfi í veislutjaldi.
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 16. Feb 2010 15:55
by Erlendur
Þarf ekki að hafa leyfi til þess að framleiða áfengi? Ég get allavega ekki séð að undanþágur séu gerðar frá 6. gr. áfengislaga nr. 75/1998, þ.a. væntanlega ætti ekki að "koma þessu í hámæli".
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 16. Feb 2010 16:00
by sigurdur
Erlendur wrote:Þarf ekki að hafa leyfi til þess að framleiða áfengi? Ég get allavega ekki séð að undanþágur séu gerðar frá 6. gr. áfengislaga nr. 75/1998, þ.a. væntanlega ætti ekki að "koma þessu í hámæli".
Vanalega ætti maður að hafa áhyggjur af því, en hinsvegar þá heldur Ölvisholt þessa keppni og samkvæmt lögfræðingi Ölvisholts þá þurfum við ekki að hafa neinar áhyggjur. (Upplýsingar sem að voru miðlaðar að mig minnir á febrúarfundi Fágunar)
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 16. Feb 2010 16:29
by Hjalti
Við keyrum á það að það sé nóg að Ölvisholt sem er með framleiðsluleyfið standi fyrir kepnini.
Þeir selja svo sína vöru og þar með þurfum við vínveitingaleyfi á staðnum líka.
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 16. Feb 2010 19:17
by dax
Einhver borgar þá áfengisskattinn af þeim heimagerða bjór sem þarna keppir, eða hvað?
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 16. Feb 2010 19:54
by Eyvindur
Það þarf varla að borga skatt þegar um vörukynningu er að ræða, er það?
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 16. Feb 2010 19:56
by Hjalti
Einhverjir fleiri en Kristján og Sigurður sem vilja vera memm að skipuleggja þetta?
Endilega skellið upp nýjum þræði til að ræða lögmæti kepninar og lög tengd henni. Þörf umræða en endilega halda henni úr þessum þræði

Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 16. Feb 2010 20:22
by hordurg
Hjalti wrote:Einhverjir fleiri en Kristján og Sigurður sem vilja vera memm að skipuleggja þetta?
Endilega skellið upp nýjum þræði til að ræða lögmæti kepninar og lög tengd henni. Þörf umræða en endilega halda henni úr þessum þræði

Myndi allveg gjarnan vilja það svo það sé á hreinu, en held ég geti bara ekki tekið það af mér því frítíminn minn er af mjög skornum skammti vegna skóli+vinna og reyna að troða einni og einni lögn í þar á milli.
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 16. Feb 2010 21:55
by Bjössi
Ef vantar hjálp við eitthvað, þá er ég reiðubúinn að aðstoða eins og þarf
annars hef ég engar áhyggjur af löglega þættinum, ef ólöglegt; þá er bara gaman að ögra þessum lögum sem að mínu mati eru nokkuð "út úr kú" s.s. hver fja....er að því að brugga bjór fyrir sjálfan sig?
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 17. Feb 2010 10:25
by arnarb
Sæll.
Ég er til í að aðstoða.
Ég skal athuga með sal, gæti mögulega fengið ódýra aðstöðu. Hvaða stærð er verið að tala um og hvaða aðstaða þarf að vera til staðar?
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 17. Feb 2010 11:31
by Hjalti
Eina sem verður í raun að vera til staðar er vínveitingaleyfi og pláss fyrir 50+

Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 18. Feb 2010 03:02
by Fjallagerill
Sælir spegúlantar

Því miður verður þetta að vera ólögleg keppni samkvæmt núgildandi lögum nema að allir ætli að brugga að 2,25% sýnist mér en það verður að byrja einhverstaðar

Svo getur verið að einhver vilji gerast ábyrgur fyrir brugguðum bjór og hugsanlega láta reyna á lögin

En í guðana bænum verum þá ekki nálægt Selfossi þar

sem þar er fjölmiðlasjúkur sýrslumaður sem myndi gera allt til í að gera mat úr því að gera nokkra heimabruggaða bjóra upptæka. P.s hjá mér er nóg pláss ef þið viljið fara með þetta útfyrir RVK.

Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 18. Feb 2010 09:18
by Eyvindur
ÖB tekur ábyrgð á keppninni.
Re: Bjórgerðarkeppni Ölvisholts
Posted: 18. Feb 2010 23:25
by Andri
Spurning um að búa til wort skella því í tunnur. Skutla þessu svo upp í Ölvisholt og skella geri út í ef þið viljið vera hundrað prósent með það að brjóta engin lög?
Annars get ég tekið einhverjar fötur/carboy í fóstur.