Page 1 of 1
Samuel Adams, Dark Lager
Posted: 5. Feb 2010 18:37
by Bjössi
ég er að spá undir hvaða stíl þessi bjór er?
hefur einhver hugmynd?
Re: Samuel Adams, Dark Lager
Posted: 5. Feb 2010 19:30
by hrafnkell
Schwarzbier?
http://beeradvocate.com/beer/profile/35/21300/" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Samuel Adams, Dark Lager
Posted: 5. Feb 2010 20:31
by halldor
Eða kannski:
http://www.bjcp.org/2008styles/style04.php#1a" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Samuel Adams, Dark Lager
Posted: 5. Feb 2010 22:14
by Eyvindur
Eins og margir bjórar frá SA passar Black Lager ekki alveg inn í neinn stíl, held ég. Hann er schwartzbier, en þó mun ristaðari en þeir eru vanalega. Um bæði schwartzbier og american dark lager gildir að liturinn á að vera mjög dökkur en lítið ristað bragð (þess vegna er jafnan notað afbitrað svart malt eða jafnvel litarefni). Þetta gildir hins vegar ekki um þennan.
Þetta er einn af mínum uppáhalds bjórum, og þegar ég kem lageringaraðstöðunni í gang stendur til að gera nett ristaðan schwartzbier, innblásinn af SA BL.
Re: Samuel Adams, Dark Lager
Posted: 5. Feb 2010 22:32
by Bjössi
Takk fyrir svörinn strákar,
ég smakkaði þenna í fyrsta skiptið í gær, og já held að þessi sé svona í topp 5 sætum yfir besta bjór sem ég hef smakkað, fór að fikta á beersmith, en var/er alveg kaldur hvaða stíll þetta er,
jæja, sjámust á mogun
Re: Samuel Adams, Dark Lager
Posted: 5. Feb 2010 22:47
by Eyvindur
Eftir smá rannsóknarvinnu hugsa ég að það verði lítið mál að gera svipaðan bjór. Pilsner eða Pale Ale malt í grunninn, 5% CaraMunich og 5-10% Carafa Special. Einhverjir hlutlausir beiskjuhumlar og einhverjir góðir göfughumlar í lokin. Ætti að vera ljúft.
Re: Samuel Adams, Dark Lager
Posted: 5. Feb 2010 23:12
by arnilong
Er ekki verið að ræða um Black Lager frá Sam Adams? Dark Lager, er það til?
Dark Lager frá Samuel Adams þykir að minnsta kosti nægilega klassískur sem þýskur Schwarzbier að mati World Beer Cup 2008, vann til verðlauna þar.
Sjálfur hef ég ekki mikið að miða við, ég smakkaði hann og fannst mjög fínn. Hinn Schwarzbier bjórinn sem ég hef smakkað er Köstritzer og ég er mjög hrifinn af honum, enda einn af þeim bjórum sem upplýstu mig bjórlega séð. Komst að því að Köstritzer fæst í gleri á bar í miðbænum, á Zimsen.
Re: Samuel Adams, Dark Lager
Posted: 5. Feb 2010 23:18
by halldor
Ég áttaði mig ekki á að það væri verið að tala um Sam Adams Black Lager. Ég hélt að þetta væri enn einn snilldar Sam Adams bjórinn og giskaði á stíl út frá nafninu einu saman

Re: Samuel Adams, Dark Lager
Posted: 5. Feb 2010 23:19
by Eyvindur
Gúggl leiðir í ljós að það er ekkert til sem heitir Sam Adams Dark Lager...
Ég hef reyndar ekkert að miða við, þar sem ég hef bara smakkað Sam Adams. En miðað við lýsingarnar á stílnum virðist þetta ekki alveg passa inn í.
Re: Samuel Adams, Dark Lager
Posted: 6. Feb 2010 09:42
by halldor
arnilong wrote:Komst að því að Köstritzer fæst í gleri á bar í miðbænum, á Zimsen.
Ég fæ alltaf fiðring þegar ég frétti af bjór á Íslandi sem ég hef ekki smakkað. Ég ætla að kíkja þangað við tækifæri.
En jú Black Lager frá Sam Adams er pottþétt Schwarzbier, BJCP tiltaka hann meira að segja sem commercial example af stílnum :
http://www.bjcp.org/2008styles/style04.php#1c" onclick="window.open(this.href);return false;