Page 1 of 1
AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 3. Feb 2010 15:09
by Erlendur
Þó að afrakstur fyrstu AG tilraunar minnar sé ekki enn farin að gerjast (sjá viðkomandi þráð) er ég byrjaður að huga að þeim næsta. Ég er spenntur fyrir því að gera hveitibjór úr þeim hráefnum sem Ölvisholt hefur upp á að bjóða.
Ég las í gegnum þráðinn "Fyrsti hveitibjórinn" eftir "Idle" áhugaverðar upplýsingar þar á ferð. Ég er að hugsa um að hafa hlutföllin 50/50 hveitimalt og Pilsner eða Pale malt, hvorri tegundinni mælið þið með? Er e-ð vit í því að nota hveitiklíð til að koma í vega fyrir stuck sparge eða kannski bara vona það besta, meskikerið mitt er kælibox með klósettbarka.
Reyndar á ég ekki ger sem hæfir stílnum, ef einhver getur selt mér slíkt má viðkomandi láta mig vita! Gæti það ekki komið ágætlega út að nota venjulegt ölger, ég mun allavega eiga afgang af maltinu til að brugga hveitibjór með hefðbundnu geri síðar.
Annað atriði, ætti ég að hafa áhyggjur af pH gildinu? Hvernig er best að stjórna því?
Re: AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 3. Feb 2010 15:20
by Eyvindur
Ég las einhvers staðar að hveitiklíð gæfi óbragð af sér. Það hljómar sennilega, fyrst vanalega eru notuð hrísgrjónahýði til að passa að skolunin stíflist ekki. En menn hafa verið að meskja með allt uppundir 60% hveiti án teljandi vandræða, þannig að ég myndi nú ekki hafa miklar áhyggjur. Bara blása inn í slönguna ef allt stíflast, það virkar stórvel.
Ef þú notar venjulegt ölger færðu eflaust fínan bjór, en þú færð lítinn sem engan hveitibjórskarakter. Hvort sem um ræðir þýskan hveitibjór (weizen) eða belgískan (wit) kemur megnið af karakternum úr gerinu. Þegar þurrger er annars vegar er WB-06 æðislegt í weizen og mér skilst (hef ekki prófað það ennþá) að T-58 sé snilld í wit (reyndar þekki ég einn úti sem finnst það langbesta wit gerið, og hefur hann þó ótakmarkaðan aðgang að fljótandi geri). Ég myndi sjálfur ekki nenna að hafa fyrir því að gera bjór með svona miklu hveiti nema hafa rétt ger til starfans.
Það er verra ef pH gildið er allt of hátt (reyndar minna áhyggjuefni í svona lítið humluðum stíl, en samt ekki gott). Ég henti bara dass af gipsi út í meskinguna þegar ég gerði minn hveitibjór. Fyrsta smökkun úr fötunni gefur til kynna að hann sé einstaklega ljúffengur.
Re: AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 3. Feb 2010 20:25
by hrafnkell
Ég var með 80 eða 90% hveiti í mínum hveitibjór og notaði Wb-06, það kom ágætlega út.
Ég er líka með kælibox og klósettbarka og stuck sparge var ekkert vandamál, það lak frekar hægt af korninu en annað var það ekki.
Re: AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 7. Feb 2010 00:25
by arnilong
Ég hef notað hefðbundið wit-ger í belgísku hveitibjórana mína og prófaði eitt sinn T-58 og hef ekki notað neitt annað síðan(hagkvæmt og alltaf til í ísskápnum). Ég hef ekki heyrt um neinn sem hefur gert wit með T-58 og ekki fundist hann algjörlega sambærilegur í karakter og hveitibjór gerður með wit-geri.
Re: AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 23. Feb 2010 11:54
by Erlendur
Ég stefni að því að gera tvöfalda lögn og langar að gerja annan helminginn með WB-06 geri og hinn með T-58.
Þann helming sem ég gerja með T-58 gerinu langar mig að krydda, helst með kóríander og sítrónu/appelsínu. Ég get ekki soðið aukaefnin með virtinum þar sem ég vil hafa þann helming sem gerjaður verður með WB-06 ókryddaðan. Hvernig er best að bera sig að, kæmi það illa út að krydda í primary og setja beint á flöskur, væri betra að setja á secondary til að krydda?
Enn er áætlað að notast við 50/50 Wheat malt og Pilsner malt. BeerSmith segir að venjan sé að nota ómaltað hveiti í Witbier en það er ekki í boði þetta skiptið. Þar segir líka notast eigi við Pale Malt, er kannski ráð að skipta Pilsner maltinu út fyrir Pale malt? Ég stefni á 15 IBU sem eru efri mörk þýska stílsins en neðri mörk þess belgíska.
Er ekki rétt hjá mér að 10 dagar séu hæfilegur gerjunartími fyrir þessa bjóra?
Re: AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 23. Feb 2010 13:21
by Eyvindur
Ég myndi persónulega ekki krydda bjórinn. Bæði gefur T-58 svo skemmtilegan kryddkarakter eitt og sér, og svo myndirðu ekki finna muninn á milli gerafbrigða nógu vel ef þú færir að bæta einhverju auka út í. En ef þú vilt það endilega myndi ég gera vodkaextract og bæta út í eftir smekk áður en þú tappar.
Tíu dagar ættu að vera feykinóg. Byrjaðu bara eftir viku að taka mælingar, og ef gravity er stöðugt í þrjá daga, smelltu þessu þá á flöskur.
Re: AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 23. Feb 2010 14:29
by Erlendur
Eyvindur wrote:Ég myndi persónulega ekki krydda bjórinn. Bæði gefur T-58 svo skemmtilegan kryddkarakter eitt og sér, og svo myndirðu ekki finna muninn á milli gerafbrigða nógu vel ef þú færir að bæta einhverju auka út í. En ef þú vilt það endilega myndi ég gera vodkaextract og bæta út í eftir smekk áður en þú tappar.
Tíu dagar ættu að vera feykinóg. Byrjaðu bara eftir viku að taka mælingar, og ef gravity er stöðugt í þrjá daga, smelltu þessu þá á flöskur.
Takk fyrir þessa ábendingu! Læt kryddið líklega vera þetta skiptið.
Einhver sem hefur skoðun á Pilsner vs. Pale malt, eða aðrar ábendingar? Ég mun líklega henda smá gipsi með í meskinguna.
Re: AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 23. Feb 2010 14:31
by Eyvindur
Það hæfir stílnum víst betur að nota pilsner malt, en hvort sem þú notar verður þetta gott.
Re: AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 23. Feb 2010 19:30
by ulfar
Mill heilræði væri þetta: ,,Gangtu hægt um humlana hlið þegar þú gerir hveitibjór." Ég gerði einn sem var með 45 gr @ 6% alpha í 50 ltr (15 IBU) Mátti ekki vera meira.
Re: AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 8. Mar 2010 12:16
by Erlendur
Nú styttist í að þessir tveir fari á flösku, helmingur gerjaður með WB-06 og hinn með T-58.
Ég vil kalla þann sem gerjaður er með WB-06 hefðbundinn þýskan hveitibjór en hinn Witbier. Beersmith segir mér að hefðbundið kolsýrumagn þýska stílsins (15A Weizen/Weissbier) sé 2,5-2,9 volumes. Þetta kemur mér á óvart þar sem Beersmith segir að hefðbundið kolsýrumagn í amerísku ljósöli sé 2,3-2,8 og ég hélt að þýskur hveitibjór ætti að vera vel kolsýrður og þá meira kolsýrður en t.d. amerískt ljósöl. Skv. Beersmith er hefðbundið kolsýrumagn fyrir Witbier (19B) á bilinu 2,1-2,7, ég býst við að þær tölur séu réttar.
Stemma tölurnar í Beersmith? Hvaða kolsýrumagni ætti ég að stefna að?
Re: AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 8. Mar 2010 13:08
by kalli
Samkvæmt þessum þræði (
http://www.beersmith.com/forum/index.ph ... 4.msg13220" onclick="window.open(this.href);return false;) er þetta villa í BeerSmith og ætti að vera 3.6 - 4.5. Ég datt í þessa gildru. Það verður ekki eins spennandi að smakka fyrstu hveitibjórs lögnina mína síðar í vikunni.
Re: AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 8. Mar 2010 14:01
by Eyvindur
Athugaðu þó að það borgar sig að vera með mjög sterkar flöskur þegar kolsýran er orðin svona mikil. Flöskusprengjur geta verið lífshættulegar.
Re: AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 8. Mar 2010 14:07
by kalli
Eru skilaflöskurnar frá Ölvisholti nógu sterkar? Hvernig veit maður hvort flöskurnar séu nógu sterkar?
Re: AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 8. Mar 2010 14:11
by Eyvindur
Ég myndi hika við að nota ÖB flöskur fyrir svona mikið kolsýrðan bjór. Ég myndi eingöngu nota flöskur undan flöskuþroskuðum bjór, helst hveitibjór. Maður sér það á því hvað glerið er þykkt. Erdinger flöskurnar eru til dæmis mjög fínar, sem og Fuller's.
Re: AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 8. Mar 2010 14:41
by Erlendur
Meirihluti minna flaskna kemur frá ÖB, hversu mikla kolsýru ætti ég að hætta mér í?
Re: AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 9. Mar 2010 20:34
by arnilong
Vissulega ætti maður að hafa varann á varðandi of háa kolsýru og ég hef oft lesið einhverjar hryllingssögur á spjallsvæðum. Hinsvegar hef ég sett hveitibjórana mína á 4.5 og hef þá notað venjulegar flöskur líka, ekkert vandamál þar(7, 9, 13). Það er að minnsta kosti mikilvægt að bjórinn eigi ekki neinn gerjanlegan sykur eftir fyrir átöppun.
Re: AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 9. Mar 2010 21:09
by Eyvindur
Já, ég vil svosem ekki vera að gera einhverja grýlu úr þessu, en ég er bara sjálfur skíthræddur við glerbrot og finnst aldrei of varlega farið.
Re: AG nr. 2 - hveitibjór?
Posted: 9. Mar 2010 23:02
by hrafnkell
Hmm á hveitibjór að vera í 3.5-4.5 í kolsýru? Ég vissi það ekki

Mínir hafa verið í 2.5.. En ég er með einn í gerjun sem ég set þá eitthvað meira í.