Page 1 of 1
Meskiker enn og aftur
Posted: 31. Jan 2010 14:35
by BeerMeph
Ætla að fara að versla mér dót í meskiker. Var að pæla í að versla mér þetta 35 L kælibox í húsasmiðjunni og var að velta fyrir hvort einhver sé að nota svoleiðis og hversu vel það heldur hita (Minna en 1-1,5°C tap á klst?).
Einni þætti mér gagnlegt að vita hvernig menn þéttuðu kranann. Nokkuð viss um að það eru fleiri hugmyndir til en ein.
Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 31. Jan 2010 14:42
by Idle
Ég nota slíkt, og hitatapið er innan við 1°C á klukkustund. O-hringur úr Viton (Barki, Kópavogi) og teflonband til þéttingar.
Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 31. Jan 2010 14:44
by BeerMeph
Ahh okei þá hef ég meira að segja litið það augum sigurður

. En já ég var einmitt að pæla í O-hring og teflonþéttingu.
Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 8. Feb 2010 15:41
by Squinchy
Eru þið að tala um þetta kælibox ?
http://www.husa.is/index.aspx?GroupId=8 ... ductID=855" onclick="window.open(this.href);return false;
Ef svo er hvað eru þið að ná að koma mikið af korni í þetta box ?
Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 8. Feb 2010 15:54
by Idle
Einmitt svona. Það mesta sem ég hef sett í mitt, eru 6,57 kg. af korni og 16,38 lítrar af vatni. Það var nokkuð fullt, líklega ekki nema 3 eða 4 sentimetrar upp að brún.
Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 8. Feb 2010 15:58
by Squinchy
Okei, ætli það sé eitthver að selja 40 - 50 lítra kælibox hérna á klakanum ?
Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 8. Feb 2010 16:02
by Idle
Ellingsen eru með 51 lítra
Coleman kælibox.
Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 8. Feb 2010 16:04
by Squinchy
Ekki til á lager, líka flottur verð miðinn

, spurning um að láta 2x 35L boxin úr húsó nægja hehe

Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 8. Feb 2010 16:29
by sigurdur
Þú getur líka keypt þér 60L fötu og einangrað hana (eða notað bara risa svefnpoka einhvern)
Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 8. Feb 2010 19:00
by Squinchy
Fór í húsasmiðjuna áðan og er nokkuð viss um að starfsfólkið viti ekki alveg hvað kælibox er en hvað með það, þá er bara að fara útbúa það til sjálfur
Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 8. Feb 2010 19:53
by Eyvindur
Ég hef nú alveg sett rúm 10 kg í þetta kælibox. Það var pínu þröngt, en það gekk vel. Nýtingin féll eitthvað, en var ekkert fáránleg.
Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 8. Feb 2010 20:12
by hrafnkell
Ég er með eitthvað svipað kælibox úr byko. Það er 27 lítrar og ég meskja 9.5-10kg í því án hiks. Nýtnin er sama og venjulega hjá mér, eða um 70%.
Kælibox eru samt ekki á hverju horni núna og frekar dýr. Þegar sumarið fer að nálgast fara búllur eins og rúmfatalagerinn, hagkaup og fleiri staðir að fá þetta á lager og þá verða þau bæði ódýrari og til í miklu fleiri stærðum.
Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 8. Feb 2010 20:18
by Squinchy
Já ég skoðaði þetta í byko en fannst það svo rosalega lítið þar sem ég vill helst gera 2x19L eða 2x 25L skammta í einu, ætla að henda saman einu DIY kæliboxi og svo skiptir maður því kannski út í sumar ef annað skemmtilegra kemur á markaðinn

Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 8. Feb 2010 20:33
by hrafnkell
Ég geri 40 lítra í þessu þannig að það ætti svosem að duga í einhvern tíma

Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 8. Feb 2010 20:38
by Squinchy
Hehe já

, er bara svo lítið fyrir að láta hlutina rétt svo duga

svo er þetta fínasta afsökun fyrir að draga fram verkfærin og drasla smá til

Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 8. Feb 2010 22:19
by Eyvindur
Ég er reyndar á leiðinni að gera meskiker úr 60l fötu. Það ætti að duga betur, ef mann langar að gera byggvín eða eitthvað annað skemmtilegt.
Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 9. Feb 2010 10:26
by BeerMeph
Squinchy wrote:Fór í húsasmiðjuna áðan og er nokkuð viss um að starfsfólkið viti ekki alveg hvað kælibox er en hvað með það, þá er bara að fara útbúa það til sjálfur
Þeir eru ekki með þetta inn í verslun núna, eru að geyma þetta á lager fyrir sumarið einhverra hluta vegna - þannig að þú verður að panta af lagernum þeirra (starfsfólkið þarna er btw ekki sérstaklega mikið með á nótunum þarna af minni reynslu).
Þú pantar í versluninni og borgar þar og þeir senda beiðni á lagerinn í holtagörðum og þangað ferðu og sækir þetta.
Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 9. Feb 2010 10:49
by hordurg
BeerMeph wrote:Squinchy wrote:Fór í húsasmiðjuna áðan og er nokkuð viss um að starfsfólkið viti ekki alveg hvað kælibox er en hvað með það, þá er bara að fara útbúa það til sjálfur
Þeir eru ekki með þetta inn í verslun núna, eru að geyma þetta á lager fyrir sumarið einhverra hluta vegna - þannig að þú verður að panta af lagernum þeirra (starfsfólkið þarna er btw ekki sérstaklega mikið með á nótunum þarna af minni reynslu).
Þú pantar í versluninni og borgar þar og þeir senda beiðni á lagerinn í holtagörðum og þangað ferðu og sækir þetta.
Þegar ég keypti kæliboxið var það bara til í geymlu í hafnarfirði, og maður fann bara einhvern í búðinni þar og sagði þeim að það væri kælibox á lagernum og þá hoppar einhver eftir því.
Re: Meskiker enn og aftur
Posted: 9. Feb 2010 12:23
by Eyvindur
hordurg wrote:
Þegar ég keypti kæliboxið var það bara til í geymlu í hafnarfirði, og maður fann bara einhvern í búðinni þar og sagði þeim að það væri kælibox á lagernum og þá hoppar einhver eftir því.
Enda í Hafnarfirði.