Page 1 of 1
Hvað get ég meskjað marga lítra úr 27 lítra tunnu?
Posted: 20. Jan 2010 22:53
by mcbain
Hefur einhver hugmynd um hvað ég gæti fengið marga lítra úr 27 lítra kæliboxi?
Og hvað þarf ég að kaupa stóra tunnu til að sjóða í þá?
bara pæling.
Re: Hvað get ég meskjað marga lítra úr 27 lítra tunnu?
Posted: 20. Jan 2010 23:07
by Oli
tja það fer eftir ýmsu, hvernig meskingaraðferð þú notar og hversu stóran bjór þú ert að gera. hér er linkur á homebrewtalk, þar er tafla sem gæti gagnast þér.
http://www.homebrewtalk.com/f11/how-big ... ds-123585/" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Hvað get ég meskjað marga lítra úr 27 lítra tunnu?
Posted: 20. Jan 2010 23:17
by hrafnkell
Ég hef meskjað 9.5kg í sama boxi og þú ert með. Ég bara stútfylli alveg af vatni og þarf svo að skola ca 3-4x til að ná í 47 lítrana sem ég þarf í suðuna. Einhver bendir kannski á að ég sé að gambla með nýtnina, en hún hefur alltaf verið 70% hjá mér, hvort sem ég meski í hlutfallslega miklu vatni eða ekki.
Re: Hvað get ég meskjað marga lítra úr 27 lítra tunnu?
Posted: 20. Jan 2010 23:19
by Eyvindur
Ég er með 30l fötu sem ég meski í, og ég gerði 9kg meskingu um daginn, fékk ca. 40l fyrir suðu (held ég - þarf að fara að mæla pottinn aftur og betur) og var með 80% nýtni.
Re: Hvað get ég meskjað marga lítra úr 27 lítra tunnu?
Posted: 21. Jan 2010 23:44
by mcbain
Nýtni já... hvernig mælið/vitið þið hana?

Re: Hvað get ég meskjað marga lítra úr 27 lítra tunnu?
Posted: 21. Jan 2010 23:46
by Eyvindur
Ég nota forrit sem heitir Beer Tools (
http://www.beertools.com) sem reiknar nýtnina út fyrir mig.
Re: Hvað get ég meskjað marga lítra úr 27 lítra tunnu?
Posted: 21. Jan 2010 23:48
by hrafnkell
Ég mæli svo með svosem einum beginners guide to all grain brewing eða svo

Þá færðu amk grunnþekkingu á meskingu, skolun, nýtni osfrv.
Re: Hvað get ég meskjað marga lítra úr 27 lítra tunnu?
Posted: 21. Jan 2010 23:53
by sigurdur
Einfalt mál.
Þú getur reiknað út hver áætluð OG tala er fyrir 100% nýtni með forritinu þínu, eða handreiknað það út .. (þú verður að þekkja kornið). Segjum að það eigi að vera
1.040.
Fyrst þá byrjaru bara á því að brugga, getur miðað við 70-75% nýtni.
Svo þegar þú ert búinn að skola allt kornið og kominn með allan vökvann sem að þú ætlar að sjóða, þá mæliru sýni. Sú mæling er pre-boil gravity. Muna bara að skrifa niður töluna. Segjum að hún sé
1.037
Svo sýður þú virtinn eins lengi og þú ætlaðir þér og tekur svo aftur sýni áður / eftir að þú setur gerið í og skrifar þá tölu niður.
Svo fylliru þessar tölur inn í bruggforritið þitt, eða handreiknar út hver nýtnin er.
Ef þú vilt reikna út nýtnina í höndunum, þá getur þú reiknað þetta svona 37/40 = 92.5% nýtni.
(Ég held að ég sé að fara með rétta hluti hér að ofan.)
Sjá nánar á
http://www.howtobrew.com/section2/chapter12-5.html" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Hvað get ég meskjað marga lítra úr 27 lítra tunnu?
Posted: 22. Jan 2010 00:30
by mcbain
sigurdur wrote:Einfalt mál.
Þú getur reiknað út hver áætluð OG tala er fyrir 100% nýtni með forritinu þínu, eða handreiknað það út .. (þú verður að þekkja kornið). Segjum að það eigi að vera
1.040.
Fyrst þá byrjaru bara á því að brugga, getur miðað við 70-75% nýtni.
Svo þegar þú ert búinn að skola allt kornið og kominn með allan vökvann sem að þú ætlar að sjóða, þá mæliru sýni. Sú mæling er pre-boil gravity. Muna bara að skrifa niður töluna. Segjum að hún sé
1.037
Svo sýður þú virtinn eins lengi og þú ætlaðir þér og tekur svo aftur sýni áður / eftir að þú setur gerið í og skrifar þá tölu niður.
Svo fylliru þessar tölur inn í bruggforritið þitt, eða handreiknar út hver nýtnin er.
Ef þú vilt reikna út nýtnina í höndunum, þá getur þú reiknað þetta svona 37/40 = 92.5% nýtni.
(Ég held að ég sé að fara með rétta hluti hér að ofan.)
Sjá nánar á
http://www.howtobrew.com/section2/chapter12-5.html" onclick="window.open(this.href);return false;
Snild ég skilja núna
