Page 1 of 2
Virtdælur
Posted: 15. Jan 2010 15:47
by hrafnkell
Er einhver staður hér á landi sem getur selt manni dælur svipaðar March 809 dælunum sem fólk er mest að nota í bruggið? Þá meina ég dælur sem þola sjóðandi vatn og henta fyrir matvæli.
Re: Virtdælur
Posted: 15. Jan 2010 16:27
by Eyvindur
Veit ekki með það. En ég er að pæla í að reyna að nota dælu úr uppþvottavél... Ekkert víst að það klikki.
Re: Virtdælur
Posted: 15. Jan 2010 18:09
by hrafnkell
Heldurðu að hún dugi í virt í 70-100 gráðum? Fer svosem væntanlega eftir vélum og dælum.. Mín uppþvottavél fer t.d. hæst upp í 65 gráður.
Ástæðan fyrir því að ég að pæla í þessu er að það gæti verið skemmtilegt project að smíða controller sem gæti séð um meskingu (og halda hitastigi 100%), skolun, suðu o.s.frv. Ég á í raun alla rafmagnshluti sem ég þyrfti í þetta, t.d. relay, lcd skjá, örgjörva, hitanema, víra, díóður o.fl. nema þá dæluna. Sótti mér innblástur í
http://www.speidels-braumeister.de/shop ... ister.html" onclick="window.open(this.href);return false; . Þetta er furðu einfalt ef maður pælir í því

Re: Virtdælur
Posted: 15. Jan 2010 23:26
by Eyvindur
Einmitt það sama og ég er að pæla.
Ég veit ekkert meira en það sem tengdafaðir minn, sem er rafvirki og hefur mikið gert við svona tæki, sagði mér. Hann vildi meina að þetta myndi virka. Það er bara ein leið til að komast að því...
Re: Virtdælur
Posted: 16. Jan 2010 13:26
by hrafnkell
Bara spurning með að það er fullt af plastefnum sem eru í fínu lagi upp að vissu hitamarki en fara svo að leka einhverjum efnum og tapa herslunni þegar hitinn er kominn yfir það. Fínt að finna dælu allavega og fletta upp hvaða efni eru í henni, það ætti ekki að vera neitt stórmál að googla það.
Mér datt í hug að hringja í fyrirtækið sem er við hliðiná Barka á nýbýlavegi. Minnir að það heiti dælur eða eitthvað svoleiðis. Þeir eiga hugsanlega eitthvað sem maður getur notað eða vita hvar maður fær það. Ætli þetta myndi þó ekki kosta ansi mikið hér á landi. March dælurnar eru til dæmis frekar dýrar í útlöndum.
Re: Virtdælur
Posted: 21. Jan 2010 21:36
by hrafnkell
Skyndilega finnst mér march 809 vera rosalega hagstæðar dælur. Mig grunaði að ég fengi há verð uppgefin hjá innlendum aðilum, en jesús kristur. Lægsta verðið á dælu sem dælir 4-7 lítrum á mínútu og þolir 100 gráður sem ég fékk uppgefið var um 680þús - Án mótors!. Með mótor og þá var verðið tæp milljón.
Ég er að hugsa um að kaupa bara heilt bretti af march 809 dælum.

Re: Virtdælur
Posted: 21. Jan 2010 22:02
by Eyvindur
WOOOOOOT?!?!?!
Þeir hljóta að vera að spauga... Þetta er eitthvað gott glens.
Re: Virtdælur
Posted: 23. Jan 2010 01:09
by Andri
vá, hvaðan var það verð fengið?
Re: Virtdælur
Posted: 23. Jan 2010 11:10
by hrafnkell
daelur.is
Re: Virtdælur
Posted: 23. Jan 2010 15:51
by Andri
prófaðu að senda framleiðanda mail og biðja um cirka verð á þessum dælum til almennings, ekki frá *.is emaili samt

Re: Virtdælur
Posted: 25. Jan 2010 10:22
by hrafnkell
Ég hringdi í fálkann í morgun til að spyrja útí iwaki dælur.. Ég er búinn að vera að skoða iwaki md30 á ebay, get fengið hana um $50 ódýrari en march dælurnar, eða á um 20-25þús hingað komið með vsk. Fálkinn vill fá 63þús fyrir þær.
Ég er allur af vilja gerður að reyna að "styrkja" íslensk fyrirtæki og borga smá auka fyrir ábyrgð og þjónustu. En andskotinn hafi það, þetta er bara kjánalegt verð!
Re: Virtdælur
Posted: 25. Jan 2010 10:40
by Eyvindur
Bentirðu þeim á það?
Re: Virtdælur
Posted: 25. Jan 2010 10:56
by hrafnkell
Nei, reyndar ekki. Þóttist viss að mér yrði boðinn smávegis afsláttur, kannski 10-20% en það dugir skammt.
Re: Virtdælur
Posted: 25. Jan 2010 11:06
by Eyvindur
Jájá, bara alltaf fróðlegt að heyra hvaða afsakanir verslanir gefa fyrir svona kjánalegri álagningu.
Re: Virtdælur
Posted: 25. Jan 2010 11:15
by sigurdur
Ég held að þeir fái þetta bara á venjulegu verði frá framleiðenda og leggi á það sína álagningu.
Að miða þetta við verð sem að finnast á Ebay er kanski ekki alltaf besti samanburðurinn, einfaldlega vegna þess að góður hluti af seljendum hafa keypt heila lagera af fyrirtækjum sem að fara í þrot eða hætta á algjörum spottprís. Í þeim tilfellum er oft ekki athugað hve mikið hluturinn kostar frá framleiðanda.
En það má vera að það sé líka sóðaálagning á þessu.
Re: Virtdælur
Posted: 25. Jan 2010 11:22
by Eyvindur
Vissulega. En vitið þið hvað þetta kostar hjá venjulegum smásöluaðilum erlendis?
Re: Virtdælur
Posted: 25. Jan 2010 11:28
by sigurdur
http://www.google.com/products?q=iwaki+ ... t&start=20" onclick="window.open(this.href);return false;
$210 - $260 af því sem að ég finn í snatri.
Það er um 70 USD mismunur á japönsku og bandarísku útgáfunni. Japanska er 230V en Bandaríska er 110V.
Re: Virtdælur
Posted: 25. Jan 2010 11:34
by sigurdur
Ef ég hraðreikna, þá fæ ég eftirfarandi formúlu.
( $210 [dæla] + $50 [sending] ) * 125 [kr/usd] * 1.4 [miðað við 40% toll .. kanski ýkjur] * 1.255 [VSK]
Út úr henni kemur 57102.5 ISK fyrir eina svona dælu.
Ég myndi giska á að örninn séu bara með venjulega álagningu.
Re: Virtdælur
Posted: 25. Jan 2010 11:47
by hrafnkell
Fálkinn er væntanlega ekki að kaupa dælurnar á smásöluverði, kaupir margar saman og flytur ódýrt með skipi. Og það er enginn tollur á dælum skv því sem ég fann í tollskránni.
Gildir einu svosem, þetta er amk of dýrt fyrir mig hérna heima

Re: Virtdælur
Posted: 25. Jan 2010 14:29
by Oli
Hentar þessi ekki í verkefnið?
http://cgi.ebay.com/Iwaki-Magnet-Pump-M ... 67a41#shId" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Virtdælur
Posted: 25. Jan 2010 14:31
by sigurdur
Þetta er sama tegund af dælu, jú, að öllum líkindum þá dugar hún í verkefnið hans.
Re: Virtdælur
Posted: 25. Jan 2010 14:42
by hrafnkell
Jú, ég sendi honum póst í gær, er að bíða eftir svari um hvort hann vilji senda dæluna til Íslands

Re: Virtdælur
Posted: 25. Jan 2010 23:40
by hrafnkell
Fékk svar og fékk dæluna á $117 með sendingarkostnaði. Finnst það ansi vel sloppið þar sem allar aðrar dælur sem ég hef skoðað hefðu endað í yfir $200.
Re: Virtdælur
Posted: 26. Jan 2010 09:58
by Oli
Flott, leyfir mér að fylgjast með verkefninu, stefni á að koma mér upp svona kerfi eins og þú veist.
Re: Virtdælur
Posted: 27. Jan 2010 12:47
by eymus
er að átta mig á ferlinu sem þið eruð að tala um. Er dælan til að halda uppi hringrás í meskingunni þannig að hitinn dreifist jafnt o.s.frv.?