Page 1 of 1

Skortur á Stellu í ríkinu?

Posted: 14. Jan 2010 11:55
by BeerMeph
Verslanir í Belgíu eru nú að verða uppiskroppa með Stella Artois-, Leffe- og Jupiler-bjór, vegna mótmæla starfsmanna Anheuser-Busch InBev brugghússins. Þetta kemur fram í frétt Telegraph.

Búist er við að birgðir klárist í þessari viku, en starfsmenn hafa hindrað starfsemi þriggja brugghúsa í eigu Anheuser-Busch InBev, stærsta bjórframleiðanda Belgíu. Fyrirtækið tilkynnti í síðustu viku að það hygðist fækka starfsfólki sínu í Vestur-Evrópu um 10%.

Fyrirtækið hyggst reka yfir 300 manns í Belgíu og sama fjölda í Þýskalandi, þar sem það hefur 2.700 og 3.000 starfsmenn í vinnu. Einnig verður störfum fækkað í Frakklandi, Lúxemborg og Hollandi. Ekki hefur komið fram hver fækkunin verður í Bretlandi, þar sem starfsmenn eru 1.300 talsins.

Fyrirtækið segir uppsagnirnar nauðsynlegar, þar sem bjórneysla hafi minnkað um 20% í Belgíu frá árinu 2000.

Þessi ákvörðun vakti mikla reiði meðal starfsmanna fyrirtækisins, sem tóku 10 yfirmenn í gíslingu í höfuðstöðvum þess í Jupille á fimmtudaginn. Þeim var sleppt heilum á húfi daginn eftir.

Heimild: Mbl.is

Hefur nokkuð einhver orðið var við hvort það sé nokkuð orðinn skortu á stellunni góðu í ríkinu?

Re: Skortur á Stellu í ríkinu?

Posted: 14. Jan 2010 15:05
by halldor
Ég hafði samband við Atla Hergeirsson sölustjóra drykkjarvörusviðs hjá Karli K. Karlssyni og hann hafði þetta að segja:
Þessi frétt segir allt sem segja þarf en við höfum ekki frekari upplýsingar
um stöðu mála. Lagerstaða okkar er góð á Stella Artois 33cl í glerumbúðum
og því ættu endar að ná saman og ekki ætti að koma til bjórþurrkur í ÁTVR í
Stellunni. En þetta miða ég auðvitað við að málin leysist fljótlega því
Stella Artois er lang vinsælasti og mest seldi flöskubjór á Íslandi. Við
erum bjartsýn og alls ekki farin að örvænta.
Svo er bara að vona það besta... ekki vil ég að Leffe hverfi í langan tíma :)

Re: Skortur á Stellu í ríkinu?

Posted: 14. Jan 2010 19:13
by BeerMeph
Okei gott af vita af þí ;)

Re: Skortur á Stellu í ríkinu?

Posted: 15. Jan 2010 10:31
by arnilong
......Stella Artois er lang vinsælasti og mest seldi flöskubjór á Íslandi......
Í alvöru!!!??

Re: Skortur á Stellu í ríkinu?

Posted: 15. Jan 2010 11:58
by halldor
arnilong wrote:
......Stella Artois er lang vinsælasti og mest seldi flöskubjór á Íslandi......
Í alvöru!!!??
Ekki mín orð :)

Re: Skortur á Stellu í ríkinu?

Posted: 15. Jan 2010 13:54
by arnilong
halldor wrote:
arnilong wrote:
......Stella Artois er lang vinsælasti og mest seldi flöskubjór á Íslandi......
Í alvöru!!!??
Ekki mín orð :)
Ég varð bara að skoða sölutölur ÁTVR og þetta reyndist rétt miðað við 2009, merkilegt :shock:

Re: Skortur á Stellu í ríkinu?

Posted: 15. Jan 2010 17:11
by BeerMeph
Það versta við að það sé vinsælast er að flöskutappalokarinn minn nær ekki að grípa utan um hálsinn á stelluflöskunum og þegar maður fer til vina að sníkja flöskur er stórhluti orðinn stella :/.

Re: Skortur á Stellu í ríkinu?

Posted: 16. Jan 2010 03:21
by hordurg
BeerMeph wrote:Það versta við að það sé vinsælast er að flöskutappalokarinn minn nær ekki að grípa utan um hálsinn á stelluflöskunum og þegar maður fer til vina að sníkja flöskur er stórhluti orðinn stella :/.
Ef þú ert með úr ámunni, þá er það allveg hægt með smá "trikki", ég er amk að nota þær :)

Re: Skortur á Stellu í ríkinu?

Posted: 16. Jan 2010 08:50
by BeerMeph
hordurg wrote:
BeerMeph wrote:Það versta við að það sé vinsælast er að flöskutappalokarinn minn nær ekki að grípa utan um hálsinn á stelluflöskunum og þegar maður fer til vina að sníkja flöskur er stórhluti orðinn stella :/.
Ef þú ert með úr ámunni, þá er það allveg hægt með smá "trikki", ég er amk að nota þær :)
Hvaða trikk myndi það vera? :P

Re: Skortur á Stellu í ríkinu?

Posted: 16. Jan 2010 12:00
by hordurg
Þegar þú ert að ýta höndunum saman, lyftu tappagaurnum frekar mikið upp, og þá nær hann taki mjög ofarlega á hálsinum