Page 1 of 2
Krár á Íslandi?
Posted: 12. May 2009 19:30
by nIceguy
Sælir piltar, nú er dálítið síðan ég hef farið á pöbbarölt heima á klakanum. Mig langaði að tékka hvort þið þekkið einhverja góða staði sem bjóða eitthvað úrval bjórs? Ja eða bara einhvern stað þar sem t.d. er hægt að fá Leffe á krana eða álíka? Kaffibrennslan var hér áður ágætur staður, nú heitir hann Brons og virðist ekki fókusera á bjórinn. Svo var Vínbarinn ágætur, hvernig er hann núna? Leffe fékst svo einu sinni á krana á Vín og Skel. Hmm endilega látið mig vita.
Kv
Freyr
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 12. May 2009 19:55
by Hjalti
Mig minnir að þú getir fengið Leffe á krana á Vínbarnum, svo er náttúrulega mjög gott Ale úrval á English Pub hinu meginn við austurvöll og þar er líka Skjálfti á krana

Re: Krár á Íslandi?
Posted: 12. May 2009 20:07
by nIceguy
Já ok fæst Skjálfti þar á krana? Snilld, takk fyrir infoið.
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 12. May 2009 20:16
by nIceguy
Heyrðu hvað heitir þessi English Pub?
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 12. May 2009 20:30
by Hjalti
nIceguy wrote:Heyrðu hvað heitir þessi English Pub?
English Pub

Re: Krár á Íslandi?
Posted: 12. May 2009 20:31
by halldor
Hjalti wrote:Mig minnir að þú getir fengið Leffe á krana á Vínbarnum, svo er náttúrulega mjög gott Ale úrval á English Pub hinu meginn við austurvöll og þar er líka Skjálfti á krana

Ef þú ert að segja satt með Skjálfta á krana þá fer ég þangað núna!
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 12. May 2009 20:31
by halldor
Hjalti wrote:nIceguy wrote:Heyrðu hvað heitir þessi English Pub?
English Pub

LOL
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 12. May 2009 20:32
by Hjalti
Sjáumst þar klukkan 21:00
Ég er alveg maður.... mig langar í einn kaldan...
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 12. May 2009 20:36
by Hjalti
Hjalti wrote:Sjáumst þar klukkan 21:00
Ég er alveg maður.... mig langar í einn kaldan...
Ég laug....
Ölvisholt Brugghús Nú er Skjálfti fáanlegur á dælu á Boston Resturant Bar Laugavegi 28b í Reykjavík. Eins og margir vita er ekkert sem jafnast á við Skjálfta beint af krana. Unnið er að því að koma Skjálfta inná fleiri veitingastaði þar sem viðskiptavinir geta pantað sér freyðandi og svalandi Skjálfta.
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 12. May 2009 20:36
by halldor
Leffe á krana á Vínbarnum
Heeeeellingur af skemmtilegum flöskubjórum á Vínbarnum
Hoegaarden á Kaffibarnum
London Porter, La Trappe o.fl. á flösku English Pub
Killkenny, Guinness o.fl. á krana á English Pub, Ölstofunni og Café Paris
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 12. May 2009 20:53
by Andri
held að maður skellir sér á smá pöbbarölt eftir útskriftina :p
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 12. May 2009 20:54
by Hjalti
Maður verður nú að slaka á fyrir prófinn
Er einhver maður í 1 skjálfta á Boston?
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 12. May 2009 21:08
by halldor
Hjalti wrote:Maður verður nú að slaka á fyrir prófinn
Er einhver maður í 1 skjálfta á Boston?
Ég hef beðið allt mitt líf eftir að fá mér Skjálfta á krana... eeeeen er að fara í helvítis lokapróf á föstudag og lokaverkefni á morgun

Ég er til í það strax eftir helgina
Þegar ég fór í heimsókn í Ölvisholt bauð hann Jón aðeins Móra á krana... ekki að það hafi verið neitt slæmt
Smakkaði reyndar líka þar:
Móra
Móra Cask
Mungát (Páskabjórinn) á tilraunarstigum, tvær tegundir
Lava (áður en hann kom í verslanir á Íslandi)
Draugasetursbjórinn (man reyndar ekki hvað hann heitir en basically misheppnaður Skjálfti)
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 12. May 2009 21:15
by Stulli
Væri nú alveg til í einn skjálfta af krana, en ég er einn heima með barnið. Verð bara að sætta mig við hafrastát af mínum eigin krana

Re: Krár á Íslandi?
Posted: 12. May 2009 22:46
by Andri
Við Hjalti fórum á English Pub og spjölluðum smávegis yfir skjálfta
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 12. May 2009 22:50
by Hjalti
Snilld, takk fyrir mig.
Ég ráðlagði líka tvemur svíum að fá sér skjálfta og fékk næstumþví knús þegar þau fóru, voru virkilega ánægð með bjórinn sinn og sérstaklega glöð að þau fengu sér ekki þetta Egils dót

Re: Krár á Íslandi?
Posted: 12. May 2009 23:46
by Eyvindur
Æ, Stulli, greyið þú.
Ég lagði ekki í bæjarferð, en fékk mér smá hérna heima.
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 13. May 2009 08:52
by Stulli
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 13. May 2009 11:41
by Eyvindur
Langar líka að benda á að Café Rosenberg er með sæmilegt úrval, en þess betra andrúmsloft og lifandi tónlist. Góður bjór verður enn betri þar.
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 13. May 2009 13:57
by nIceguy
Eyvindur wrote:Langar líka að benda á að Café Rosenberg er með sæmilegt úrval, en þess betra andrúmsloft og lifandi tónlist. Góður bjór verður enn betri þar.
Aha ok ertu með dæmi um bjór? Manstu eftir eh spennandi á krana?
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 13. May 2009 15:03
by Eyvindur
Enginn spennandi á krana. Þeir sem ég man eftir þaðan (fyrir utan þessa venjulegu) eru Erdinger, Víking Stout, Pilsner Urquell, Budweiser Budvar, Newcastle Brown Ale og svo er eins og mig minni að þau hafi verið með Skjálfta á flöskum... Það fæst eitthvað fleira minnir mig, en ég man ekki hvað. Ég skal skima eftir því næst þegar ég geri mér ferð þangað.
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 13. May 2009 18:02
by halldor
Íslenski barinn (áður Brons (áður Kaffibrennslan)) er með:
Skjálfta - 900 kr.
Lava - 1450 kr.
Viking Stout - 900 kr.
Ásamt öllum hinu íslensku bjórunum, ef einhverjir eru spenntir fyrir þeim.
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 14. May 2009 12:27
by nIceguy
Íslenski barinn? Hvað er það? Finn hann ekki á ja.is???
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 14. May 2009 12:33
by Hjalti
Held að hann heiti Brons alstaðar. Þetta er gamla Kaffibrenslan.
Re: Krár á Íslandi?
Posted: 14. May 2009 18:41
by halldor