Page 1 of 1

Plan til að breiða þetta spjall út

Posted: 11. May 2009 20:24
by Hjalti
Til vínbruggara og mjólkurvöru gerjara?

Er einhver með hugmyndi hvað hægt er að gera til þess að koma vefnum til skila sem svæði fyrir þá sem eru að búa til vín jafnt og Bjór?

Re: Plan til að breiða þetta spjall út

Posted: 11. May 2009 20:30
by arnilong
"Nafnspjaldið" okkar á afgreiðsluborðið hjá Ámunni? Bara einhvern plain miða með addressunni okkar. Hann Krissi hér á spjallborðinu er nú að vinna í Ámunni svo að við getum nú líklega borið þetta undir hann!

Hvað segirðu um þetta Krissi? Heldurðu að við fáum leyfi fyrir því hjá ykkur?

Re: Plan til að breiða þetta spjall út

Posted: 12. May 2009 08:47
by Hjalti
Skal senda honum skilaboð hérna á vefnum.

Re: Plan til að breiða þetta spjall út

Posted: 12. May 2009 10:29
by nIceguy
Sælir, ég gæti sett þetta inn á www.bjorbok.net :) Ég er reyndar nú um þessar mundir að smíða sérlegt íslandshorn þar sem all flest sem við kemur bjórnum verður tekið fyrir...líka heimabruggun :beer:

Re: Plan til að breiða þetta spjall út

Posted: 12. May 2009 10:44
by Eyvindur
Glæsileg snilld, maður.

Re: Plan til að breiða þetta spjall út

Posted: 17. May 2009 02:30
by Völundur
er kannski til "share on facebook" plugin fyrir phpbb3? Það myndi hafa mikil áhrif hugsa ég.

annars er bara mjög glæsileg þáttaka komin á spjallið strax, vafalítið að fljótlega verða allir sem hafa áhuga á þessu komnir hingað.

Hjalti; þú endar með stjórn og umræðuráð áður en þú veist af ;)

Re: Plan til að breiða þetta spjall út

Posted: 17. May 2009 11:22
by Hjalti
ouch! :vindill: :massi: