Page 3 of 4

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 17. Nov 2009 09:54
by Bright
já frábært .. takk fyrir skjót svör

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 22. Jan 2010 06:08
by Tigra
Rosalega finnst mér ég vera vitlaus þegar ég les þetta allt.
Ég bruggaði stundum svona kit bjór fyrir rúmum 5 árum síðan, en það er nú ekki beint besti bjórinn í bænum. Svo þegar ég les hérna hvað þið eruð að gera þá virkar þetta svo hræðilega flókið!
Ég er að reyna að lesa sem mest hér á spjallinu en forðast reyndar þær umræður sem hljóma of "advanced" svona í bili amk :)
Eru einhverstaðar algjörlega idiot proof leiðbeiningar fyrir fólk sem langar að byrja að brugga frá grunni?
Er verslun fyrir Ölvisholt einhverstaðar í bænum? Er hægt að kaupa öll hráefni þar?

Ég á bæði svona byrjunarkitt úr Ámunni og auk þess auka tunnu og vatnslás, en mér sýnist ég þurfa sitt hvað fleira ef ég ætla að prófa þetta frá grunni.
Þið talið t.d. um einhvern koparvír til kælingar og kælibox? Hvað þarf það að vera kalt?

Svo smá auka spurning, haldið þið að svona Coopers kit bjór gæti verið betri ef maður notar þrúgusykur í stað strásykurs? Og má þá nota hann í bæði skiptin?

Ohh maður er algjör núbbi hérna ;)

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 22. Jan 2010 08:31
by hordurg
Ég myndi bara byrja á því að fara á YouTube og leita af "All Grain Brewing" eða álíka, þá finnur þú slatta af vídjóum sem sýnir hvað þetta er í raun ekki svo flókið.

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 22. Jan 2010 09:33
by halldor
Tigra wrote:Svo smá auka spurning, haldið þið að svona Coopers kit bjór gæti verið betri ef maður notar þrúgusykur í stað strásykurs? Og má þá nota hann í bæði skiptin?

Ohh maður er algjör núbbi hérna ;)
Ef þú ætlar að nota Coopers kit þá mæli ég með því að nota tvö kit og sleppa því að nota sykur.
Svo væri sniðugt að kaupa sér eitthvað skemmtilegt ger sem bætir ákveðnum karakter við bjórinn.
Svo næst kaupirðu smá af humlum og bætir út í suðuna hjá þér.
Svo geturðu prófað að nota eitt coopers kit og verða þér úti um 1-2 kg af malti og meskja það í taupoka í potti.
Svo smám saman fattarðu að því flóknara þetta verður, því skemmtilegra og leitast sífellt við að gera þetta flóknara þegar þetta flóknara er orðið einfalt fyrir þér :skal:

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 30. Mar 2010 22:18
by Rauðbjörn
Nýliði hérna,

í einu mynbandinu sem ég sá við að kynna mér bjórgerð sá ég svokölluðum ,,adjunct" bætt við, og sagt að það væri einsskonar sýróp.

Er þetta fáanlegt á Íslandi?

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 30. Mar 2010 22:43
by halldor
Rauðbjörn wrote:Nýliði hérna,

í einu mynbandinu sem ég sá við að kynna mér bjórgerð sá ég svokölluðum ,,adjunct" bætt við, og sagt að það væri einsskonar sýróp.

Er þetta fáanlegt á Íslandi?
Með orðinu adjuncts er eiginlega verið að meina viðbætur við hið hefðbundna maltaða korn í bjór... þ.e. allt sem á endanum gerjast en er ekki maltað korn. Sjá nánar hér: http://en.wikipedia.org/wiki/Adjuncts" onclick="window.open(this.href);return false;
PS. ég er opinn fyrir betri skýringu :)

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 30. Mar 2010 22:53
by sigurdur
Ef þetta er það video sem að ég held, þá myndi ég frekar fara út í búð/apótek og kaupa 3-4 dollur af maltextract (byggsíróp) og bæta því út í kittið í staðinn fyrir sykurinn og þetta síróp.
Nú, eða þú getur keypt 2 kit, sett þau saman og sleppt sykrinum og auka sírópi.
Þetta veldur að mér finnst betri bjór.

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 27. May 2010 22:03
by atax1c
Nú fer að styttast í fyrstu lögn. Langaði að spurja hvort menn væru eitthvað að bæta vatnið ?

Hvernig er vatnið á Íslandi fyrir heimabruggaðan bjór ? Hef séð að sumir nota eitthvað duft í meskinguna til að jafna vatnið í pH 5,2.

Er þetta nauðsynlegt eða eru flestir hérna bara að nota venjulegt vatn úr krananum ?

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 27. May 2010 22:28
by Idle
atax1c wrote:Nú fer að styttast í fyrstu lögn. Langaði að spurja hvort menn væru eitthvað að bæta vatnið ?

Hvernig er vatnið á Íslandi fyrir heimabruggaðan bjór ? Hef séð að sumir nota eitthvað duft í meskinguna til að jafna vatnið í pH 5,2.

Er þetta nauðsynlegt eða eru flestir hérna bara að nota venjulegt vatn úr krananum ?
Það er ekki nauðsynlegt. Íslenska vatnið er mjög gott til bjórgerðar. En ef menn vilja líkja eftir vatni annarra landa og svæða (t. d. ef reyna á að líkja eins vel eftir ákveðnum bjór eða stíl og mögulegt er), þá er ýmsum söltum bætt við, kalki, gipsi og fleiru. Það er komið út í fremur nákvæm vísindi ef vel á að vera, en þó á færi flestra.

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 27. May 2010 22:43
by Eyvindur
Idle wrote:en þó á færi flestra.
Nema mín. :oops:

Get ómögulega stautað mig fram úr þessu. En ég er líka raungreinaheftasti einstaklingur norðan suðurpólsins.

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 19. Jan 2011 17:39
by Sleipnir
Ein spurnig "steeping" og "mashing" er þetta ekki sama dæmið?
Kv.
Siggi

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 19. Jan 2011 17:52
by Classic
"Steep" er þegar extraktbruggarar bleyta upp í lítilræði af sérmalti til að gefa bjórnum sínum meiri karakter, en gerjanlegi sykurinn kemur svo úr maltextrakti sem bætt er við eftir að búið er að ná því sem ná skal úr sérmaltinu. "Mash" er þegar ná á gerjanlegum sykri úr grunnmalti, þarf lengri tíma og meiri nákvæmni með hitastig... Náskylt en þó ekki alveg það sama.

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 16. Feb 2011 09:59
by Sigfús Jóns
Eyvindur wrote:
Idle wrote:en þó á færi flestra.
Nema mín. :oops:

Get ómögulega stautað mig fram úr þessu. En ég er líka raungreinaheftasti einstaklingur norðan suðurpólsins.
LOL :D

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 24. Nov 2011 16:24
by AndriTK
Idle wrote:
hordurg wrote:Ég er búinn að vera að fylgjast eitthvað með þessu spjalli í smá tíma og verð að segja að þetta er rosalega spennandi og maður er svona að vellta þvi fyrir sér hvort maður ætti að fara út í þennan startkostnað :)

En mig langaði að forvitnast um eitt, hefur einhver reiknað út hvað verðið í krónum er ca p. líter af vökva til neyslu? Svo annað, eruð þið almennt að tappa þessu á glerflöskur?
Hráefnið í 20 lítra skammta (all grain, korn og humlar frá Ölvisholti) hefur kostað mig á bilinu 2 til 3.500 kr (fer eftir ýmsu), sem gerir þá kannski um 150 kr. per lítra, miðað við 3.000 kr. hráefni. Ég nota eingöngu glerflöskur, og megnið er undan Skjálfta og Móra. :)
Ég sendi fyrirspurn á ölvisholt um daginn varðandi kaup á hráefni, en fékk þau svör að þeir væru ekki í slíkri sölu :?

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 24. Nov 2011 16:31
by Eyvindur
Nei, þónokkuð er síðan Ölvisholt hætti að selja korn. Hins vegar er hægt að fá allt til alls á http://www.brew.is" onclick="window.open(this.href);return false; .

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 24. Nov 2011 17:10
by hrafnkell
Líklega komið rúmlega eitt og hálft ár síðan þeir hættu að selja korn. Það var nú aðal ástæðan fyrir að ég byrjaði með brew.is, til að ég gæti haldið áfram að brugga :)

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 24. Nov 2011 19:00
by Eyvindur
Brugguðunum sé lof fyrir það.

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 10. Feb 2012 17:54
by Weihenstephaner
Algjör lúða spurning, á lokið að vera á vatnslásnum í gerjuninni? :)

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 10. Feb 2012 17:55
by hrafnkell
Weihenstephaner wrote:Algjör lúða spurning, á lokið að vera á vatnslásnum í gerjuninni? :)
Ég set venjulega bara álpappír á.. Týni lokunum venjulega áður en það kemur til þess að nota þau, og oft eru lokin líka svo þétt að þau loka lásnum.

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 27. Feb 2012 23:39
by halldor
Weihenstephaner wrote:Algjör lúða spurning, á lokið að vera á vatnslásnum í gerjuninni? :)
Ef þú átt það þá myndi ég nota það.

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 25. Apr 2012 22:37
by AndriTK
Var að spá í einu. Ég hef alltaf notað bara eina fötu í brugguninni og svo aðra til að gerja. Þ.e. bara notað elementin til að hita vatnið, meski svo þar í og svo bara beint í að sjóða.. Svo hef ég verið að skoða aðeins og t.d. hér á síðunni virðast margir vera með sérstakan suðupott og svo meskingarker... Og þá er spurningin, hvernig fáið þið rétt hitastig í meskingarkerið til að meskja í?

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 25. Apr 2012 22:42
by hrafnkell
Bara setja réttan hita í það til að byrja með, alveg eins og þú gerir með elementin. Svo er hægt að nota sjóðandi vatn eða kalt ef það er einhver skekkja.

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 25. Apr 2012 22:49
by maestro
Er til einhver formúla til að reikna út hversu mikið vatnið kólnar við að sturta korninu útí vantið ??

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 26. Apr 2012 00:06
by bergrisi
Ef þú notar Beersmith þá kemur það fram í uppskriftinni. Ég hef líka náð í app í android sem reiknar út hitastigið sem vatnið þarf að vera miðað við hitastig á korninu. Hef aldrei notað það því ég nota alltaf Beersmith.
https://play.google.com/store/apps/deta ... VsYXRvciJd" onclick="window.open(this.href);return false;

Vonandi hjálpar þetta.

Re: Algengum spurningum svarað

Posted: 8. Sep 2012 11:09
by gosi
Bara pæla með þá sem hafa bruggað án stýringar og hafa svo fengið sér PID stýringu og dælu.
Þegar þið meskjuðuð áður en PID kom til sögu, fenguð þið þá áætlað FG skv BeerSmith?
Eða fenguð þið hærra/lægra? Síðan þegar PID kom til sögu, fenguð þið þá sama FG og BeerSmith
segir til um? Eða hærra/lægra

Var að pæla því ég hef yfirleitt fengið aðeins hærra FG en BeerSmith segir án þess að nota PID
og er að fara að prófa það næstu helgi.