Page 1 of 1

Hugleiðing

Posted: 17. Nov 2009 10:09
by Bjössi
gerði AG lögn þarsíðasta föstudag, og fór ekki að bubbla fyrr en um 2 dögum senn, er búbbl er svo til hætt eða alveg að hætta, en það sem ég var að spá í er ekki ok að láta virtinn vera sirka 2 vikur í gerjunarkútnum og setja beint á flöskur? s.s. sleppa því að færa á milli í annan kút

Hef gert 3 AG og alltaf gert eins, láta virtin vera í sama gerjunarkút sirka 2 vikur, sjóða niður um 120gr sykur blanda varlega í kútinn svo botnfallið hrærist ekki með
Verður nóg að gera hjá mér næstu helgar, það eru 50ltr í gerjun, núna og ætla ég að leggja í aftur núna um helgina strax og er búinn að tappa á flöskur

Re: Hugleiðing

Posted: 17. Nov 2009 10:23
by Idle
Jú, það er í góðu lagi. Ég hef samt þá reglu á að flytja yfir í aðra fötu fyrir átöppun, hvort sem ég sleppi secondary eða ekki. Þá verða síður einhver "óhöpp" með að fá botnfallið í flöskurnar. :)

Re: Hugleiðing

Posted: 17. Nov 2009 11:08
by Bjössi
Ahhh...ok! þannig að eina ástæða fyrir secondary er til að forðast botnfallið

Re: Hugleiðing

Posted: 17. Nov 2009 11:46
by hrafnkell
Ég hef gert þetta þannig líka, tappa yfir á aðra fötu og skil þannig megnið af drullunni eftir í gerjunarfötunni. Svo hræri ég sykrinum saman í fötu nr 2 og set svo á flöskur. Hef verið að fá mjög tæran og fínan bjór úr því finnst mér.

Re: Hugleiðing

Posted: 17. Nov 2009 12:17
by Eyvindur
Reyndar er secondary líka notað til að láta bjór eldast (ef hann situr of lengi á gerkökunni er hætta á skemmdum), og sömuleiðis ef bæta á ávöxtum, humlum, kryddi eða öðru út í á leiðinni. Ofantaldar ástæður eru þær einu sem gilda hjá mér. Ég nota aldrei secondary ef ekkert af þessu stendur til.

Re: Hugleiðing

Posted: 24. Nov 2009 09:09
by Andri
Mundu bara að taka flotvogs sýni, gá hvort FG sé ekki á réttum mörkum þannig að þú færð ekki flöskusprengjur.
Checka hvort þetta sé fullgerjað.

Re: Hugleiðing

Posted: 24. Nov 2009 10:39
by Bjössi
Akkúrat Andri, það er einmitt sem ég hef passað mig á, flotvog alltaf sýnt undir 1.010

Re: Hugleiðing

Posted: 24. Nov 2009 13:05
by BeerMeph
Er einhver sem mælir mikið á móti því að setja þurran sykur beint í flöskur: cirka aðeins meira en hálfa tsk (rosa nákvæmt), sleppa secondary og fylla beint á flöskur?

Mér dettur í hug tvennt sem gæti farið úrskeiðis í fljótu bragði.

Yfirþrýstingur gæti myndast í flöskum og þær sprungið ef ekki er vandað sig nóg.

Of mikið ger færi með í flöskur.

Hvað segið þið?

Re: Hugleiðing

Posted: 24. Nov 2009 13:41
by Oli
Það er kannski ekkert sem mælir á móti því en já það er hætta á flöskusprengjum ef sykurmagnið er of mikið og þú færð meira gerbotnfall í flöskurnar. Það er kannski betra að mæla sykurmagnið sem á að nota í reiknivél eins og þessari http://www.tastybrew.com/calculators/priming.html" onclick="window.open(this.href);return false; leysa upp í heitu vatni og blanda rólega í primary, setja svo á flöskur.

Re: Hugleiðing

Posted: 24. Nov 2009 14:08
by Braumeister
Aðallega tveir gallar sem ég kem auga á. Í fyrsta lagi er erfitt að mæla rétt magn af sykri fyrir hverja flösku fyrir sig og eins myndi ég ekki setja sykur sem ég væri ekki búinn að sjóða í bjórinn minn.

Stærsti kosturinn við að nota sér átöppunarfötu er sá að maður mælir sykurinn fyrir alla suðuna í einu, sýður hann í smá vatni, hellir sýrópinu í botn átöppunarfötunnar og þegar þú ert búinn að fleyta bjórnum yfir ertu með allt vel blandað.

Ég væri samt helst til í að geta gert þetta þannig að ég myndi útbúa sykurlausn í vökvaformi og setja hana á flösku með sodastream-skammtara eða einhverju nákvæmara. Svo myndi ég pumpa kanski 10ml ofan í hverja flösku og fylla svo á hana beint úr primary.

Þannig fengi maður tærasta bjórinn, því ef maður sogar óvart eitthað upp, þá lendir það bara í einni flösku en ekki í öllum bjórnum í hinni fötunni.

Sykurlausnin þyrfti að vera missterk miðað við hvernig bjór maður væri að tappa á, daufari fyrir enska bjóra og sterkari fyrir hveitibjóra. Minnsta mál í heimi að reikna það út ef maður veit hvað skömmtunarpumpan dælir miklu.

Re: Hugleiðing

Posted: 24. Nov 2009 16:03
by Eyvindur
Það sem ég myndi helst telja gegn því að mæla í hverja flösku fyrir sig er að það væri svo erfitt að gera það alveg nákvæmlega, að það væri mjög hæpið að hafa jafna kolsýringu á öllum flöskunum. Það yrði mjög leiðinlegt.

Re: Hugleiðing

Posted: 24. Nov 2009 20:48
by olihelgi
Svo er hægt að kaupa carbonation drops.

Ég notaði svona í IPA-inn minn en get ekki sagt hvort að þetta sé góð eða slæm hugmynd. http://www.coopers.com.au/homebrew/hbrew.php?pid=7" onclick="window.open(this.href);return false; Mjög einfalt að nota þetta, 1 stykki í 33 cl flöskur og 2 stykki í 50 cl.

Ég er samt frekar skeptískur á þetta og ætla að frekar að sjóða niður sykur og blanda út í átöppunarfötu næst.

Óli Helgi.

Re: Hugleiðing

Posted: 24. Nov 2009 23:04
by BeerMeph
Eyvindur wrote:Það sem ég myndi helst telja gegn því að mæla í hverja flösku fyrir sig er að það væri svo erfitt að gera það alveg nákvæmlega, að það væri mjög hæpið að hafa jafna kolsýringu á öllum flöskunum. Það yrði mjög leiðinlegt.
Já ég er orðinn sammála eftir að hafa lesið mér betur til
Takk fyrir commentin.

Re: Hugleiðing

Posted: 25. Nov 2009 00:48
by Andri
Ég held að það væri eina sniðuga leiðin að láta sykur í botteling bucket til að ná sama magni í allann vökvann.
Sniðugt ef þú ert með mismunandi stærðir af flöskum.

Re: Hugleiðing

Posted: 25. Nov 2009 18:15
by Eyvindur
Ég hef alltaf bara soðið vatn í hraðsuðukatli og hellt út í tiltekið magn af sykri. Aldrei verið vandamál.

Re: Hugleiðing

Posted: 26. Nov 2009 21:05
by halldor
Braumeister wrote: Stærsti kosturinn við að nota sér átöppunarfötu er sá að maður mælir sykurinn fyrir alla suðuna í einu, sýður hann í smá vatni, hellir sýrópinu í botn átöppunarfötunnar og þegar þú ert búinn að fleyta bjórnum yfir ertu með allt vel blandað.
Nákvæmlega það sem ég ætlaði að segja.
Þetta blandast best ef maður hellir sykurlausninni á botninn og fleytir bjórnum ofan á hana.

Re: Hugleiðing

Posted: 27. Nov 2009 19:26
by kristfin
það er hinsvegar hægt að fokka þessu upp.

þegar ég setti porterinn minn á flöskur um daginn, þá sauð ég dextrosann í potti með smá vatni og setti í botninn á fötunni.

fleytti síðan ofanaf kökunni og ofanaá sykurinn, með slönguna alveg niður á botn. hrærði ekkert í.

þegar ég var síðan búinn að setja í næstsíðustu flöskuna sá ég að það var soldið af sykri í botninum. lét mig samt hafa það og setti restina í eina flöskur. hélt henni þó sér og fyrir svona viku setti ég hana í vaskinn í þvottahúsinu og handklæði yfir, var alveg handviss um að hún mundi springa en langaði að sjá samt til.

síðan í gær, 2 vikum eftir að ég setti á flöskur, var ég að setja annan bjór á flöskur. tók tilraunaflöskuna og setti uppá borð og þvoði flöskur og soddan. síðan var ég uppi eitthvað að sýsla þegar ég heyrði eitthvað hljóð. pældi ekki í því þá.

en þegar ég kom niður, þá hafði flaskan sprungið inni í þvottahúsi og í veggir og gólf voru öll í þykku malti. glerbrot um alla neðri hæðina, jafnvel þótt að sjónlínan frá flöskunni hefði verið fyrir 2 horn og inn í herbergi.

en tilraunin staðfesti að þetta getur sumsé gerst.

Re: Hugleiðing

Posted: 27. Nov 2009 19:58
by aki
Úff, ég hélt að tappinn færi þá alla vega fyrst af... en ekki að flaskan spryngi í tætlur. :o

Annars ákvað ég að poppa porternum þínum í kvöld. Ef státinn minn verður eitthvað nálægt þessu þá verð ég mjög glaður. Virkilega góður bara. Fullorðins. :fagun:

Skal muna að koma flösku til þín þegar hann er klár.

Re: Hugleiðing

Posted: 27. Nov 2009 21:01
by Idle
kristfin wrote:það er hinsvegar hægt að fokka þessu upp.

þegar ég setti porterinn minn á flöskur um daginn, þá sauð ég dextrosann í potti með smá vatni og setti í botninn á fötunni.

fleytti síðan ofanaf kökunni og ofanaá sykurinn, með slönguna alveg niður á botn. hrærði ekkert í.

þegar ég var síðan búinn að setja í næstsíðustu flöskuna sá ég að það var soldið af sykri í botninum. lét mig samt hafa það og setti restina í eina flöskur. hélt henni þó sér og fyrir svona viku setti ég hana í vaskinn í þvottahúsinu og handklæði yfir, var alveg handviss um að hún mundi springa en langaði að sjá samt til.

síðan í gær, 2 vikum eftir að ég setti á flöskur, var ég að setja annan bjór á flöskur. tók tilraunaflöskuna og setti uppá borð og þvoði flöskur og soddan. síðan var ég uppi eitthvað að sýsla þegar ég heyrði eitthvað hljóð. pældi ekki í því þá.

en þegar ég kom niður, þá hafði flaskan sprungið inni í þvottahúsi og í veggir og gólf voru öll í þykku malti. glerbrot um alla neðri hæðina, jafnvel þótt að sjónlínan frá flöskunni hefði verið fyrir 2 horn og inn í herbergi.

en tilraunin staðfesti að þetta getur sumsé gerst.
Þess vegna hef ég það til siðs, að fleyta bjórnum ofan á sykurlöginn, og hræra svo undur varlega saman (ekki hleypa lofti í bjórinn). Það hefur dugað mér til þessa.

Re: Hugleiðing

Posted: 27. Nov 2009 23:08
by kristfin
aki wrote:Úff, ég hélt að tappinn færi þá alla vega fyrst af... en ekki að flaskan spryngi í tætlur. :o

Annars ákvað ég að poppa porternum þínum í kvöld. Ef státinn minn verður eitthvað nálægt þessu þá verð ég mjög glaður. Virkilega góður bara. Fullorðins. :fagun:

Skal muna að koma flösku til þín þegar hann er klár.
neibb. tappinn var belgdur upp, en fastur á flöskunni. ég held að þetta hafi verið græn flaska undan moosehead bjór. hluti af flöskunni fór bara í fínan sand.

en ég bjó mér til svona vetrarpottrétt í kvöld, þungan og sterkan, drakk porterinn með. þetta féll eins og flís við rass. porterinn hefur mikið breyst á einni viku síðan ég smakkaði hann síðast. núna er hann búinn að vera 2 vikur á flösku. verður spennandi eftir nokkra mánuðu

Re: Hugleiðing

Posted: 28. Nov 2009 11:21
by Andri
ég hef einmitt gert svona tilraunir. Reynt að búa til flöskusprengjur úr Thule flöskum.
Vafði hana þétt með handklæði lét ofan í gerjunarfötu og lokaði, ekkert gerðist eftir 5 vikur, prófaði að opna flöskuna og vá hvað það gaus mikið.
Setti eplasíder í hana og held ég 2-3 teskeiðar af sykri.