Page 1 of 1
Cascade humlar
Posted: 9. Nov 2009 23:47
by Oli
Ég var að nota Cascade humla sem ég keypti frá USA (fyrir alllöngu að vísu), þeir eru með 7,3 % alpha sýru, ég var alltaf að gera ráð fyrir 5,5%. Spurning hvað Cascade humlarnir frá Ölvisholti eru með mikið af alpha sýru, er einhver með það staðfest?
Sá í nokkrum uppskriftum að menn gera oftast ráð fyrir að þeir Cascade sem eru notaðir séu 5,5 - 6%
Re: Cascade humlar
Posted: 10. Nov 2009 09:03
by Idle
Ég hef ekki keypt Cascade þaðan, en er nokkuð viss um að Ölvisholtsmenn myndu svara því ef þú sendir þeim póst.

Re: Cascade humlar
Posted: 10. Nov 2009 09:52
by Oli
Já, finn út úr því. Þetta var kannski líka smá ábending um að athuga sínar birgðir, hvort menn séu með réttar tölur skráðar í bruggforritunum sínum, útkoman verður ekki sú sama ef þú ert með 7.3% eða 5.5 % alpha.
Re: Cascade humlar
Posted: 11. Nov 2009 23:08
by karlp
Oli wrote:Já, finn út úr því. Þetta var kannski líka smá ábending um að athuga sínar birgðir, hvort menn séu með réttar tölur skráðar í bruggforritunum sínum, útkoman verður ekki sú sama ef þú ert með 7.3% eða 5.5 % alpha.
Já, kannski. Ef þér langar að hafa allt 100%. En, cascada er oftast notað fyrir bragð og lykt, svo AA utilisation er skki svo hátt né svo mikilvægt. bara henda í "1 handfull" eða "2 handfulls" og fá einn alvöru einstak brugg, á hverjum tíma

Re: Cascade humlar
Posted: 15. Nov 2009 20:35
by Eyvindur
Cascade er samt fínn alhliða humall, virkar ágætlega sem beiskjuhumall. Ég hef gert bjór með engu öðru en Cascade, og það virkaði stórvel.
Re: Cascade humlar
Posted: 29. Nov 2009 16:33
by halldor
karlp wrote:
Já, kannski. Ef þér langar að hafa allt 100%. En, cascada er oftast notað fyrir bragð og lykt, svo AA utilisation er skki svo hátt né svo mikilvægt. bara henda í "1 handfull" eða "2 handfulls" og fá einn alvöru einstak brugg, á hverjum tíma

...
John Palmer (How to Brew) wrote:Lastly, there are two types of brewers- lucky and consistent.
Kalli - þú ert sá heppni sýnist mér

Re: Cascade humlar
Posted: 30. Nov 2009 14:30
by karlp
halldor wrote:
Kalli - þú ert sá heppni sýnist mér

kannski, en ég vara bara reynda að segir, ef þú ert nota humlar í siðast 5-10min, AA% skiptir ekki svo mikið máli.
Og ef þú ert a soða fyrir 60min, jú, þú ætt að breyta tölurna. Og lika, og líklega meira mikilvægt, þú æt að endur telja fyrir gamallt humlar.
td, cascade eyða 50% af AA% í 6 mánuði, (at 20C) Já, minna ef hann er geymd í frystiskápur, en samt, það líklega hafa mikla meira áhrif en 5% (á pakkana dagur) á móti 6% in AA%
(
http://www.beersmith.com/hops/cascade.htm" onclick="window.open(this.href);return false; -> hop stability index, also
http://www.beersmith.com/hops_table.htm" onclick="window.open(this.href);return false;)