Page 1 of 1

Almennt um uppskriftir

Posted: 29. Oct 2009 10:41
by kristfin
ég var að spá í hvort það væri ekki sniðugra að uppskriftirnar sem væru á þessum þræði, væru einungins þær sem hafa verið prófaðar og smakkaðar og hafa reynst þokkalega.
pælingar um umræður væru frekar í bjórgerðarspjallinu eða í hvað er verið að brugga þegar verið er að brugga þær.
hugsa að það væri betra fyrir þá sem eru að byrja að vita til þess að hér eru bara uppskrifitr sem hafa verið prófaðar og smakkaðar af fleirum.

ég veit að ég hefi sett inn uppskriftir hér sem ég er að pæla í en orðið síðan afhuga fyrir einvherjar sakir

Re: Almennt um uppskriftir

Posted: 29. Oct 2009 10:50
by Idle
Jú, það væri ákaflega gott að skipta þessu niður. Einhver með réttindi þarf bara að fara í smá tiltekt. :)

Re: Almennt um uppskriftir

Posted: 1. Nov 2009 19:30
by Idle
Annað sem gæti verið sniðugt, er að bjóða upp á stjörnugjöf á spjallþráðum, og þar með uppskriftum.

Re: Almennt um uppskriftir

Posted: 1. Nov 2009 20:55
by Eyvindur
Okkur vantar fyrst og fremst lausn á uppskriftagagnagrunni. Það er mjög erfitt að finna uppskriftir hérna inni.

Re: Almennt um uppskriftir

Posted: 1. Nov 2009 21:26
by valurkris
Mér fynst fyrirkomulagið sem að er á homebrewtalk flott. Hafa stílana á forsíðu og þegar að maður velur stílinn koma uppskriftirnar, og engöngu að hafa uppskriftir sem að búið er að láta reyna á eins og krisfin segir.

þegar að það er komið gæti umræðuþráðurinn uppskriftir verið fyrir eithvað sem að menn eru að hnoða saman eða hafa fundið á netinu en eiga eftir að prófa.

Tek það fram að ég veit ekkert um tölvur og hvað þá heimasíðugerð þannig að ég veit ekkert hvort að þetta sé hægt með þessu spjallforriti

Re: Almennt um uppskriftir

Posted: 2. Nov 2009 02:33
by dax
Einn stíllinn verður þá að vera OSL (outside style limit).