Page 1 of 1

Enskt hefðamannaöl (English Pale Ale)

Posted: 27. Oct 2009 14:36
by Braumeister
Þennan mun ég brugga á fimmtudaginn:

Malt:
4 kg Pale Ale Malt
2 kg Vienna Malt
0.15 kg Melanoidin
0.2 kg Caramunich I
0.1 kg Caraaroma

Humlar:

No-Chill útgáfa:
FWH: 40 gr East Kent Golding 5%
85 mín: 20 gr Challenger 6.5%
10 mín: 40 gr Fuggle 5%
(Það bætast eiginlega við 20 mínútur við suðutímann ef maður kælir ekki, og allt sem er undir 20 mínútum í venjulegri uppskrift fer í FWH eða þurrhumlun)

Kæld útgáfa gæti verið:
FWH: 20 gr East Kent Golding 5%
85 mín: 20 gr Challenger 6.5%
30 mín: 40 gr Fuggle 5%
0 mín: 20 gr East Kent Golding 5%

Þurrhumlun: 20 gr EKG og 20 gr Target

Ger: Safale S04

27L fyrir suðu
23L eftir suðu
21L í gerjunarílát
OG: 1.058
SRM: 10
IBU: 38 (Tinseth)

Þetta er ítrun númer 2 á þessa uppskrift. Fyrra ölið var með Styrian Goldings og Fuggle í aðalhlutverki og óþurrhumlað með öllu. Það var öðlingsdrykkur, en mér fannst humla og maltbragðið vera heldur mikið og humlaangan of lítil. Ég minnkaði því Melanoidin og Caraaroma um 50g hvort og bætti við þurrhumluninni. Ég er eiginlega með Youngs Special London Ale að fyrirmynd.

Athugasemdir eru þegnar með þökkum.

Re: Enskt hefðamannaöl (English Pale Ale)

Posted: 28. Oct 2009 19:59
by kristfin
ég þekki þetta malt ekki nógu vel til að kommenta á þetta.

hvar fékkstu vienna? mig vantar svoleiðs í öl núna. kannski að ég bara heimaristi þetta.

en mig langar til að smakka þetta þegar það er tilbúið.

Re: Enskt hefðamannaöl (English Pale Ale)

Posted: 28. Oct 2009 20:17
by Oli
Braumeister wrote:Ég bý í Mið-Evrópu.
Á þennan lista var að bætast Carabelge, sem hlýtur að vera frábær afsökun til að prófa belgískan. :beer:
Þetta ætti að svara spurningunni ;)

Re: Enskt hefðamannaöl (English Pale Ale)

Posted: 28. Oct 2009 22:06
by Braumeister
Ef að ég kem heim um jólin þá tek ég etv eitthvað með mér og fæ kanski einhvern hérna til að smakka og gefa álit.

Vínarmaltið er þarna af því að ég get ekki keypt Maris Otter og fór að reyna að finna út hvernig ég gæti leyst það (Can you brew it leggur mikið upp úr því að maður noti M.O. í breskt öl). Þannig að ég ákvað að hafa 2kg af Munich í fyrstu tilraun af þessum drykk. En ölið atarna varð aðeins of maltað þannig að ég ætla að skipta Munich út fyrir sama magn af Vínarmalti og minnka Melanoidin og Caraaroma um 50g hvort mv. fyrri uppskrift. Ég vona að það skili mér góðu jafnvægi milli malts og humla.

Annars verður þetta spennandi á morgun, er að fara að prófa nýja aðferð. Meski í bruggpottinum og mun svo nota gerílátið með klósettbarka í botninum sem hrostastamp. Mun jafnvel gera mashout ef sérstaklega vel liggur á mér. Verður spennandi að sjá hvernig nýtnin breytist frá pokabrugginu.

Re: Enskt hefðamannaöl (English Pale Ale)

Posted: 28. Oct 2009 22:50
by kristfin
gangi þér vel með það. þú kannski segir okkur frá og tekur mynd.

annað, ég sé að þú ert með dead guy clone í gerjun. ertu með uppskriftina til að smella inná uppskriftahlutann okkar.

Re: Enskt hefðamannaöl (English Pale Ale)

Posted: 29. Oct 2009 23:31
by Braumeister
Myndir????

Image
Klósetttengi í hrostastampi

Image
Díteill af tengingu klósetttengis við hrostastampskrana (3/4" skrúfgangur)

Image
Verið að losa úr hrostastampi ofan í bjórglas útbúið með hitamæli. Bjórglasið stendur ofan í Bruggpotti. Þetta er fyrsta rennsli. Það sem er vitlaust hérna er að virturinn gusast. Væri allt skv bókinni væri slanga frá krananum og undir virtisyfirborð, en slíkt myndi minnka "hot side aeration"

Image
Tveggja potta suðufyrirkomulag

Image
Bullandi suða í gangi

Image
Hringiða

Image
Humla og prótínkeila sem flest út eftir því sem tæmist úr pottinum

Image
Ofnhanzkaður bruggmeistari sogar sjóðheitan virt ofan í gerjunarílat. Slangan er úr hitaþolnu silikoni. (Byrjendur athugið, þetta er ekki viðurkennd aðferð!)

Image
Það sem varð eftir í pottinum, uþb einn líter af viðurstyggð

Image
Öl af gerðinni Kölsch II-B ofan á söltum ýmisskonar. Athugið hvað ölið er skýjað, 20% af korninu er maltað hveiti.

Image
Viritir af annarrar kynslóðar hefðamannaöls kominn niður í kjallara til kælingar, fær ráðlagðan skammt af S04 eftir uþb 24 tíma

Image
Virturinn dregst saman þegar hann kólnar sem þýðir að loft mun sogast ofan í fötuna. Þessi hetta er einskonar getnaðarvörn fyrir óæskilegheit. (Sýklar ferðast aðallega með ryki og ryk ferðast ógjarnan upp í loftinu.)

Image
Núverandi byrgðir af öli ýmisskonar. F.v. Brewferm pilsener, Hveitibjór I og II, IPA, Kölsch I (fjarverandi), APA I, Skoskur 60 skildinga, English Pale Ale, APA II, Kölsch II-B. Fyrir framan er nýátappaður maibock (dead guy klón)

Image
Bruggpottur í baðkari en það eina sem gæti hugsanlega verið mikilvægara en hreinlæti væri etv snyrtilegur klæðaburður og fáguð sviðsframkoma.

Með þessari skolunaraðferð hoppaði rúmþyngdin talsvert upp og því færði ég Fuggle humlana fram um 7 mínútur til að ná fram áætlaðri biturð. Mig grunar að þessi verði svakalega góður.

Re: Enskt hefðamannaöl (English Pale Ale)

Posted: 8. Nov 2009 16:40
by Braumeister
Þurrhumlarnir fóru ofan í á þriðjudaginn og lyktin af East Kent Goldings var eins og sumar í poka. Rúmþyngdin er kominn úr 1.070 í 1.020 eftir rúma viku í gerjun. Það er í hærri kantinum en 71% attenuation ætti að vera í lagi miðað við enskt ger eins og Saflale S04. Mér reiknast til að nýtnin í meskingunni hafi verið 82%.

Það er samt ennþá smá þrýstingur í vatnslásnum, en þetta hlýtur að vera búið á fimmtudaginn.

Re: Enskt hefðamannaöl (English Pale Ale)

Posted: 8. Nov 2009 18:18
by hrafnkell
Top notch myndasyrpa, gaman að þessu :)

Re: Enskt hefðamannaöl (English Pale Ale)

Posted: 20. Nov 2009 09:24
by Bjössi
Mjög skemmtilegar myndir
en afhverju að gera "hringiðu"?

Re: Enskt hefðamannaöl (English Pale Ale)

Posted: 20. Nov 2009 09:50
by Idle
Bjössi wrote:Mjög skemmtilegar myndir
en afhverju að gera "hringiðu"?
Hugmyndin er að safna öllu jukkinu (próteinum, humlaögnum og öðru nammi) saman í stóra og myndarlega keilu á botninn í pottinum. Þannig er auðveldara að fleyta úr pottinum yfir í gerjunarílátið án þess að fá allt sullið með. Virkar nokkuð vel. :)

http://www.homebrewtalk.com/f13/whirlpool-big-how-7682/
http://brewingtechniques.com/library/ba ... rchet.html

Re: Enskt hefðamannaöl (English Pale Ale)

Posted: 8. Dec 2009 19:27
by Braumeister
Jæja, þá er þessi að komast á besta aldur...

Lykt: Humlarnir sem notaðir voru til þurrhumlunar lyktuðu sem sumar í poka og bjórinn sjálfur er svolítið eins og sumar í glasi. Týpískur enskur humlaangan. Örlítil áfengislykt samt þegar hann hitnar, enda er hann í kringum 7% ABV.

Litur: Rauðleitur, dekkri heldur en Fullers ESB.

Bragð: Ágætt jafnvægi milli malts og enskra humla, maltið hefur þó yfirhöndina. Það læðist samt smá áfengi inn þegar hann hitnar og kolsýran minnkar. Passlega bitur, en þó of bitur til að vera í jafnvægi, sennilega eldist það úr honum.

Froða: Froðu skortir eigi.

Víma: Sjálfstraust eykst tilfinnanlega sem og almenn fíflalæti og ungæðingsháttur. Bleikir fílar fara á kreik í kringum 5. flösku auk þess sem ímyndaðir viðmælendur taka að gerast skrafhreifir eftir því sem líða tekur á kvöldið.

Ég kann mjög vel við þennan bjór.

Varðandi þriðju kynslóð:
Tvennt kemur til greina, þetta var fyrsti bjórinn sem ég bruggaði með skolun í gegnum klósetttengi og nýtnin stökk upp um 10% og ég held að það finnist alveg. Þá er annað hvort að þróa hann áfram í enskan IPA eða sem strong bitter. Línurnar þar á milli eru reyndar frekar á reki. Almennt séð vel heppnaðar breytingar frá fyrstu kynslóð, en ég held ég muni skipta þurrhumlunum út fyrir Challenger og bæti örlítið í bragðviðbæturnar.