Page 1 of 1

Porter

Posted: 21. Oct 2009 11:36
by kristfin
ég gerði þennan http://www.fagun.is/viewtopic.php?f=7&t=423" onclick="window.open(this.href);return false; í gær.

notaði þessa uppskrift óbreytta nema hvað ég bætti 25 grömmum af fuggles 15 mín.

skemst frá því að segja að þetta varð tómt klúður. sennilega er fína kvörnin mín að mala of fínt þannig að þetta stóð allt fast í meskingunni. endaði sem alsherjar blow/suck til að ná þessu út. endaði með 27 lítra í pottinum sem skilaði 20 lítrum í fötuna. mikið og sterkt súkkulaði bragð af virtinum. ekkert alltof bjartsýnn á þetta, en held samt í vonina.

preboil gravity var 1.052, og 1.064

Re: Porter

Posted: 21. Oct 2009 12:27
by Eyvindur
SÁEÖFÞH

Þetta verður örugglega mjög fínt. Súkkulaðibragðið veit á gott. :beer:

Re: Porter

Posted: 21. Oct 2009 13:01
by kristfin
já þetta reddast alltaf. ég er ennþá í skýjunum eftir skjaldborgarölið mitt. dreifi því núna milli vina og kunningja og hvet þá til að fara brugga sjálfa.

en ég þarf að taka nokkrar stikkprufur í möluninni og fá komment. ég var nærri 2 tíma að kreista útúr kæliboxinu