Page 1 of 1
					
				Hvernig líður gerinu þínu?
				Posted: 20. Oct 2009 23:31
				by sigurdur
				Ég var að reika á vefnum þar til að ég rakst á þessa áhugaverðu lesningu á oz.craftbrewer.org um ger. Ég las þetta í gegn og held að ég sé aðeins fróðari fyrir vikið um næringu gers. Ég mæli a.m.k. að fólk lesi þetta í gegn til að fá hugmynd um hvernig hægt sé að láta gerjun ganga betur fyrir sig.
http://oz.craftbrewer.org/Library/Metho ... east.shtml" onclick="window.open(this.href);return false;
 
			
					
				Re: Hvernig líður gerinu þínu?
				Posted: 21. Oct 2009 14:23
				by kristfin
				ég las þetta og núna er ég komin með gerjunarkvíða.  
ætli að það megi álykta eftir þetta að í 25 lítra tunnu af öli sem er að stefna á 6%abv sé ekki nóg 11.5 grömm af s04?
			 
			
					
				Re: Hvernig líður gerinu þínu?
				Posted: 21. Oct 2009 14:27
				by Oli
				notaðu reiknivélina til að finna það út. Ég nenni ekki að vera stressa mig á þessu geri, setja bara nóg af því, 2pk í hverja 20 ltr 

 
			
					
				Re: Hvernig líður gerinu þínu?
				Posted: 21. Oct 2009 14:49
				by sigurdur
				SÁEÖFÞH
Það er trúlega nóg af geri sem að er tilbúið í gerjun á virtinum þínum.
En þú getur haft þetta til hliðsjónar næst þegar þú bruggar að bæta við t.d. zink viðbót við lok suðu (10m) svo að gerið hafi nægt zink og verði ekki næringarsnautt.
Ég ætla að kaupa mér ph pappír (100 í pakka á 1 þús) til að geta miðað á rétt ph stig við næstu meskjun svo ætla ég að leita að zinki.
			 
			
					
				Re: Hvernig líður gerinu þínu?
				Posted: 21. Oct 2009 15:19
				by kristfin
				hvaða ph er maður að leita að í meskjuninni. 
einn gamall frændi minn sagði mér að  þegar hann var að brugga í gamla daga, og hann bjó til mikið fínan bjór, þá hefði hann notað epsom salt, til að fá vatnið líkara því þýska.
			 
			
					
				Re: Hvernig líður gerinu þínu?
				Posted: 21. Oct 2009 16:36
				by sigurdur
				Mig minnir að fyrir ljósa bjóra þá vilji maður pH gildi í kring um 5.2 en hærra ef maður er að gera dekkri bjóra.
Þú getur skoðað tvær áhugaverðar síður til að vita meir um pH gildin,
How to brew - Kafli 15
Homebrewtalk.com Understanding mash pH