Page 1 of 1
Saazpal - hugmynd
Posted: 20. Oct 2009 00:48
by Idle
SMASH uppskrift með pale ale og Saaz. Hafði stílinn "blonde ale" til viðmiðunar. Synd að fara svona með Saaz humlana, en mér skilst að geymslutími "noble" humla sé ívið styttri en gengur og gerist. Vildi gjarnan reyna þetta með pilsner malti og lagergeri, en hef því miður ekki aðstöðu til þess.
Code: Select all
Batch Size: 19,00 L
Boil Size: 22,79 L
Estimated OG: 1,047 SG
Estimated Color: 4,7 SRM
Estimated IBU: 24,0 IBU
Brewhouse Efficiency: 75,00 %
Boil Time: 60 Minutes
Ingredients:
------------
Amount Item Type % or IBU
4,00 kg Pale Malt (2 Row) Ger (3,0 SRM) Grain 100,00 %
30,00 gm Saaz [3,50 %] (60 min) (First Wort Hop) Hops 15,1 IBU
20,00 gm Saaz [3,50 %] (30 min) Hops 7,0 IBU
20,00 gm Saaz [3,50 %] (5 min) Hops 1,8 IBU
25,00 gm Saaz [3,50 %] (Dry Hop 5 days) Hops -
1,00 tsp Irish Moss (Boil 15,0 min) Misc
1 Pkgs SafAle (Fermentis #US-05) Yeast-Ale
Uppfært: Gleymdi síðustu humlaviðbótinni.
Re: Saazpal - hugmynd
Posted: 20. Oct 2009 10:42
by kristfin
ég mundi bæta við smá humlum í restina til að fylla út í bragðið.
hvernig ætlarðu að þurrhumla? bæta í primary eða setja í secondary eða pressukönnuhumla?
Re: Saazpal - hugmynd
Posted: 20. Oct 2009 13:05
by Idle
Takk fyrir ábendinguna. Ég var að fikta eitthvað í þessu, og breytti aroma humlunum í þurrhumlun, án þess að bæta aftur við. Leiðréttist hér með.
Ég var að hugsa um að nota pressukönnuaðferðina. Á ágæta pressukönnu sem hefur aldrei verið notuð, svo þetta er úrvals tækifæri til að reyna hana.
Re: Saazpal - hugmynd
Posted: 20. Oct 2009 15:38
by kristfin
ég þurrhumlaði smassið mitt um daginn. tók viku í primary og viku í secondary með humlunum.
humlarnir voru mest á yfirborðinu en þegar maður horfði inn í glerið þá sá maður svona hundslappadrífu af humlum sem var að rigna niður.
þegar ég setti á flöskur var soldið af humlum fjótandi um, reyndi að sigta gegnum nælonsokk, en það stíflaðist alltaf.
núna eftir 4 daga á flöskum er þetta orðið alveg tært en humlar í botninum
Re: Saazpal - hugmynd
Posted: 20. Oct 2009 15:45
by Idle
Í stað pressukönnuaðferðarinnar er ágætt að setja humlana í einhverja grisju (poka, sokk) og t. d. svolítið af hreinsuðum glerkúlum með til að humlarnir fljóti ekki bara á yfirborðinu.
Viðbót: Eftir því sem ég hef lesið mér til um þurrhumlun, er best að bíða þar til mestallri gerjun er lokið. Á meðan gerlarnir eru á fleygiferð, nýtast humlarnir ekki eins vel (ilmurinn hverfur að einhverju eða miklu leyti).
Re: Saazpal - hugmynd
Posted: 20. Oct 2009 18:11
by dax
Ég smellti ca 1/8 úr einum humlakögli (pelette) út í thule léttöl - og tók strax sopa. Það er eins þurr humlun og hægt er -- en það gerði ekkert gagn!

Re: Saazpal - hugmynd
Posted: 20. Oct 2009 22:47
by Eyvindur
Ég las einhvers staðar að bestan árangur bæri að þurrhumla þegar gerjunin er rétt að klárast. Skella humlunum ss út í þegar enn er örlítil virkni. Skal ekki fullyrða um réttmæti þessarar staðhæfingar, en fannst þetta eftir sem áður áhugavert. Man ekki hver rökin voru á bak við þetta, en þetta gera þeir víst sumir stóru gæjanna.
Re: Saazpal - hugmynd
Posted: 20. Oct 2009 22:59
by Idle
Eyvindur wrote:Ég las einhvers staðar að bestan árangur bæri að þurrhumla þegar gerjunin er rétt að klárast. Skella humlunum ss út í þegar enn er örlítil virkni. Skal ekki fullyrða um réttmæti þessarar staðhæfingar, en fannst þetta eftir sem áður áhugavert. Man ekki hver rökin voru á bak við þetta, en þetta gera þeir víst sumir stóru gæjanna.
Þetta hljómar líkt því sem ég las - ég orðaði það aðeins öðruvísi. Í hnotskurn: ekki setja humlana út í um leið (eða daginn eftir) að virtin fer í kútinn, heldur bíða þar til gerlarnir byrja að slappa svolítið af í vinnunni. Annars þeyta þeir humlailminum út í veður og vind (og nýtast þ. a. l. ekki eins vel).
Ég skal heldur ekkert fullyrða um þetta, enn síður þar sem ég hef ekki einu sinni prófað þurrhumlun sjálfur. Einhvern veginn finnst mér þetta samt vera rökrétt.

Re: Saazpal - hugmynd
Posted: 21. Oct 2009 18:38
by Braumeister
Ég ætlaði að þurrhumla með Saaz um daginn en hætti við eftir að hafa googlað það aðeins.
http://www.google.ch/search?hl=de&clien ... uche&meta=" onclick="window.open(this.href);return false;
Ég reikna nýtinguna frá FWH miðað við 30 mín suðu, en það eru skiptar skoðanir með það.
Re: Saazpal - hugmynd
Posted: 21. Oct 2009 18:56
by Idle
Humm... Þarna sá ég einhvern mæla gegn því, án þess að gefa upp nokkra ástæðu. Einn talar um "mintute". Fannst þú einhverjar fleiri ástæður sem mæla gegn þurrhumlun með Saaz?
Re: Saazpal - hugmynd
Posted: 21. Oct 2009 19:06
by Braumeister
Ég man ekki nákvæmlega af hverju ég hætti við, en mig minnir að margir hafi verið að tala um að það kæmi svo grösugt bragð. Fannst bara rétt að benda þér á þetta.
En kýldu endilega á þetta og segðu okkur svo frá
Ég tappaði mínum á fyrir viku er að fara að prófa núna á föstudaginn. Það er nefnilega ákaflega mikilvægt að fylgjast með þeim þroskast.....
Saaz-humlarnir sem ég fékk voru samt orðnir eitthvað fúnir og farnir að anga af osti og sveittum fótum, þannig að ég geri mér passlegar væntingar.
Re: Saazpal - hugmynd
Posted: 21. Oct 2009 19:12
by Idle
Ég taldi grasið ekki með, því ég hef lesið svo oft um það í sambandi við svo marga humla (e. t. v. notað of mikið af þeim, of lengi, eða byrjað að drekka of fljótt?). Þó rámar mig í að hafa lesið að "noble" humlar séu raunverulega síðri en aðrir til þurrhumlunar - en ef einhver ástæða var gefin, er hún löngu gleymd.
Veit svei mér ekki hvað ég geri, það er svo margt að gerjast í kollinum á mér um þessar mundir.
