Page 1 of 1
Plasttunnur fyrir heimagerðan bjór, með þrýstiventli.
Posted: 14. Oct 2009 22:48
by HrLager
Heilt og sælt veri fólkið.
Mig langar að vita hvort Bjórtunnur (5 gallona) með inntaki fyrir co2 sé selt á Íslandi. Ég bara sé ekki neinn erlendis sem sendir svona tunnur til Íslands. Sniðugar tunnur þessar 5 gallona og eru léttar plasttunnur. Ef einhver veit um heimasíðu þar sem hægt er að panta og láta senda sér til Íslands , væri hjálp vel þegin
kveðja.
HrLager
Re: Plasttunnur fyrir heimagerðan bjór, með þrýstiventli.
Posted: 14. Oct 2009 22:51
by kristfin
þú ættir að reyna útvega þér cornelius keg frá vífilfelli. það er toppurinn.
ég hefi bara aldrei heyrt um 5 gallona plasttunnur undir bjór. áttu einvhera linka á soddan
Re: Plasttunnur fyrir heimagerðan bjór, með þrýstiventli.
Posted: 15. Oct 2009 00:08
by Oli
HrLager wrote:Heilt og sælt veri fólkið.
Mig langar að vita hvort Bjórtunnur (5 gallona) með inntaki fyrir co2 sé selt á Íslandi. Ég bara sé ekki neinn erlendis sem sendir svona tunnur til Íslands. Sniðugar tunnur þessar 5 gallona og eru léttar plasttunnur. Ef einhver veit um heimasíðu þar sem hægt er að panta og láta senda sér til Íslands , væri hjálp vel þegin
kveðja.
HrLager
Sumir okkar hafa verið að nota þessa cornelius kúta, þeir eru annars yfirleitt notað undir gosdrykki. Þessir kútar eru mjög vinsælir hjá þeim sem brugga sinn eigin bjór vegna þess að þeir eru auðveldir í notkun og auðvelt að þrífa þá. Það er hægt að kaupa svona kúta að utan en hér heima er erfitt að verða sér úti um þá því aðeins vífilfell er með þá í notkun og þeir vilja ekki selja þá. Hér er hlekkur á vefverslun sem selur kúta og margt annað:
http://www.midwestsupplies.com/products ... rodID=4879" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Plasttunnur fyrir heimagerðan bjór, með þrýstiventli.
Posted: 15. Oct 2009 00:15
by HrLager
Sæll. Hér er linkur á einn slíkan. Þeir heita King Keg .
http://209.85.229.132/search?q=cache:QI ... clnk&gl=is" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Plasttunnur fyrir heimagerðan bjór, með þrýstiventli.
Posted: 15. Oct 2009 00:16
by HrLager
Ég þakka fyrir ábendinguna , skoða þetta.
Re: Plasttunnur fyrir heimagerðan bjór, með þrýstiventli.
Posted: 15. Oct 2009 08:45
by Oli
Ég hef ekki séð svona plasttunnur til sölu hér á landi.
Hérna er ein svipuð í bruggbúð í Noregi.
http://vinogbar.no/product_info.php?cPa ... b966b4972b" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Plasttunnur fyrir heimagerðan bjór, með þrýstiventli.
Posted: 15. Oct 2009 09:02
by Eyvindur
Þetta var einu sinni til í Ámunni, en ef ég man rétt var þetta heldur dýrt (eins og reyndar þegar þeir pöntuðu eitt sinn corny sett - það kostaði 50.000 fyrir einn kút, kolsýruhylki og picnic krana).