Page 1 of 1
Epplavín með apríkósum, hunangi og malti
Posted: 9. Oct 2009 00:15
by kristfin
langaði að prófa mig aðeins áfram með eplavínið.
síðasta umferð var mjög þurr og ekki nógu sterk, bara 8%. ég vil annað hvort hafa svona vín milt, eða almennilega sterkt og þá tóna það niður með sódavatni.
allavega, lagði þetta í áðan
24 lítra af bónus eplasafa
1350 grömm af community malt sem fæst í hagkaup, 3 krukkur
1300 grömm af júróshopper hunangi, 2 krukkur
400 grömm af þurkuðum apríkósum. skar þær niður smátt
kampavínsger
í 2 lítrum af eplasafa þá leysti ég hunangið og maltið upp. lét sjóða með apríkósunum í korter, fleytti froðunni af.
í fötu, hrærði í með borvél, gerið útí og smá hræra í viðbót.
OG 1.064
var byrjað að bubbla 2 tímum síðar
Re: Epplavín með apríkósum, hunangi og malti
Posted: 9. Oct 2009 09:32
by Eyvindur
Hljómar geysilega vel. Ef þetta verður of þurrt (en kampavínsger er soddan skepna) geturðu alltaf sett gerstopp og sætt þetta svo, jafnvel bara með góðum eplasafa.
Re: Epplavín með apríkósum, hunangi og malti
Posted: 9. Oct 2009 12:15
by kristfin
ég hef aðalega áhyggjur af áfengismagninu. meiningin var að fá þetta vel sterkt.
ætla að skella 3 kg af sykri í þetta í kvöld. en magnað að þetta var farið að bubbla 2 tímum eftir að það fór í fötuna. síðan er maltaður keimur af þessu, bæði bragð og litur
Re: Epplavín með apríkósum, hunangi og malti
Posted: 14. Oct 2009 08:14
by kristfin
daginn eftir bætti ég við
1kg sykur
,5kg flórsykur
,5kg púðursykur
ég skrifa þetta núna eftir að ég sá póstinn frá sigga
http://fagun.is/viewtopic.php?f=8&t=405" onclick="window.open(this.href);return false; og held eftir á að hyggja að flotmælingarnar mínar séu tómt rugl.
allavega. með kampavínsgerinu ætti þetta að vera sterkt.
sá reyndar uppskrift frá papazian þar sem hann notar eplasafa og hunang í álíka hlutföllum, en hann notar potasion fosfate. sennilega væri það ráð
Re: Epplavín með apríkósum, hunangi og malti
Posted: 14. Oct 2009 08:43
by sigurdur
Ætli það sé ekki ráð hjá þér að takmarka magnið sem fólk má innbyrða á hverju kvöldi af þessu..
Re: Epplavín með apríkósum, hunangi og malti
Posted: 14. Oct 2009 21:51
by kristfin
pælingin var að fá þetta virkilega sterkt og jafnvel blanda það síðan niður. svona spritser dæmi.
ætla síðan að setja slatta á kampavínsflöskur og "gleyma" í nokkur ár
Re: Epplavín með apríkósum, hunangi og malti
Posted: 22. Nov 2009 16:29
by Andri
Hvernig gengur þetta vinur, hljómar kjánalega vel þessi uppskrift, langar að prófa þetta

Re: Epplavín með apríkósum, hunangi og malti
Posted: 22. Nov 2009 23:52
by kristfin
ég smellti þessu á secondary fyrir viku. ætla að leyfa þv´ði að vera þar í svona mánuð eða 2 þangað til að það er olveg alveg fallið. síðan bara á flöskur
Re: Epplavín með apríkósum, hunangi og malti
Posted: 6. Feb 2010 16:24
by Valuro
Jæja eithvað nýtt að frétta af þessu hjá þér, komið á flöskur?
Re: Epplavín með apríkósum, hunangi og malti
Posted: 7. Feb 2010 21:03
by kristfin
þetta er á flöskum. í sætari kanntinum en líka maltað. ágætt kalt með smá sódavatni. hugsa að þetta verði orðið fínt eftir svona 2-4 mánuði. skal koma með smakk á eitthvað kvöldið hjá okkur
Re: Epplavín með apríkósum, hunangi og malti
Posted: 25. Feb 2010 00:10
by Classic
Hvernig er maltið að fúnkera með eplavíninu? Er heitur fyrir því að skipta dextrósanum út fyrir maltextrakt, þótt ekki sé nema bara fyrir það að ég er að selja maltextract í búðinni hjá mér, en ekki dextrósa, þá hljómar líka vel ef það verður einhver sæta eftir, því dextrósa-eplavín er svakalega þurrt eins og margir hafa eflaust tekið eftir.
Það er svo sem komið á teikniborðið næst þegar lagt verður í epladjúsinn að nota maltextract, en gaman að fá smá vísbendingar um útkomuna
