Könnun: tillaga að nýjum aukaverðlaunum í bruggkeppni 2016
Posted: 18. Mar 2016 19:59
Í síðustu bruggkeppni var í fyrsta sinn veitt aukaverðlaun fyrir besta bjórnafnið. Þátttaka var valkvæð en undirtektir voru mjög góðar og nær allir innsendir bjórar höfðu nafn. Einhver stakk upp á að við tækjum þetta skrefi lengra og hefðum auk þess aukakeppni í framsetningu, þ.e. flöskur með miða "í fullum skrúða".
Tillaga að texta í keppnisreglur er eftirfarandi:
Tillaga að texta í keppnisreglur er eftirfarandi:
Hafið þið skoðun á þessu? Á bara að dæma eftir flösku eða á útlit bjórsins sjálfs líka að skipta máli? Hvernig er best að dæma þetta? Það væri gaman að heyra hugmyndir ykkar.Aukaverðlaun verða veitt fyrir besta heildarútlit á [bjór og] flösku að mati sérstakrar dómnefndar. Ekki er skylda að taka þátt í þessari hliðarkeppni en ef keppandi kýs að taka þátt skal skila inn auka flösku, sem má vera merkt eða útfærð á hvern þann hátt sem keppandi kýs.