Page 1 of 1
dadi
Posted: 1. Oct 2009 08:12
by dadi
Sælir,
Hvar skal byrja? Nú er ég bara ungur tittur en hef rosalegan áhuga á þessu öllu saman. Verð nú að viðurkenna að fyrir tveimur árum var ég Viking gylltur maður en fór að vinna í Heiðrúnu og það hefur sem betur fer breyst.
Annars hef ég rosalegan áhuga einnig á bruggun. Ætla þó bara að lesa mig til og sanka að mér vitneskju og búnaði þar til næsta sumar en þá er ég í fæðingarorlofi og hef vonandi meiri tíma þá en núna með pínulítinn stubb og á kafi í Háskólanum.
Eitthvað meira eða? En annars vil ég spyrja, ef þið ættuð að gefa mér eitt ráð þá væri það? (Eða ef þið eruð í gjafmildu/jólaskapi fleiri hehe)
Re: dadi
Posted: 1. Oct 2009 08:29
by Idle
Sæll og vertu velkominn!
Mitt ráð er þolinmæði.
Ég reikna með að bjórgerðin höfði til þín, fyrst þú nefnir Víking Gull. Þá myndi ég drífa mig í að smakka sem flestar tegundir bjórs og átta mig á því hvað þér fellur best, lesa mér eitthvað til um þá stíla og læra hvað greinir þá frá öðrum. Safna búnaði og þekkingu eins og þú nefndir sjálfur. Svo er um að gera að láta spurningunum rigna, því hér leynast ýmsir viskubrunnar (misfullir af öli hverju sinni).

Re: dadi
Posted: 1. Oct 2009 10:05
by dadi
Já, þolinmæði er mitt millinafn hehe.
En já, ég var semsagt að meina að VG var minn uppáhalds en eins og er eru einunigs örfáar tegundir sem ég hef ekki smakkað í gegnum mína tíð í Heiðrúnu og
í svona "beerology" er ég mjög góður. Enda notaður í bjórráðgjöf og í miklu uppáhaldi hjá vínráðgjöfum.
Annars líst mér svakalega vel á þetta. Mig minnir að það var Abraham Lincoln sem sagði "Beer is the reason we know God loves us" eða eitthvað þvíumlík. Nokkuð til í því.
Re: dadi
Posted: 1. Oct 2009 11:40
by Eyvindur
Sæll og velkominn.
Það var reyndar Benjamin Franklin sem sagði: "Beer is proof that God loves us and wants us to be happy."
Ef ég ætti að gefa þér eitt ráð er það að láta tímann ekki þvælast of mikið fyrir þér. Það er allt of auðvelt að fresta þessu út í hið óendanlega. Trúðu mér, ég var brugglaus í níu mánuði vegna þess að nýja aðstaðan var ekki tilbúin, ég hafði ekki tíma, og þar fram eftir götunum. Það er alltaf eitthvað. En maður getur tekið sér tíma í svo margt annað, af hverju ekki þetta?
Re: dadi
Posted: 1. Oct 2009 17:43
by Andri
Velkominn.
Öll tól þurfa að vera hrein þannig að vínið/bjórinn sýkist ekki af einhverjum bakteríum eða öðrum gerlum sem maður vill ekki.
Ég hef ekki enn lent í því að fá sýkingu í bjórinn en ég væri ekki til í að eiga edik bjór.
Þegar þú ert að fara að brugga þá skaltu plana nákvæmlega hvað þú ert að fara að gera þannig að það vanti ekki hluti, slæmt að vera búinn að brugga og gerið er dautt. Hafa öll tólin tilbúin og hrein.
nauðsynleg tól að mínu mati:
Fínt að eiga mæliglas fyrir sykurflotvogina, þægilegra að lesa af henni.
Gott að eiga vínþjóf þegar gerjun er byrjuð og þú vilt vita á hvaða stig hún er komin.
Þægilegt að hafa autosiphon til að fleyta vökvanum í næsta ílát.
Ekki spara peningana, ef þú kaupir örbylgjupítsu máttu ekki búast við því að fá slefandi góða eldbakaða pítsu úr örbylgjuofninum.. mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
Re: dadi
Posted: 1. Oct 2009 20:35
by dadi
Glæsilegt, takk fyrir góð ráð strákar mínir. Helvítis Benni átti þetta, ah þú fattaðir þó hvað ég var að tala um
Annars skil ég þetta með tímann, en það er ekki svo mikið tíminn heldur peningarnir enda er ég alveg sammála flatbökukenningunni hans Andra.
Re: dadi
Posted: 1. Oct 2009 21:06
by sigurdur
Velkominn.
Mitt ráð til þín er að gera ráð fyrir miklum útgjöldum á meðan þú ert að byrja bruggið.
Re: dadi
Posted: 2. Oct 2009 09:46
by Eyvindur
Á móti er mitt ráð að leggjast í rannsóknir á ódýrustu leiðinni. Fyrir utan pott og þetta allra nauðsynlegasta (gerjunarfötur, flotvog, hitamæli...) kostar þetta sáralítið. Hráefnið er hræódýrt ef þú kaupir það af ÖB (reiknast til að hver lögun kosti svipað og eitt Cooper's kit) og það er alls ekki dýrt að koma sér upp meskikeri. Drífðu þig núna í að kaupa kælibox, því þú færð það ekki í vetur. Þau eru næstum gefins þessa dagana.
Ég myndi byrja á því að tala við alla sem þú þekkir (og jafnvel fólk sem þú þekkir ekki) og reyna að hafa uppi á stórum potti. Ef þú finnur 30l+ pott sem þú getur fengið gefins/lánaðan/ódýran ertu hálfnaður.
Re: dadi
Posted: 2. Oct 2009 10:03
by dadi
Já kælibox. Hversu stór svoleiðis eru menn að nota? 12v - 21L, ætti það ekki að duga?
Re: dadi
Posted: 2. Oct 2009 11:16
by Eyvindur
Þú notar auðvitað ekki rafmagnskælibox. Ég myndi velja örlítið stærra. Ég er að nota 35l. 21l væri nóg í flestum tilfellum, en það er ágætt að hafa það stærra, ef maður skyldi vilja gera stærri lögun eða stærri bjór.
Re: dadi
Posted: 4. Oct 2009 07:51
by nIceguy
Velkominn Daði!