Page 1 of 1

Mánaðarfundur mánudaginn 5.oktober kl:20 Bryggjan Brugghús

Posted: 1. Oct 2015 11:56
by Plammi
Sælir félagar!
Mánaðarfundur október verður haldinn á Bryggjunni Brugghúsi Grandagarði 8 þann 5. oktober klukkan 20:00 - 22:00.
Við fáum þar tækifæri til að forskoða staðin, kíkja á brugggræjurnar og fá smakk af því sem mun verða í boði.

Fundargerð

Fundur hófst um 20:00. Mæting var góð eða um 40 manns. Elvar rekstrarstjóri og Bergur bruggmeistari tóku á móti okkur. Eftir stutta kynningu fór Bergur með 10 manna hópa inn í brugghús og upplýsti allt um græjurnar og lýsti ferlinu frá korni til gertanka. Það verður að segjast að græjurnar líta gríðarlega vel út og verður spennandi að sjá hvernig þær koma út. Þá var boðið upp á smávegis smakk úr gerjunartankinum, en fullbúinn verður bjórinn ekki fyrr en við opnun staðarins.

Uppúr 21:00 höfðu allir skoðað græjurnar og þá fór að fækka í hópnum. Nokkrir gestir dróu þó upp smakk úr sínum fórum og var góður rómur gerður að því. Fundi lauk 22:00.

Re: Mánaðarfundur mánudaginn 5.oktober kl:20 Bryggjan Bruggh

Posted: 1. Oct 2015 16:14
by Eyjó
Snilld

Þarf að skrá sig sérstaklega í þetta eða bara mæta á svæðið ?

Re: Mánaðarfundur mánudaginn 5.oktober kl:20 Bryggjan Bruggh

Posted: 1. Oct 2015 18:28
by æpíei
Ekki nauðsynlegt að skrá sig en vel þegið að melda sig hér

https://www.facebook.com/events/104141279942042/