Ég er að byrja að brasa Við bjórgerð og er búinn að leggja í fyrstu lögum en nú er komið að því að kolsýra bjórinn og þá vantar nýliðan upplýsingar frá ykkur lengra komnum , þannig er að ég er með 20L bjórkúta sem ég ætla að sýra í með kolsýru, spurningin er Hversu mikinn þrýsting setjið þið á kútana í upphafi? og haldiði honum þangað til bjórinn er búinn eða lækkið þið hann eftir einhvern tíma? einnig eruð þið að kolsýra þetta í einhverju vissu hitastigi eða bara við stofuhita? og hversu lengi er bjórinn að verða til frá því að hann er fyrst kolsýrður?
Hálfflýtikolsýring
Þetta er sú aðferð sem ég nota mest. Hún felst í því að kúturinn er kældur í ca. 4 gráður, og svo settur 40psi þrýstingur á kútinn. Kúturinn er látinn standa með þeim þrýsting í ~20klst og þá er bjórinn orðinn létt kolsýrður. Ég set kútinn svo á maintenance þrýsting og þá skríður bjórinn upp í rétta kolsýru á nokkrum dögum. Kosturinn við þessa aðferð er að þarna eru litlar líkur á því að fara of hátt með kolsýruna, en samt fá næga kolsýru í bjórinn til að það sé hægt að njóta hans fljótt. Svo er hægt