Page 1 of 1
meskingarvandam´la
Posted: 20. Sep 2009 19:33
by kristfin
er loksins byrjaður með all greinið.
er búinn að meskja í klukkutíma núna, 6 kíló af korni og 16 líta af vatni.
helti fyrsta líternum aftur ofaní. og síðan í pottinn
en núna er allt stopp. og ég er bara kominn mðe 3 lítra í pottinn.
er ekki allt í volli ef maður fer að hræra í þessu
Re: meskingarvandam´la
Posted: 20. Sep 2009 19:49
by Idle
Til lukku með áfangann!
Ég veit ekki hvernig meskikerið þitt er, en ef þú ert með svona klósettbarka, gætirðu reynt að strjúka eftir honum með spaðanum. Önnur aðferð er að blása hreinlega í slönguna (passaðu bara að halda henni upp svo þú fáir ekki allt upp í þig þegar það losnar um gumsið!). Þú getur líka hrært vel upp í þessu þar til rennsli kemst aftur á.
Síðan er bara að leyfa þessu að jafna sig í smá stund aftur (10 mínútur), hellir síðan fyrstu lítrunum aftur ofan í, og heldur áfram líkt og ekkert hafi í skorist.
Re: meskingarvandam´la
Posted: 20. Sep 2009 21:17
by Oli
getur líka hjálpað að bæta við hluta af skolunarvatninu.
Re: meskingarvandam´la
Posted: 20. Sep 2009 21:59
by kristfin
búinn að vera blása í kvöld. kominn með 30 lítra í pottinn.
núna er hinsvegar að fæðast nýtt vandamál. ég kemst ekki yfir 95 gráður á eldavélinni.
ef það reddast ekki verð ég að skipta þessu í 2 potta
Re: meskingarvandam´la
Posted: 21. Sep 2009 18:49
by Andri
Ertu með lokið á? Ef ekki skelltu því á það gæti hjálpað um einhverjar gráður..
er komin suða eða? Hitamælirinn sem ég keypti í europris var eitthvað gallaður og sýndi bara 95°C þótt að vatn væri að sjóða... og ég var nú ekki hátt yfir sjávarmáli þannig að suðumarkið myndi lækka svona mikið
Re: meskingarvandam´la
Posted: 22. Sep 2009 09:05
by Eyvindur
Muna bara að taka lokið af þegar suðan kemur upp.