Page 1 of 1
					
				Humlar í póstinum
				Posted: 15. Sep 2009 22:30
				by Hjalti
				Ég fékk í kvöld humla með póstinum.....
Ég veit eginlega ekki alveg hvað ég á að gera við þá en mér fynnst þetta drullu töff!
Humulus Lupulus er eina merkingin á þeim en þetta er úr garðinum hjá Tengdó úti í Austuríki.
			 
			
					
				Re: Humlar í póstinum
				Posted: 15. Sep 2009 22:47
				by sigurdur
				ofan í pottinn með þá!
			 
			
					
				Re: Humlar í póstinum
				Posted: 15. Sep 2009 22:52
				by Hjalti
				Hvaða pott ertu að tala um 

 
			
					
				Re: Humlar í póstinum
				Posted: 15. Sep 2009 22:55
				by sigurdur
				ókláraða pottinn auðvitað! 

 
			
					
				Re: Humlar í póstinum
				Posted: 16. Sep 2009 08:00
				by Hjalti
				Er einhver leið að finna út hvaða tegund þetta er fyrir utan Humulus Lupulus og hver alfasýran er?
			 
			
					
				Re: Humlar í póstinum
				Posted: 16. Sep 2009 09:04
				by Eyvindur
				Spyrja.
			 
			
					
				Re: Humlar í póstinum
				Posted: 16. Sep 2009 11:16
				by Hjalti
				Býst við því miðað við hvaðan þessir humlar eru að þetta sé Styrian golding humlar.
Þetta er úr Styria í Austuríki.
Þau skrifuðu bara humulus lupulus á pakkan og ég held ekki að þau séu með nánari tegundarútlistingu hjá sér 

 
			
					
				Re: Humlar í póstinum
				Posted: 16. Sep 2009 11:40
				by Eyvindur
				Ókey, gerðu þá eitt. Kauptu Styrian Goldings humla með þekktu alfasýrumagni (man ekki betur en að ÖB bjóði SG) og búðu til 8 lítra lögun (eftir suðu). Sjóddu í tvennu lagi og notaðu sama magn af humlum í þá báða, en í annan seturðu óþekktu humlana og í hinn þá þekktu. Láttu gerjast í sitthvoru lagi í gallon kútum, tappaðu á flöskur og allt eftir kúnstarinnar reglum, og berðu svo saman. Þá ættirðu að gera þér grein fyrir því hvort þetta er SG eða ekki, og um leið geta getið þér til um sirka AAU, og hvernig þú getur sem best notað þessa humla í framtíðinni.
			 
			
					
				Re: Humlar í póstinum
				Posted: 16. Sep 2009 11:52
				by sigurdur
				Flott nálgun.
			 
			
					
				Re: Humlar í póstinum
				Posted: 16. Sep 2009 13:30
				by Oli
				Hjalti þú getur svo pantað stærri skammt næst og gerst humlaheildsali félagsins 
 
 
Svo geturðu deilt þessu niður á okkur hina og fengið fleiri álit á því hvaða tegund þetta er.