Page 1 of 1

Komið að stóru stundinni

Posted: 12. Sep 2009 20:41
by Idle
Nafni kom meskikerinu saman fyrir mig í gærkvöld/nótt, en Viton hringirnir virka ekki nógu vel. Örlítill leki er á ytra byrðinu, og ég orðinn óþreyjufullur. Því ætla ég að láta slag standa, og er búinn að vigta korn og humla í Idle's Old Ale. Bíð bara eftir að vatnið sjóði svo ég geti byrjað meskinguna. Það er komið upp í 62°C núna, svo það er ekki langt eftir. :)

Re: Komið að stóru stundinni

Posted: 12. Sep 2009 23:06
by Idle
Nafni er snillingur, hvort sem hann er meðvitaður um það eða ekki. Meskikerið stóðst frumraunina með prýði, og án nokkurs leka.

Nú er ég með 18 lítra af virti sem nálgast suðu. Allar tölur hafa staðist til þessa, þ. e. a. s. frá upphafi meskingar og í pottinn.

All grain er ekkert mál! :)

Re: Komið að stóru stundinni

Posted: 13. Sep 2009 01:56
by sigurdur
Það er glæsilegt að sjá það að þetta hafi staðist þessa frumraun.

Viton hringirnir eru allavegana ekki góðir í þetta verkefni. Ég bíð spenntur eftir því að fá sílikon hringi svo að það sé hægt að þétta þetta almennilega.

Hvernig hélst hitinn í meskingunni?

Re: Komið að stóru stundinni

Posted: 13. Sep 2009 03:00
by Idle
Þetta var mash in/mash out hjá mér. 70°C mash in í 45 mínútur, datt niður í 67°C. 75°C mash out síðustu 10 mínúturnar, datt niður í 64°C þar sem ég var með minni pott til vara en ég áætlaði (klaufaskapur, ekkert annað). Annars var þetta mjög gott, og OG eftir meskingu var 1.073 (áætlað 1.072).

Ég hugsa að ég bölvi Viton hringjunum varlega eftir þessa frumraun, þó það liti ekki vel út um tíma. Má vera að þeir séu ekki eins auðveldir í meðhöndlun og sílikonið, en ég efast ekki um gæðin.

Re: Komið að stóru stundinni

Posted: 13. Sep 2009 08:46
by Oli
til hamingju með fyrsta all grain :skal: Þetta er ekkert mál

Re: Komið að stóru stundinni

Posted: 17. Sep 2009 00:24
by Idle
Dotinn niður í 1.031, reikna með 1.018 til 1.020. Smakkaði mælisýnið í kvöld, og bragðaðist og ilmar einkar vel. Það var allt öðruvísi en það sem ég hef bragðað áður, en kom mjög notalega á óvart, engu að síður. Ferskara en þegar ég var með maltsírópið - mun ferskara,

Re: Komið að stóru stundinni

Posted: 18. Sep 2009 01:06
by kristfin
þú ert maðurinn. ég aulinn er ekki búinn að koma minni fyrstu kornbruggun að.

vinnan og heimilið eru að fokka upp áhugamálunum.

er með mikil plön fyrir komandi sunnudag þó