Ég setti picnic kranann á kútinn í gær og hann lekur svolítið. Ég er með 12 psi á kútinum.
Það dropar bara, en þetta safnast saman og núna er smá pollur undir ísskápnum.
Er hægt að gera eitthvað til að laga þetta, eða verð ég bara að bíða fram í næstu viku til að kaupa nýjan?
Á Kút: Bee Cave og Eiríkur Rauði
Á flösku: Vetur Konungur og English Brown (Black) Ale
Í Gerjun: Ekkert
Framundan: Enn að hugsa málið
Ef bjórinn þinn er orðinn kolsýrður getur þú lækkað þrýstinginn. Það þarf mjög lítinn þrýsting til að ýta bjórnum út. Ég hef sömu reynslu af þessum krönum og nota þá alltaf með mjög litlum þrýstingi. En það má vera að þú getur eitthvað hert hann, mögulega tekið í sundur og þrifið, það gæti bætt hann eitthvað.
Já ég herti hann eins og ég gat.
Ég ætla að skoða hann betur á eftir og athuga hvort það þurfi bara að þrífa hann eitthvað. Hann er glænýr svo það er sennilega ekki málið, en það er aldrei að vita.
Á Kút: Bee Cave og Eiríkur Rauði
Á flösku: Vetur Konungur og English Brown (Black) Ale
Í Gerjun: Ekkert
Framundan: Enn að hugsa málið
Picnic kranar eru náttúrulega hannaðir fyrir mjög lágan þrýsting. Ég myndi ekki hafa svoleiðis tengt nema rétt á meðan hann er í notkun, prívat og persónulega.
Slæmdægur Brugghús
Í gerjun: Imperial Mild
Á flöskum: Allskonar gamalt dót
Á kút: London Porter, Norskt sveitaöl
Framundan: Bjór
Sigurjón wrote:Ég setti picnic kranann á kútinn í gær og hann lekur svolítið. Ég er með 12 psi á kútinum.
Það dropar bara, en þetta safnast saman og núna er smá pollur undir ísskápnum.
Er hægt að gera eitthvað til að laga þetta, eða verð ég bara að bíða fram í næstu viku til að kaupa nýjan?
Ég tek kranann alltaf úr "sambandi" eftir að ég fær mér í glasið, en það er aðallega útaf hörmungaratviki sem félagi minn lenti í. Hann var nýbúinn að setja IPA á kút, fékk sér fyrsta glasið. Svo þegar hann kom til baka 30 mín seinna til að fá sér næsta glas þá var svona hviss hljóð frami, kúturinn tómur, gólfið á floti og kolsýrukúturinn að tæmast jafnt og þétt... Annað hvort var kraninn laus, eða að hann klemmdist á milli hurðar og kúts..
Í gerjun: Dubbel
Á flöskum:
Á kút: Saison, Sænski IPA, Hveitibock
Á næstunni: Westvleteren 12
FWIW, I used picnic taps full time, on ~2m long beer lines for "ages" before I got real taps. I left them at "real" pressure, (13-15psi) the whole time. I occasionally had little dribbles, but nothing major, it was always just a matter of twisting it a little left or right and "flicking" it on and off a bit better. There's probably cheap picnic taps and _really_ cheap picnic taps too.
Best to just buy real taps and be done with it
on tap: Nothing! new beer fridge in planning
gassing/maturing: bad beers growing up to maybe be good beers
Fermenting: nothing!