Page 1 of 1
Lítill kælir í kegerator
Posted: 19. Mar 2015 09:10
by Sigurjón
Fann lítinn kæli á fínu verði. Frábært fyrir þá sem vilja byrja smátt og stækka smám saman við sig. Ætli maður komi ekki inn tveim kútum í þennan? Eða hvað haldið þið?
http://www.rafha.is/product/ks-102-1rva ... i-bordhaed" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Lítill kælir í kegerator
Posted: 19. Mar 2015 09:27
by flokason
Ég hugsa að það sé mjög tæpt. Kútarnir eru um 23cm breiðir. Þessi skápur er bara um 50cm að breidd (utanmáli)
Ég hugsa að þessi sleppi:
http://www.elko.is/elko/is/vorur/Kaelit ... eliskapur_(85cm" onclick="window.open(this.href);return false;)_LUL55W14E.ecp?detail=true
Þessi er 55cm á breidd (utanmál) og er sirka 45cm að breidd innanmáli. Svo það er meira að segja smá tæpt.
Alveg spurning hvort það sé hægt að skera smá úr hinum bara, til að láta þetta passa, það þyrfti einhver bara að prófa það

Re: Lítill kælir í kegerator
Posted: 19. Mar 2015 09:42
by Sigurjón
Ahh, ég skil. Ætli það sé ekki bara best að mæta á svæðið með málband og taka innanmál.
Re: Lítill kælir í kegerator
Posted: 19. Mar 2015 09:56
by æpíei
Svona skápar fást stundum á bland á 10-15 þúsund. Sá einn svipaðan í Elko um daginn á 15 þúsund, sá var B vara með 50% afslætti.
Ég hef verið að spá í svipað en held að þeir séu of litlir. Málið er að það er tekið úr botnfletinum fyrir kælikerfið. Kútarnir sem eru algengastir þurfa ca 70 cm hæð og eru 22 cm þvermál. Botnflöturinn þarf því að vera ca 25 cm djúpur og 45 cm breiður til að koma 2 kútum fyrir hlið við hlið. Þetta er ekki vandamál með stærri ísskápa því þá má búa til falskan botn og kútarnir geta þá nýtt dýptina betur.
Re: Lítill kælir í kegerator
Posted: 24. Mar 2015 14:59
by Sigurjón
Er svoleiðis búinn að vakta bland.is en sé ekkert sem hentar enn.
Var annar hjá Hrafnkeli áðan og keypti allt í kútasetupið, svo það eina sem mig vantar núna er kælirinn.
Bee Cave-inn er búinn að vera í gerjun í 9 daga og ég býst við að skella honum á kút um helgina og láta hann bíða í svona viku til tvær áður en ég fæ mér af honum fyrst, svo ég hef enn smá tíma til að finna góðan kæli.
Re: Lítill kælir í kegerator
Posted: 24. Mar 2015 15:11
by æpíei
Já, það er oft ekki einfalt að kaupa á Bland því seljendur eru stundum ekki að vanda sig við auglýsinguna. Þú þarft að leita að "kæliskápur", "ískápur" og "ísskápur", þá ættiru að ná að sjá allt úrvalið
Athugaðu að það tekur ca viku að kolsýra bjór ef þú gerir það eftir ströngustu reglum. Þá setur þú kútinn inn í kælinn, tengir við CO2 og stillir þrýstinginn m.v. hitastig og óskað kolsýrustig skv. þessari
töflu hér.
Það eru svo til aðrar leiðir til að fá kolsýruna hraðar í bjórinn, sjá þessa
grein hér.
Re: Lítill kælir í kegerator
Posted: 24. Mar 2015 15:51
by hrafnkell
Ég skrifaði líka pistil um það að kolsýra bjór:
http://brew.is/blog/2014/02/kolsyra-bjor-a-kutum/" onclick="window.open(this.href);return false;
Re: Lítill kælir í kegerator
Posted: 26. Mar 2015 10:00
by Sigurjón
Jæja, þá er þetta allt að skríða saman.
Er búinn að festa einn 85 cm kæli sem ég fann á bland.is. Þessi er án frystis og er 55 cm breiður. Ég þarf hugsanlega að breyta honum örlítið til að koma tveim kútum inn í hann, en það verður bara einn kútur til að byrja með svo ég er alveg rólegur.
Þannig að helgin fer í að klambra þessu saman og setja á kútinn það sem er í gerjun núna. Þá verður Bee Cave-inn búinn að vera í gerjun í 2 vikur.
Hlakka ekkert smá til!