Page 1 of 1

[Óskast] WLP-530 eða svipað

Posted: 4. Jan 2015 22:16
by helgibelgi
Planið er að gera Dubbel og fólk virðist almennt kjósa þetta ger.

Ef einhver á þetta ger (eða mjög svipað) en sér fram á að nýta sér það ekki, væri ég til í að kaupa það.

Ef svo vill til að þið eigið gerköku eða munið eiga gerköku af þessari tegund á næstunni yrði ég glaður með að fá eina krukku :)

Skv. minni leit á netinu ættu eftirfarandi ger að koma til greina (fyrir minn tilgang):

Wyeast 3787
Wyeast 1214
WLP-500

Re: [Óskast] WLP-530 eða svipað

Posted: 5. Jan 2015 08:53
by Eyvindur
Mæli með því að prófa nýja Abbeye gerið frá Lallemand, allavega ef þetta reddast ekki.