Gefðu þessu tíma. 2 vikur eru yfirleitt minnst, stundum 3. Ef það lækkar ekki gætu verið margir aðrir þættir ,svo sem hiti í meskingu, gerjunarhiti og magn gers. Það síðarnefnda ætti samt ekki að vera málið hér mv magn og OG. En sjáðu til síðar. Þessi bjór mun samt eflaust bragðast vel.
Meskihitastigið var 67 gráður, sama og í skjalinu á brew.is. Meskjaði bara í pottinum í poka. setti upp smá hita þegar helmingurinn var búinn, en fór ekkert sérstaklega yfir 67 að mig minnir.
Þú getur tekið 1/2 Lítra, sett í 2L kókflösku og sett helling af geri í (1/2 pakki af US-05) og "force fermentað" það. Kreystu flöskuna þannig að lítið loft sé eftir og hertu tappann á. Ef hún þenst út þá er eitthvað að gerast.
Ef SG lækkar þá þarftu að bæta við ger, ef ekkert gerist þá klúðraðist mesking af einhverri ástæðu