Page 1 of 1
Tri-centennial IPA, þurhumlun
Posted: 1. Sep 2014 22:24
by eddi849
Er með 23 lítra í gerjun af Tri-centennial IPA bjórnum frá Hrafnkelli á brew og ég ætla ég mér að taka 3-4 L frá þegar ég set í secondary og þurhumla hann ekki en gera það við hina 19-20 lítrana. Í uppskriftin segir til um að setja 29 gr Centennial humlum. En það sem ég er með minni bjór ætti ég ekki að minka magnið af humlunum???
Hef ekki þurhumlað áður og það verður forvitnilegt að sjá muninn

Re: Tri-centennial IPA, þurhumlun
Posted: 1. Sep 2014 23:22
by æpíei
Þú getur minnkað magnið í sem nemur 19/23=82% af upprunalega magninu. En það er ekki allt. Uppskriftin nefnir humlana en það má vera að þínir humlar hafa annað alfa gildi en þeir sem notaðir voru af höfundi uppskriftarinnar. Mismunandi árgangar af sömu humlum hafa mismunandi alfa. Og svo dofna humlar með aldri og geymslu. Þannig að svarið er: það fer eftir ýmsu. Ég myndi bara setja sama magn og uppskriftin segir. Þurrhumlun breytir ekki bragði, bara lykt. Fyrir IPA er aukin lykt bara yfirleitt plús

Re: Tri-centennial IPA, þurhumlun
Posted: 2. Sep 2014 15:35
by eddi849
U,þ.b. 70% bragðs kemur af lykt, þess vegna getur fólk ekki greint hvað það er að borða þegar lyktarskynið er tekið í burtu. Einföld tilraun til að prófa heima

Re: Tri-centennial IPA, þurhumlun
Posted: 3. Sep 2014 12:52
by Eyvindur
Alfasýrurnar breyta náttúrulega engu í þurrhumlun.
En maður er aldrei með of mikið af humlum í þurrhumlun. Láta vaða, bara.
Re: Tri-centennial IPA, þurhumlun
Posted: 3. Sep 2014 14:08
by eddi849
okei, er þetta þá einungis upp á lykt ?
PS takk fyrir svörin

Re: Tri-centennial IPA, þurhumlun
Posted: 3. Sep 2014 14:13
by hrafnkell
Nei þurrhumlun gefur líka bragð.
Re: Tri-centennial IPA, þurhumlun
Posted: 3. Sep 2014 23:10
by Eyvindur
Já, en enga beiskju.
Re: Tri-centennial IPA, þurhumlun
Posted: 4. Sep 2014 00:11
by drekatemjari
29 grömm eru alls ekkert of mikið fyrir 19-20L lögn.
Skelltu þessu öllu út í, engin ástæða til að fara 10000% eftir uppskriftinni enda um IPA að ræða þar sem humlarnir eru í aðalhlutverki.
Hér er grein úr BYO (brew your own) um hvaða áhrif hitastig og tími hefur á humla-lykt og bragð.
Aðallega rætt um Hop Stand en einnig um þurhumlun og hver munurinn er á því að draga olíuna (e. essential oils) úr humlunum með mismunandi aðferðum.
Aðferðirnar hafa mismunandi áhrif á bragð, beiskju og lykt.
http://byo.com/component/k2/item/2808-hop-stands" onclick="window.open(this.href);return false;" onclick="window.open(this.href);return false;