Page 1 of 1
Kútar í brúðkaupi
Posted: 16. Jul 2014 12:02
by Haukurtor
Ég er að fara að halda brúðkaup á næstu dögum og verða veigar frá mér í boði.
Er með tvo 19 lítra kúta fulla af bjór og kolsýrða og er að velta því fyrir mér hvernig væri best að bera þetta fram?
Ég get ekki verið með ísskáp á staðnum. Ég þarf væntanlega að halda þessu köldu í nokkra klukkutíma.
Planið er að taka þá úr ísskápnum í hádeginu og ferja þá á áfangastað og byrjar verður að tappa af þeim um 5 - 6 leitið.
hefur einhver reynslu af því að taka svona kúta í partí / brúðkaup ?
- Haukur
Re: Kútar í brúðkaupi
Posted: 16. Jul 2014 14:28
by Eyvindur
Geturðu ekki haft þá aðeins lengur í ísskáp, bara? Það tekur alveg góða stund fyrir svona mikinn bjór að volgna svo teljandi sé, þannig að ef þú getur haldið þeim kældum sem lengst þarftu ekkert að hafa áhyggjur af neinu. Annars gætirðu eflaust reddað þér með einhverri einangrun. Svefnpokum, úlpum og einhverju.
Re: Kútar í brúðkaupi
Posted: 16. Jul 2014 15:18
by Haukurtor
Það er spurning, get líklegast geymt þá í ískápnum örlítið lengur, en örugglega ekki mikið lengur en 3.
Svo bara pakka í svefnpoka með nokkrum frosnum flöskum? Það ætti að duga.
Annars bara fá liðið til að drekka hraðar

Re: Kútar í brúðkaupi
Posted: 16. Jul 2014 17:42
by Eyvindur
Þetta er svo mikill massi að hitabreytingar taka töluverðan tíma. Ef þú heldur þessu einangruðu og sæmilega köldu eins lengi og þú getur tekur þetta töluverðan tíma að volgna.
Re: Kútar í brúðkaupi
Posted: 16. Jul 2014 18:00
by æpíei
Þú gæri líka reynt að útbúa eitthvað í líkingu við "keg picnic cooler" (leitaðu á google). Þ.e. láta slönguna fara í gegnum kalt bað með ískubbum. Þá þarf slangan líklega að vera nokkuð löng sem er annað vandamál. Annars er bara ráðið að drekka hraðar

Re: Kútar í brúðkaupi
Posted: 16. Jul 2014 18:39
by helgibelgi
Ef kútarnir þurfa að vera komnir á staðinn langt fyrir þann tíma sem drukkið verður úr þeim gætirðu t.d. geymt þá í gerjunarfötum fyllta með klökum. Fínt að hafa þetta einhvers staðar bakvið out of sight. Svo er í fína lagi að hafa kútinn hvar sem er þegar dælt er úr honum því það tekur svo langan tíma fyrir hann að hitna. Ég myndi ekki hafa hann í klakavatnsbaði á meðan dælt er úr honum því hann byrjar þá að fljóta upp og fara á hliðina og alls konar vesen og bara óþarfi.
Var sjálfur með 7 kúta í brúðkaupi vinnufélaga míns um daginn. Það var reyndar snilld að geta haft þá í kæli sem var við barinn alveg þangað til skipt var um kút. Þá var hann bara tekinn út og látinn standa í stofuhita, ekkert mál, enda rosalega fljótur að fara hver kútur.