Page 1 of 1

[Óskast] Gerkaka (eftir rúma viku)

Posted: 28. Jun 2014 08:45
by Eyvindur
Ég er að fara að brugga mjög stóran bjór eftir rúmlega viku (fer til útlanda á mánudaginn, kem heim 6 dögum síðar og þarf svo að drífa í þessu). Ég náði ekki að gera gerráðstafanir, og tími eiginlega ekki að kaupa 6 gerpakka (ef ég kemst hjá því).

Vill nokkuð svo heppilega til að einhver sé að gera bjór með US-05, Nottingham eða einhverju öðru geri sem væri hentugt í Imperial Stout, sem myndi leyfa mér að hirða gerkökuna í kringum 7. júlí?

Re: [Óskast] Gerkaka (eftir rúma viku)

Posted: 28. Jun 2014 09:01
by Plammi
Ég er að fara til útlanda á þriðjudaginn og verð úti í 7 daga. Á meðan ætti sirka OG-1050 APA (centennial blonde) að vera í gerjun. Mun nota Nottingham í það.
Hann fer á kút, þannig að kakan gæti verið reddí fyrir þig þegar okkur hentar.

Re: [Óskast] Gerkaka (eftir rúma viku)

Posted: 28. Jun 2014 10:09
by hrafnkell
Þarftu að pitcha ~1.2 trilljón frumum? 40l batch? Hvað stór bjór? :) Ég er forvitinn (en á ekki köku handa þér, því miður)

Re: [Óskast] Gerkaka (eftir rúma viku)

Posted: 28. Jun 2014 10:39
by Eyvindur
Plammi: Snilld! Verð í bandi við þig þegar ég kem heim.

Hrafnkell: 40l, OG 1.100+. Myndi eflaust sleppa með 4 pakka, en ég vil frekar overpitcha en hitt þegar um svona stóra bjóra er að ræða.

Re: [Óskast] Gerkaka (eftir rúma viku)

Posted: 28. Jun 2014 10:55
by hrafnkell
4 pakkar væru klárlega nóg, það eru ~800b frumur í þeim. Skil samt hvað þú ert að pæla :) Hugsa að súrefni sé kannski meira issue í byrjun heldur en að pitcha meira. Þó það haldist vissulega í hendur.

http://yeastcalculator.com/" onclick="window.open(this.href);return false; segir 735b frumur fyrir 1.110 bjór.

Re: [Óskast] Gerkaka (eftir rúma viku)

Posted: 28. Jun 2014 21:10
by Eyvindur
Já, ég sé það núna. Viddi var að tala um 6 pakka - sagði að þær tölur hefðu komið frá MrMalty. Nújæja, 4 pakkar kosta líka smávegis.

Síðast þegar ég bruggaði þessa uppskrift setti ég 25 lítra beint á heila gerköku og bætti við aukagerpakka. Allt of mikið, fattaði ég eftirá, en útkoman var dýrðleg. Þannig að ég held að þessi bjór sé bara hrifinn af óhóflegu germagni.