Page 1 of 1

Dagskrá / Calendar

Posted: 25. Jun 2014 21:22
by karlp
Sick of watching a forum for posts about upcoming events? Too lazy to attend monthly meetings or too busy drinking to pay attention? The Calendar for Fágun is now available for easy integration with your iPhone, android phone, or desktop calendar app.

Simply read this post on your device, and click the link below to add this google calendar to your calendar

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 25. Jun 2014 23:24
by bergrisi
Takk. Svinvirkar.

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 26. Jun 2014 14:00
by Funkalizer
Fyrir þá sem eru haldnir þeirri fötlun að vera með Windows Phone, eins og ég, þá er hægt að tengja iCal við Outlook.com accountinn sem þú væntanlega ert nú þegar að nota sem notanda á símanum þínum:
http://windows.microsoft.com/en-us/wind ... -subscribe" onclick="window.open(this.href);return false;

Tengja, synca og allt virkar eins og það á að gera.

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 27. Jun 2014 09:35
by helgibelgi
Þetta er snilld!

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 28. Jun 2014 15:18
by bergrisi
Afhverju koma tveir manudagsfundir i júlí?

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 28. Jun 2014 17:23
by æpíei
Veit ekki. Það er bara einn hjá mér. Eru aðrir að sjá þetta?

En júlí fundinum seinkar um viku og verður mánudaginn 14. Svo það sé á hreinu.

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 28. Jun 2014 18:18
by bergrisi
Kemur 7 og 14

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 28. Jun 2014 19:24
by æpíei
Áhugavert. Það er enginn viðburður á dagtalinu þann 7. júlí. Það var þannig áður en þú gerðist áskrifandi að því. Hvað með ágúst? Þá ætti sama staða að koma upp, því ágúst fundurinn mun ekki vera á fyrsta mánudegi í ágúst, sem er frídagur verslunarmanna. Það er búið að færa þann fund til baka í dagtalinu um viku.

Mér dettur helst í hug að þetta sé galli í dagatali Google. Þegar viðburður er settur upp þannig að hann endurtaki sig sjálfkrafa á fyrirfram ákveðnum tíma (1. mánudagur hvers mánaðar), en einstaka viðburði er breytt, þá komi sjálfkrafa viðburðurinn áfram fram hjá sumum þó hann ætti ekki að gera það. Gæti verið tengt ákveðnum tækjum, eða hvenær þú gerist áskrifandi. En hvort heldur það er þá er ljóst að það er ekki hægt að nota þessa sjálfkrafa endurtekningu viðburða. Við verður að aðlaga okkur að því.

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 29. Jun 2014 08:06
by helgibelgi
æpíei wrote:Veit ekki. Það er bara einn hjá mér. Eru aðrir að sjá þetta?

En júlí fundinum seinkar um viku og verður mánudaginn 14. Svo það sé á hreinu.
Hjá mér er mánaðarfundur þann 7. júlí frá 20:00 til 22:30, en svo ekkert skráð þann 14. júlí.

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 29. Jun 2014 10:36
by æpíei
Þetta dagatal er eitthvað að stríða okkur. Það lítur út fyrir að ef viðburður er á endurtekningu, en einstaka viðburði er breytt, þá meðhöndli sum tæki það rangt eða alls ekki. Við erum því búin að setja inn alla viðburði til áramóta aftur. Mánaðar fundir eru áætlaðir 14. júlí, 11. ágúst og 1. september.

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 29. Jun 2014 11:05
by Eyvindur
Mánudagsfundur júlímánaðar sést enn 7. hjá mér. Þarf að synca þetta upp á nýtt þegar einhverju er breytt?

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 29. Jun 2014 11:12
by æpíei
Ég held það fari eftir hverju tæki hvenær það uppfærir dagatalið. Hjá mér (iOS tæki) er það á korters fresti. Gæti verið lengur á þínu tæki.

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 6. Jul 2014 17:17
by Eyvindur
Ég finn engar slíkar stillingar í Google Calendar.

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 7. Jul 2014 09:51
by æpíei
Þetta er ekki stillingaratriði á iOS heldur. Dagatalið uppfærist sjálfkrafa en ekki samstundis.

Ertu hættur að sjá mánaðarfund þann 7.? Fundurinn sem hefði átt að vera í kvöld frestast um viku.

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 7. Jul 2014 14:26
by Eyvindur
Nei, sé hann enn þann 7.

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 11. Aug 2014 13:46
by sigurdur
Ég ákvað að búa til leiðbeiningar fyrir Google Calendar fólk svo það fái uppfærslur á calendar nánast samtímis á viðburðum.

Fágun Google Calendar leiðbeiningar (for dummies like me)

1. Farðu á https://www.google.com/calendar/embed?s ... google.com

2. Smellu á "+ Google Calendar" hnappinn eins og sést á myndinni fyrir neðan.[
gcal-fagun.png
gcal-fagun.png (34.23 KiB) Viewed 57066 times
3. Smelltu á "Yes, add this calendar" hnappinn eins og á myndinni fyrir neðan.
gcal2.png
gcal2.png (15.88 KiB) Viewed 57066 times
4. Fáðu þér bjór. Þú átt það skilið.

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 11. Aug 2014 19:16
by bergrisi
Takk fyrir þetta.

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 9. Apr 2015 11:20
by æpíei
Minnum á að þetta dagatal er enn í gildi. Fylgið eftir leiðbeiningum í upprunalega póstinum til að setja upp dagtal á símann, spjaltölvuna eða förtövluna og sjáið alla viðburði Fágunar.

Re: Dagskrá / Calendar

Posted: 7. Oct 2015 14:54
by æpíei
Google hefur tilkynnt að HTML útgáfan verði ekki lengur virk. Það var boðið upp á þá útgáfu í byrjun, þó svo mælt hafi frekar verið með iCal. Þau sem settu HTML upp hjá sér (líklega ekki margir) ættu því að skipta yfir í iCal útgáfuna.