Page 1 of 1
Þurrhumlun
Posted: 7. Jun 2014 09:19
by Dabby
Sælir
Ég er með tvær fötur af IPA sem er kominn tími til að þurrhumla. Mér var að detta í hug að þurrhumla bara aðra þeirra núna og hina eftir 3-4 vikur (eða hugsanlega seinna). Þá fæ ég tvisvar nýtappaðann IPA út úr þessari lögun.
Hefur þessi hugmynd einhverja ókosti sem ég veit ekki um, eða er þetta bara brilliant hugmynd?
Re: Þurrhumlun
Posted: 7. Jun 2014 18:58
by helgibelgi
Dabby wrote:Sælir
Ég er með tvær fötur af IPA sem er kominn tími til að þurrhumla. Mér var að detta í hug að þurrhumla bara aðra þeirra núna og hina eftir 3-4 vikur (eða hugsanlega seinna). Þá fæ ég tvisvar nýtappaðann IPA út úr þessari lögun.
Hefur þessi hugmynd einhverja ókosti sem ég veit ekki um, eða er þetta bara brilliant hugmynd?
Var planið að setja á flöskur úr þeirri fötu sem þú þurrhumlar fljótlega og láta hina bara liggja og þurrhumla hana nokkrum dögum áður en hún fer á flöskur? ef, svo er, þá er þetta líklega í fínu lagi. Ef þú sótthreinsaðir allt nægilega ættu örfáar vikur í viðbót á gerkökunni ekki að skemma neitt. Ég myndi þó bara þurrhumla báðar föturnar og setja bæði á flöskur, brugga svo bara meira

Re: Þurrhumlun
Posted: 7. Jun 2014 22:50
by Dabby
Já það var planið að geyma aðra. Hluti af ástæðunni er samt flöskuskortur, ég á ekki flöskur undir þetta allt, en það rætist úr því fljótt...

Re: Þurrhumlun
Posted: 7. Jun 2014 23:39
by hrafnkell
Ég sé ekkert svakalegt að þessu allavega... Það er ekki alveg kosher að hafa bjórinn mikið lengur en mánuð á gerkökunni, en sleppur sennilega alveg.
Re: Þurrhumlun
Posted: 8. Jun 2014 11:52
by Eyvindur
Pfft. Ég hef haft bjóra meira en mánuð á gerkökum oftar en ég hef tölu á. Aldrei neitt verið athugavert. Þetta hljómar eins og sniðug lausn á flöskuvanda.